Fréttatíminn - 06.07.2012, Qupperneq 38
KYNNING
É g byrjaði að fikta við golfið árið 1973 – þá kynntist ég því. Og við tók heilt sumar í barnapössun og við að selja Vísi auk þess að
vera kylfusveinn til að eiga fyrir fyrsta golfsettinu.
Já, ég byrjaði níu ára gamall,“ segir Ingibergur Jó-
hannsson deildarstjóri Golfdeildar Úrvals Útsýnar.
Þrátt fyrir þetta segist hann ekki vera keppnismað-
ur í íþróttinni, „mitt nafn er ekki þekkt í keppnis-
golfinu, ég hef farið lægst 3 í forgjöf, sem er ágætt
svo sem. En, ég er lærður golfkennari, var að ljúka
því um daginn ásamt góðum hópi og er PGA-kenn-
ari.“
Draumalíf golfarans
Ingibergur hefur starfað í um það bil átta ár við það
að flytja Íslendinga út til heitari landa þar
sem þeir geta lagt stund á golfíþrótt-
ina og einbeitt sér að henni við fyrsta
flokks aðstæður. Það hlýtur að teljast
draumastarfið?
„Við getum orðað þetta sem svo að
hann er margur félaginn sem spilar
golf og öfundar mig mikið. Ég er sjö
til átta vikur, vor og haust, úti og á
Tenerife yfir veturinn. Já, ég er
mikið erlendis með góðu og
skemmtilegu fólki að vafstra
í kringum golfið. Eini gall-
inn er að þeim mun meira
sem maður vinnur við þetta,
þeim mun minna spilar mað-
ur sjálfur,“ segir Ingibergur.
En, það verður náttúrlega
ekki við öllu séð.
Það eru ekki síst félagar
hans í hinum rótgróna golf-
klúbbi Amen sem renna til
hans öfundarauga. „Amen? Já,
þetta er með tilvísan í Amen Corner.
Þetta er eina heilaga stundin hjá mér
og fastur liður í hverjum ráðningar-
samningi, að ég sé laus við þá. Alltaf
á mánudögum eftir hádegi hittumst
við og spilum,“ segir Ingibergur. Amen telur um
sextán til tuttugu manns, hópur sem hittist árið
2001 þegar Ingibergur var á Spáni í æfingabúðum.
„Þá var klúbburinn stofnaður, þar var kveikjan.“
Allt að 60 þúsund Íslendingar í golfinu
Ingibergur segist vitaskuld ekki hafa farið varhluta
af þeim mikla og vaxandi áhuga á golfinu meðal Ís-
lendinga. Hann segir jafnframt að kreppan hafi sett
að einhverju leyti strik í reikninginn, þá með þeim
hætti að einkennandi fyrir þá hópa sem hann er að
flytja út séu á aldrinum 55 plús. „Þó þetta sé allur
aldursskalinn þá eru þeir sem helst sækja í þessar
ferðir fólk á besta aldri sem er minna skuldsett og
með sæmilega tryggar tekjur. Þá hefur áhrif að ferð-
irnar hafa lækkað miðað við gengi evru – við höfum
náð gríðarlega hagstæðum samningum og fengum
okkar birgja úti til að endurskoða verðskrá sína
að teknu tilliti til gengismála. Þeir sem það gerðu
ekki urðu af viðskiptum okkar.“
Og það er eftir nokkru að slægjast fyrir þá sem
standa í ferðaþjónustu sem tengist golfinu. Þar
eru Íslendingar heimsmeistarar miðað
við hina margfrægu höfðatölu, eins
og í svo mörgu öðru. Samkvæmt
könnunum, þeir langstærstu, að
sögn Ingibergs. „Aðeins í Sví-
þjóð eru hlutfallslega f leiri
skráðir í golfklúbba. En, þeir
eru svo margir sem ekki eru
í klúbbum hér sem eru að
spila. Miðað við tölur frá
Gallup og Capacent erum
við langstærst – þær tölur
sýna að 50 til 60 þúsund Ís-
lendingar fara í golf einu
sinni á ári eða oftar.“
38 ferðir Helgin 6.-8. júlí 2012
Golf Draumastarf að flytja ÍslenDinGa út til heitari lanDa
ÍS
L
E
N
SK
A
SI
A
.I
S
U
T
I
60
19
1
06
/1
2
Úrval af vönduðum gönguskóm frá þekktum framleiðendum.
Þú getur treyst okkur Þegar velja Þarf gönguskó.
verð: 52.990 kr.
Meindl island GTX
Hálfstífir og margrómaðir.
fáanlegir í dömu- og herraútfærslu.
tilboð: 34.392 kr.
Meindl Kansas GTX
sérlega þægilegir og traustir, gore-
tex vatnsvörn. fáanlegir í dömu-
og herraútfærslu.
almennt verð: 42.990 kr.
verð: 29.990 kr.
TnF VindicaTor Mid GTX
Þægilegir í léttar göngur.
fáanlegir í dömu- og herraútfærslu.
verð: 54.990 kr.
scarpa HeKla GTX
klassískir gönguskór fyrir dömur.
fást í kringlunni og glæsibæ.
Herraútfærsla: scarpa ladakh.
NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS
gakktu lengra Í sumar
Heimsmeistarar í
ástundun golfs
Ingibergur Jóhannsson lifir og hrærist í golfíþróttinni og hefur gert alla tíð. Sem krakki tók
hann stefnuna í þá átt og hefur undanfarin ár starfað við að flytja Íslendinga til sólríkra
landa til að spila golf - nú sem deildarstjóri Golfdeildar Úrvals Útsýnar.
Ingibergur Jóhannsson. Níu
ára passaði hann börn, bar
út Vísi og var kylfusveinn til
að safna fyrir fyrsta settinu – hann
lifir og hrærist í golfinu.
KYNNING
„Fyrst þegar bókin kom út, árið 1973, seldist hún upp með látum. Varð allt
brjálað og handagangur í öskjunni – eins og maðurinn sagði. Og ný útgáfa
kom út strax árið 1974,“ segir Halfdan Örlygsson útgefandi.
Kortabók fylgir
Ný útgáfa Vegahandbókarinnar er komin í bókabúðir og á bensínstöðvar
– hinn ómissandi ferðafélagi. Þessi merkilega útgáfustarfsemi stendur nú
á tímamótum en hún er nú fertug. „Já, þetta eru tímamót. Þetta er í raun
fertugasta sumarið sem hún er í bílum landsmanna,“ segir Halfdan: „Hún
hefur verið í stöðugri uppfærslu alla tíð. Þetta er 15. útgáfa og það sem má
teljast bylting varðandi notkun bókarinnar nú er sérstök kortabók. Fólki
hefur stundum fundist erfitt að eiga við lítil kort og sjá ekki framhaldið en
nú er auðvelt að fletta á milli bókarinnar og svo kortabókarinnar til að fá
yfirsýn yfir það svæði sem ferðast er um. Menn geta, ef þeir lesa leiðbein-
ingarnar um notkun bókarinnar, hæglega sveiflað sér á milli.“
Útgáfa Vegahandbókarinnar, sem nú stendur á tímamótum eins og áður
segir, er athyglisverð. „Upphafið er að guðfaðir bókarinnar, Örlygur Half-
danarson faðir minn, gaf út Ferðahandbókina sem er þá forveri Vegahand-
bókarinnar. Svo var það fyrir um fimmtán árum að við steypum saman
Vegahandbókinni og Ferðahandbókinni. Þá komu allar þessar myndir inn;
mönnum þótti til að setja inn kort og texta,“ segir Hálfdan.
Þrír ættliðir
Ritstjórar bókarinnar eru þrír og er hver um sig fulltrúi sinnar kynslóðar
– þrír ættliðir: Eva Hálfdanardóttir, Hálfdan Örlygsson og Örlygur Hálf-
danarson. Nýju útgáfunni fylgja f leiri
hundruð ljósmyndir, hljóðbók þar sem
sjálfur Arnar Jónsson les þjóðsögur
ásamt fleirum... „Þetta er heilmikil
útgerð og margir sem koma að mál-
um auk þess sem við erum í sam-
bandi við sveitarfélög, þá sem eru
staðkunnugir og svo höfum við
verið í fimm ár við að þróa
vef – vegahandbokin.is –
bækurnar eru komnar
„on line–, á íslensku,
ensku og þýsku.
Ferðavefur þar sem
finna má upplýsing-
ar, meðal annars
um yfir þrjú þús-
und örnefni og
ágætt að byrja
ferðalagið þar.
Hinn ómissandi
ferðafélagi
Vegahandbókin er nú fertug og er útgáfusaga þessarar bókar,
sem mörgum ferðalangnum er ómissandi ferðafélagi, merk.
ferðalöG VeGahanDbókin fertuG
Háldan Örlygsson er
ánægður með nýja
Vegahandbók; aukin
og bætt útgáfa og er
þessi ágæti ferða-
félagi nú kominn „on
line“.