Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.07.2012, Síða 44

Fréttatíminn - 06.07.2012, Síða 44
Brimborg kynnti fyrr í mánuðinum nýjan Ford Explo- rer, kláran í fjöl- skylduferðalögin í sumar fyrir þá sem vilja öflugan jeppa. Explorer er með 290 hestafla V6 bensínvél sem skilar 290 hest- öflum. Eldsneytis- notkun er 10,3 lítrar á hundraðið miðað við langkeyrslu. Bíllinn er búinn 6 gíra SelectShift sjálfskiptingu auk þess sem hægt er að velja um fjórar mismunandi skynvæddar stillingar á drifstýringarkerfinu allt eftir aðstæðum. Í nýja Ford Explorer er lýsingin stillanleg og því hægt að velja þá lýsingu sem er þægilegust í mis- munandi aðstæðum og við mis- munandi birtuskilyrði. Einnig er hægt að fá hann með BLIS (Blind Spot Information System) sem skannar blinda blettinn og gerir ökumanni viðvart með því að það kviknar á ljósi í hliðarspegli þeim megin sem bifreið nálgast. Ford Explorer er með 20 tommu álfelgum og hljómflutningstækjum frá Sony, 11 hátölurum, leður- áklæði og einnig er hægt að panta úrval aukabúnaðar hjá ráðgjöfum umboðsins, að því er fram kemur á heimasíðu þess. Sæti jeppans eru fjölstillanleg þannig að auðvelt er að hlaða hann og koma fyrir fyrirferðamiklum hlutum. 44 bílar Helgin 6.-8. júlí 2012  Ford Nýr ExplorEr jEppi kyNNtur  rENault–NissaN VEðjuðu á raFbíla Fyrir rúmum Fjórum Nýr Ford Explorer er með 290 hestafla V6 bensínvél og sex gíra sjálfskiptingu. Klár í sumarferðalögin Eldsneytisnotkun er 10,3 lítrar á hundraðið miðað við langkeyrslu. Nýjung! D-vítamínbætt LÉttmJÓLK Nýjar höfuðstöðvar Toyota Toyota hefur flutt alla starfsemi sína frá Kópavogi yfir í Kauptún 6 í Garðabæ, við hlið Ikea þar sem áður var stórverslun Byko. Í Kauptúni verður sala á nýjum og notuðum Toyota- og Lexusbifreiðum, auka- og varahlutaverslun, bílaverkstæði, málningar- og réttingaverkstæði, bílaþvottur og hraðþjónusta sem sinnir smurþjónustu og þjónustu- skoðunum auk annarrar starfsemi sem tilheyrir þjónustu fyrirtækisins. Fram kemur í tilkynningu Toyota að með flutningnum sé stigið stórt skref í átt að betri þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins þar sem öll starfsemin sé komin undir eitt þak, en þjónustan var í ellefu byggingum áður. Toyota afhenti fyrsta bílinn í hinum nýju höfuðstöðvum á mánudaginn. Björn Friðrik Svavarsson tók við lyklunum að Toyota Yaris Hy- brid úr höndum Úlfars Steindórssonar, forstjóra Toyota á Íslandi. Björn Friðrik Svavarsson, Úlfar Steindórsson, Haraldur Þór Stefánsson, Kristinn J. Einarsson og Gunnar Þór Eggertsson. b ílaframleiðendurnir Renault–Nissan veðjuðu opinberlega á rafbíla fyrir rúmum 4 árum og nú eru báðir fram- leiðendurnir búnir að ná þeim áfanga að fjöldaframleiða rafbíla, að því er fram kemur í tilkynningu umboðsins, BL. Renault hóf al- menna sölu á Kangoo-rafbíl og Fluence-rafbíl í nóvember á síðasta ári í nokkrum löndum, Frakklandi, Þýskalandi, Bretlandi, Írlandi og Danmörku. Fleiri lönd hafa verið jafnt og þétt að bætast í hóp þeirra sem selja Renault-raf- bíla. BL er að vinna að því að fá leyfi til inn- flutnings á rafbílum og ef allt gengur eftir þá ætti innflutningur að geta hafist fyrri hluta næsta árs. Rafmagnsútgáfa af Kangoo er framleidd í sömu verksmiðju og núverandi Kangoo og er eins. Hinn bíllinn sem kom á markað í fyrra var rafmagns- útgáfa af fólksbílnum Fluence sem kemur í kjölfarið á Megane II Saloon. Fluence er þó aðeins stærri en Saloon-bíllinn en þeir eiga það sameiginlegt að vera framleiddir í sömu verksmiðjunni í Tyrklandi. Hinir 2 bílarnir sem fara í framleiðslu 2012 eru annars vegar nýr bíll sem er í svipaðri stærð og Clio og heitir Zoe og hins vegar mjög lítill bíll, á mörkum vespu og bíls, eins til tveggja manna og kallast Twizy. Mikil þróunarvinna og prófanir hafa átt sér stað og má meðal annars nefna að nokkur hundruð Kangoo- og Fluence-prófunarbíla fóru á göturnar í Evrópu strax árið 2010 og voru þeir þá þegar komnir í endanlegri útgáfu. Tækni rafbílanna Rafmótorarnir sem eru í þróun hjá Renault–Nissan eru frá 60 hestöflum uppí 140 hestöfl eða á bilinu 44 til 100 kW. Rafmótorarnir koma strax inn með hámarks tog þegar gefið er inn og eru mjög hljóðlátir. Hröð- unin er línuleg og stiglaus, engar gírskiptingar. Raf- mótorarnir eru um 160 kíló að þyngd. Rafhlöður Rafhlöðurnar eru lithium-ion og mismunandi í lögun og stærð allt eftir því hver þörfin og plássið er í hverjum bíl. Hver eining í rafhlöðunni samanstendur svo af fjórum rafhlöðusellum. Þyngd á 24 kWh raf- hlöðunni er 250 kg. Drægni Uppgefin drægni bílanna er frá 155 km í Kangoo og upp í 210 km í tilfelli Zoe en við íslenskar aðstæður, segir í tilkynningu umboðsins, er rétt að ræða frekar um 80 til 120 km en fer auðvitað mikið eftir aksturs- lagi. Þegar rætt er um uppgefna drægni þarf að hafa hugfast að hér er um fræðilega getu að ræða en ýmis- legt dregur úr þeirri vegalengd sem mögulegt er að komast á hleðslunni svo sem aksturslag, ljósanotkun og notkun á miðstöðinni. Ending á rafhlöðum Rafhlöðurnar eru 22 til 24 kWh en af því eru bara 20 kWh sem nýtast en það er gert til þess að eftir uppgef- inn notkunartíma, sem er 5 til 6 ár, þá sé notandinn nánast ekkert farinn að finna neinn mun á endingu þeirra. Talað er um að eftir 5 ár sé hámarks geta þeirra komin niður í 20 kWh og niður í 16 kWh eftir 8 til 10 ár sem þýðir að rafhlöðurnar eru sannarlega nothæfar í bíla eftir 10 ár en drægnin er komin niður í 100 til 120 km. Eftir 10 ára notkun eru rafhlöðurnar enn öflugri en hefðbundnar nýjar rafhlöður eru í dag og því er hægt að nýta þær áfram við annað svo sem til að geyma orku við sólarorkuframleiðslu. Þetta tryggir að ekki þarf að hafa fyrir því að farga raf- hlöðunum eftir notkun í rafbílum með tilheyrandi kostnaði og meira að segja er Renault að vinna að því hægt verði að selja rafhlöðurnar, ekki bara skila inn, en ekkert er enn í hendi í þeim efnum. Báðir með rafbíla í fjöldaframleiðslu BL vinnur að því að fá leyfi fyrir innflutningi rafbíla sem ætti að geta hafist á næsta ári Kangoo Express ZE. Sendibíll ársins 2012. Lengd: 4,21m. Hæð: 1,85m. Breidd: 1,83m. Flutningsrými: 3m³. Vél: 60 hestöfl og tog 226Nm. Fluence ZE. Lengd: 4,62m Hæð: 1,48m. Breidd: 1,81m. Farang- ursrými: 327 lítrar. Vél: 96 hestöfl og tog 226Nm. Einnig gæti verið í boði stærsta vélin sem er í þróun en hún er 140 hestöfl. Zoe ZE. Lengd: 4,08m. Hæð: 1,59. Breidd: 1,73m. Vél: 88hest- öfl og tog 220Nm. Uppgefin drægni: 210 km. Twizy ZE. Lengd: 2,33m. Hæð: 1,45. Breidd: 1,24m. Tveggja sæta. Vél: 5 til 20 hestöfl og tog 70Nm. Hefur hröðun á við 125cc hjól.  jEppliNgur NissaN QashQai Sparneytinn með nýrri dísilvél Fyrir stóru fjölskyldurnar hentar Qashqai +2. Hinn nýi Nissan Qashqai er einn hinna nýju jepplinga sem margir sækjast eftir. Bíllinn er með 2WD og 4WD sem gefur ökumanni kost á að haga stillingum í takt við aðstæður og spara þar af leiðandi eldsneyti. Nú er Nissan Qashqai fáanlegur með nýjum dísilvélum sem eyða frá 4,6 lítrum af eldsneyti á hverja 100 kílómetra, sem er með því allra lægsta sem þekkist meðal fjórhjóladrifsbíla. Jafnframt er útblásturinn mjög lítill og hér er því á ferðinni umhverfis- vænn kostur. Í boði eru, að því er fram kemur á heima- íðu umboðsins BL, tvær vélarstærðir af dísil; ný kraftmikil og sparneytin 1.6dCi sem fæst með 6 gíra beinskiptingu og sérstökum auto stop-start búnaði sem drepur á vélinni og ræsir hana sjálfkrafa þegar stöðvað er, til dæmis á umferðarljósum. Qashqai fæst svo sjálfskiptur dísil með 2.0dCi 150 hestafla vél sem búinn er 6 gíra sjálfskiptingu. Fyrir þá sem eru með stórar fjölskyldur er sjálfsagt að skoða Qashqai+2 sem er ný 7 manna útgáfa af Nissan Qashqai. Með Qashqai +2 gefst fjölskyldum sem þurfa að geta flutt fleiri en 4 farþega tækifæri kostur á hentugum bíl fyrir íslenskar aðstæður. Sparneytinn Nissan Qashaqai-jepplingur með dísilvél.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.