Fréttatíminn - 06.07.2012, Page 61
Tónlistarmaðurinn Bryan Ferry
hefur sett sig í samband við Sin-
fóníuhljómsveit Íslands og vill fá
sveitina til að leika með sér á tón-
leikum í Hörpu á næsta ári. Eins og
Fréttatíminn greindi frá á dögunum
var Ferry svo ánægður með hvernig
til tókst með tvenna tónleika hans
í Hörpu í maí að hann vill ólmur
koma aftur. Þá er ráðgert að tón-
leikarnir verði teknir upp og heim-
ildarmynd gerð um heimsóknina.
Augljóst er að Ferry vill öllu til
tjalda vegna væntanlega tónleika.
Ekki er þó víst að Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands geti
þ e k k s t þ e t t a
ágæta boð enda er
hún bókuð langt
fram í tímann og
þarf jafnan góð-
an fyrirvara fyr-
ir verkefni sem
þetta.
„ Hann ha fði
samband og vill
vinna með hljóm-
sveitinni. Meira
er ekki hægt að
segja núna, við
höfum ekki einu
sinni átt símafund
með honum og hans fólki,“ segir
Margrét Ragnarsdóttir, markaðs-
og kynningarstjóri Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar.
Bryan Ferry hélt tvenna tónleika
í Hörpu á vegum samtakanna Í okk-
ar höndum, dóttursamtaka Nelson
Mandela Foundation í Jóhannesar-
borg, í maí. Ferry er mikill veiði-
áhugamaður og hefur hug á að
renna fyrir lax í heimsókn sinni á
næsta ári.
-hdm
Hann hafði
samband
og vill
vinna með
hljómsveit-
inni.
Hlíðasmára 1 | 201 Kópavogur | Sími: 554-6969 | www.lur.is
Lífsins gæði og
þægindi frá Passion
Danski framleiðandinn Passion
býður kröfuhörðum svefnenglum
aðeins upp á það besta.
Rúm, dýnur
svefnsófar
hægindasófar
gjafavöru og
fleira
Ferry vill syngja
með Sinfó
Bryan Ferry skipuleggur tónleika í
Hörpu á næsta ári og vill fá Sinfó til að
spila undir hjá sér. Nordicphotos/Getty