Fréttatíminn - 06.07.2012, Qupperneq 62
„Þegar Halldór Guðmundsson er kominn
þarna inn sem æðsti maður þá þarf ekkert að
ræða þetta. Hann er toppmaður,“ segir tón-
listarmaðurinn Bubbi Morthens. Hann hefur
ákveðið að halda Þorláksmessutónleika sína
í Hörpu þetta árið en sú ákvörðun er athyglis-
verð í ljósi þess að Bubbi setti fram afar harða
gagnrýni á stjórnendur Hörpu í fyrra og hafði
þá uppi orð í þá veru að þangað kæmi hann
ekki inn fyrir hússins dyr, enda óvelkominn.
Bubbi vildi meina að húsið væri bara hugsað
fyrir Sinfóníuna og Óperuna. Popptónlistar-
menn væru afgangs stærð í húsinu. Bubbi
var sérstaklega ósáttur við Steinunni Birnu
Ragnarsdóttur, tónlistarstjóra Hörpu. Sagði
hann meðal annars að hrokinn læki af
henni eins og hráolía. Bubbi lýsti því jafn-
framt yfir að hann ætlaði ekki að spila í hús-
inu fyrr en nýr stjórnarformaður og stjórn
tækju við. Stjórnarformaðurinn situr að
vísu enn en Bubbi er sáttur:
„Bæði er Dóri kominn þarna inn og svo er
kominn maður frá Reykjavíkurborg í stjórn-
ina og það virðist vera vilji til að endurskoða
stefnuna,“ segir Bubbi sáttur. „Hlutirnir í
Hörpu eru ekki akkúrat eins og þeir ættu
að vera en með tilkomu Halldórs lagast þeir.
Við höfum verið í tölvupóstsamskiptum en
ég þarf að fara að taka kaffi með honum.“
-hdm
Sölvi TryggvaSon Skrifar Sögu JónS PálSEplið fellur ekki langt frá EIR-íki
Ég var nú
bara að gera
mér grein
fyrir því
nýlega að
ég er í dag
jafn gamall
og Jón Páll
þegar hann
lést.
Jón Páll var goðsögn í lifenda lífi og afrek hans munu halda nafni hans á lofti um ókomna tíð.
Skoðar æskuhetju úr
sögulegri fjarlægð
Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason er að skrifa ævisögu kraftakarlsins Jóns Páls Sigmarssonar
sem varð á gullaldarárum sínum ítrekað sterkasti maður heims. Í janúar á næsta ári eru tuttugu
ár liðin frá því Jón Páll kvaddi þennan heim aðeins 33 ára að aldri. Þau tímamót gefa Sölva tilefni
til þess að skoða þessa æskuhetju sína úr sögulegri fjarlægð.
É g er byrjaður að skrifa og viða að mér efni og heimildum úr öllum áttum, “ segir Sölvi Tryggvason sem vinnur nú
hörðum höndum að því að færa í letur sögu
Jóns Páls Sigmarssonar. „Ég notast við öll
gögn sem ég mögulega kemst yfir og byggi
einnig á viðtölum við samferðafólk Jóns Páls.
Ég hef þegar talað við nokkra og á eftir að
heyra í fleirum. “
Jón Páll varð bráðkvaddur í janúar árið
1993, aðeins þrjátíu og þriggja ára gamall.
Nákvæmlega jafn gamall og Sölvi er núna.
„Ég var nú bara að gera mér grein fyrir því
nýlega að ég er í dag jafn gamall og Jón Páll
þegar hann lést. Manni finnst þetta svolítið
skrýtið enda fannst manni hann alltaf vera
miklu eldri.“ Enda er maðurinn stór í
margvíslegum skilningi og Sölvi seg-
ist, sem smá gutti, hafa litið mjög upp
til Jóns Páls þegar hann var á hátindi
frægðar sinnar.
Sölvi segist hafa fengið hugmyndina
að bókinni fyrir all nokkru og setti
sig þá í samband við son Jóns
Páls og barnsmóður sem tóku
erindi hans vel. „Þau standa
alveg með mér í þessu.“ Þá
þótti ekki úr vegi að minnast
Jóns Páls með almennilegri ævisögu um það
leyti sem tuttugu ár eru liðin frá fráfalli hans.
„Þetta er í janúar á næsta ári en bókin mun að
sjálfsögðu koma út fyrir jólin eins og lögmál
íslenska bókamarkaðarins gera ráð fyrir.“
Sölvi bentir á að fljótlega eftir andlát Jóns
Páls hafi komið út bók um hann sem hafi þó
einnig fjallað um fleiri aflraunamenn. „Hún
var því kannski ekki nógu tæmandi enda
of stutt liðið frá dauða hans. Ég mun koma
með ýmsar nýja upplýsingar sem hafa aldrei
komið fram áður,“ segir Sölvi sem ætlar að
kafa djúpt og nýta sér kosti þess að geta horft
á Jón Pál úr þeirri sögulegu fjarlægð sem
myndast hefur frá því hann lést 1993.
Bókaútgáfan Tindur á Akureyri gefur
bók Sölva um Jón Pál út en Sölvi lét síð-
ast til sín taka á jólabókamarkaði með
bók sinni um Jónínu Benediktsdóttur
árið 2010.
Þórarinn Þórarinnsson
toti@frettatiminn.is
Sölvi Tryggvason fékk þá hugmynd að
skrifa nýja ævisögu Jóns Páls Sigmars-
sonar í tilefni þess að brátt eru liðin
tuttugu ár frá því kraftajötuninn féll
frá langt fyrir aldur fram.
Baldur nokkur
Eiríksson hefur
bæst í hóp þeirra
blaðamanna
sem skrifa DV
undir stjórn þeirra feðga Reynis Traustasonar og Jóns Trausta Reynissonar. Sveinninn
ungi þykir byrja hressilega og sló til dæmis um sig með opnuviðtali við Ólaf Ragnar
Grímsson í mánudagsblaðinu strax eftir kosningarnar. Baldur á ekki langt að sækja
sitt blaðamannsnef en hann er sonur blaðafólksins Katrínar Baldursdóttur og sjálfs
Eiríks Jónssonar sem fer nú mikinn sem einyrki í blaðamennsku á vef sínum www.
eirikurjonsson.is. Baldur er sagður bæði ákafur og djarfur, eins og hann á kyn til og
því allt útlit fyrir að Reynir Traustason sé kominn með óslípaðan demant í hendurnar
frá fornvini sínum og félaga Eiríki. Þá má geta þess til gamans að stóra systir Baldurs,
Hanna Eiríksdóttir, var á tímabili blaðakona á DV.
Heitir íslenskir
ljósmyndarar
Íslenskir ljósmyndarar hafa verið í sviðsljósinu
erlendis undanfarið og þannig eiga þeir Júlíus
Sigurjónsson, á Mogganum og Ingólfur
Júlíusson, sem myndar fyrir Reuters á Íslandi,
báðir myndir af Tom Cruise sem hafa birst víða
í erlendum miðlum. Þá gerði það fornfræga
tímarit Time Ragnari Th. Sigurðarsyni og bók
hans og Ara Trausta Guðmundssonar, Magma:
Icelandic Volcanoes, vegleg skil í vefútgáfu sinni
í byrjun vikunnar þar sem rætt er við Ragnar
um áhuga hans á eldfjöllum og fjörið sem fylgdi
gosinu í Eyjafjallajökli árið 2010.
Freyr til Frans
Sá vaski og síkáti útvarps-
maður og eftirherma Freyr
Eyjólfsson, sem meðal annars
hefur haldið fjörinu uppi í
Morgunútvarpi Rásar 2, hefur
kvatt hlustendur í bili enda
standa heilmikil vistaskipti
fyrir dyrum hjá kappanum.
Hann fylgir eiginkonu sinni,
Hólmfríði Önnu Baldurs-
dóttur, til Parísar þar sem hún
er að fara í „mastersnám í voða
fínum frönskum háskóla“, eins
og hún orðar það á Facebook-
síðu sinni. Parið leitar því að
leigjendum á íbúð sinni við
Leifsgötu og eru tilbúin til þess
að ræða upphæð leigunnar –
eins og þar stendur.
Bubbi tekur Hörpuna í sátt
Bubbi Morthens heldur sína fyrstu tónleika í Hörpu á Þorláksmessu.
SæTTir ÞorlákSmeSSuTónleikarnir verða í HörPu í ár
Áprentað
merki fyrirtækis
eða eigin hönnun
500 stk á aðeins
120.000 án vsk.
Höfuðklútar
fyrir öll
tækifæri!
Sími: 533-1510
elin@markadslausnir.is
62 dægurmál Helgin 6.-8. júlí 2012