Fréttatíminn - 20.07.2012, Qupperneq 38
30 veiði Helgin 20.-22. júlí 2012
ÍS
L
E
N
SK
A
SI
A
.I
S
U
T
I
60
19
1
06
/1
2
Úrval af vönduðum gönguskóm frá þekktum framleiðendum.
Þú getur treyst okkur Þegar velja Þarf gönguskó.
verð: 52.990 kr.
Meindl island GTX
Hálfstífir og margrómaðir.
fáanlegir í dömu- og herraútfærslu.
tilboð: 34.392 kr.
Meindl Kansas GTX
sérlega þægilegir og traustir, gore-
tex vatnsvörn. fáanlegir í dömu-
og herraútfærslu.
almennt verð: 42.990 kr.
verð: 29.990 kr.
TnF VindicaTor Mid GTX
Þægilegir í léttar göngur.
fáanlegir í dömu- og herraútfærslu.
verð: 54.990 kr.
scarpa HeKla GTX
klassískir gönguskór fyrir dömur.
fást í kringlunni og glæsibæ.
Herraútfærsla: scarpa ladakh.
NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS
gakktu lengra Í sumar
Veiði Kristján Hjálmarsson reynist algjör aflaKló
Veiðigen eða
byrjendaheppni
Kristján Hjálmarsson, fréttastjóri á Fréttablaðinu, hefur ekki verið áhugasamur um stangveiði en
lét til leiðast og skrapp í veiðiferð í fyrra, með föður sínum og bróður, sína aðra ef frá er skilin
ömurleg reynsla á unglingsaldri – nema hvað að þá hljóp tröll á færi Kristjáns.
j á, sumir vilja meina að þetta sé byrjandaheppni, sumir vilja meina það, en ég er ekki alveg viss,“ segir Kristján Hjálmarsson, fréttastjóri á Frétta-
blaðinu. Hann er nýlega kominn úr Vatnsdalnum þar
sem hann var sá aflahæsti í holli sínu; veiddi fjórar
sæmilega vænar bleikjur. Kristján er til þess að gera
nýbyrjaður í stangveiði. Og ætlar að reynast fiskinn
með afbrigðum. Í fyrra hljóp tröll á hjá honum – en þá
var Kristján að fara í sína aðra veiðiferð.
Leiðindi og rafmagnslaus bíll
Reyndar er það nokkuð sérstakt að Kristján sé til þess
að gera nýlega byrjaður að veiða því faðir hans, Hjálmar
Árnason fyrrverandi þingmaður og bróðir hans, Ingvar,
eru báðir forfallnir veiðimenn. Þetta kemur ekki til af
góðu. „Ég fór einu sinni með pabba þegar ég var 14 ára,
í Eystri eða Ytri-Rangá. Ég var illa búinn, það var leiðin-
legt veður og lítil veiði. Mér leiddist þetta alveg óheyri-
lega, fór í bílinn til að hlusta á útvarpið sem svo varð til
þess að bíllinn varð rafmagnslaus og við vorum fastir
þarna heillengi. Þá ákvað ég að veiði væri ekkert fyrir
mig en þeir hafa haldið áfram að veiða,“ segir Kristján.
Veiðgenið lætur á sér kræla
Karl faðir Kristjáns var búinn að panta ferð í Affallið,
í september, en hafði farið viku áður og ekki séð einn
einasta fisk. Þeir feðgar voru á báðum áttum, hvort þeir
ættu að nenna en drifu sig svo. Og þá fóru ævintýrin að
gerast: „Við vorum við veiðistað númer 15, vorum að
renna fyrir fisk og spjalla saman, drekka bjór og þá fæ
ég allt einu fimm punda lax. Höldum áfram að kasta,
fyrsta korterið, bróðir minn einn álíka, og svo kasta
ég út aftur og þá bítur á stærðarinnar flykki, sem tók
dágóða stund að landa – ég skalf í hnjánum, fannst þetta
svo ótrúlegt og skemmtilegt. Og pabbi var ánægður
með að veiðgenið væri að láta sér kræla.“
Sá þennan líka risaugga
Hjálmar þurfti að fara fyrr næsta dag, á fund, en þeir
bræður vöknuðu í rólegheitunum og fara aftur á 15.
Ingvar var í bílnum, þurfti að sitja símafund, og Krist-
ján fór til að æfa köst þegar allt í einu bítur á. „Vá!,Ég
sé þennan líka risaugga. Enginn til að aðstoða mig.
En, þá kallar bróðir minn allt í einu, ertu með hann?
Og hjálpaði mér svo að landa þeim ágæta fiski, sem
reyndist 12 pund. Í kjölfarið var ég orðinn mjög æstur í
þetta.“ Og skal kannski engan undra. Þeir feðgar stefna
á aðra ferð í Affallið í haust. Kristján segist húkkaður;
„já, eða, bæði og. Ég hef ekki fengið neinn lax í sumar
og er orðinn frekar pirraður,“ segir Kristján og skýtur
ekki loku fyrir að væntingar hans til afla séu hugsan-
lega óraunhæfar.
Jakob Bjarnar Grétarsson
ritstjorn@frettatiminn.is
Stjáni og sá stóri. Þennan risa
fékk Kristján í sinni annarri
veiðiferð en er ekkert endi-
lega á því að þann drátt megi
skrifa á byrjendaheppni eða
glópalán heldur sé veiðigenið
að láta á sér kræla.
Maríulaxinn. Kristján setti að sjálfsögðu, nánast annars hugar, í tvo laxa í sinni
fyrstu veiðiferð og þótti ekki mikið til koma.
Maríulaxinn lét ekki á sér standa
Í fyrra fór Kristján Hjálmarsson, fréttastjóri, með í fjölskylduferð í Flekku þar sem
margir ættingjar hans og venslamenn hafa fengið sinn Maríulax – og Kristján fór með.
„Þar fékk kona bróður míns sinn Maríulax og honum varð svo mikið um að hann felldi
tár. En í fyrra komst mágkona mín ekki og ég ákvað þá að slást með í för. Fékk lánaðar
vöðlur og við sátum þarna við ána, drukkum bjór og spjölluðum saman. Ágætt, en ég
fékk samt tvo laxa og var ekkert að hugsa um veiðina svo sem, fjögur pund hvor. En
fiskveiðin var ekkert að kveikja neitt rosalega í mér,“ segir Kristján. En þetta átti eftir
að breytast.