Fréttatíminn - 31.08.2012, Qupperneq 30
Þórarinn Þórarinsson
-13 ára reynsla
Fyrsta starf í blaðamennsku:
Blaðamaður á Vísir.is 1999
Ferill:
Blaðamaður á Vísir.is, blaðamaður og
kvikmyndagagnrýnandi á Strik.is, fréttastjóri innblaðs Fréttablaðsins,
ritstjóri Mannlífs, ritstjóri DV - blaðamaður á Fréttatímanum
H E LGA R BL A Ð
H E LGA R BL A Ð
REYNSLUMIKIL RITSTJÓRN
REYNSLUMIKIL RITSTJÓRN
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
-13 ára reynsla
Fyrsta starf í blaðamennsku:
Blaðamaður á Sunnudagsblaði Moggans 1999.
Ferill:
Blaðamaður á Morgunblaðinu, fréttaritari Morgunblaðsins í London,
blaðamaður á Fréttablaðinu, stofnandi og ritstjóri Krónikunnar,
aðstoðarritstjóri DV - blaðamaður á Fréttatímanum
É g datt út í mánuð,“ segir listakonan og myndlistarkennarinn Sara Vilbergsdóttir sem situr við eldhúsborðið á heimili sínu í Breiðholtinu. Fædd og uppalin fyrir vestan,
næst elst fjögurra systkina, sem fengu það erfiða
hlutverk í sumar að sitja yfir velferð hennar. Söru var
haldið sofandi í tvo sólarhringa og á gjörgæslu í viku
og var aðrar þrjár á spítala eftir að hafa verið hnoðuð
í gang á plani bensínstöðvar í Hveragerði þann 8.
júlí. Röð atvika urðu til þess að hún hélt lífi.
„Þetta var á afmælisdegi Bryndísar systur. Nú á
ég þennan afmælisdag með henni. Þetta er dagurinn
sem ég kom aftur til lífsins,“ segir Sara og hlær. En
hún má vart hlæja af krafti. Hún er enn að jafna sig
eftir hjartahnoðið. Brotin og brákuð rifbein bera
merki þess að vasklega var að verkinu staðið. „Þessi
bjargvættur! Kristján Ingi Kristjánsson [lögreglu-
maður á frívakt]. Ég hugsa til hans oft á dag. Hann
var réttur maður á réttum stað á hárnákvæmum
tíma. Mér finnst það kraftaverk.“
Systur í sömu sporum
Rjúkandi heitt kaffi á eldhúsborðinu, súkkulaðirús-
ínur og möndlur í skál innan um pensla, myndir, tölv-
una og annað sem fylgir málaralistinni. Hún málar
sjálfa sig á litlu strigana tvo sem liggja á borðinu, í
fötunum sem hún var í þegar hún fór í hjartastoppið.
„Fötin týndust og hafa ekki fundist en ég er búin
að átta mig á að þetta eru þau sem ég var í þennan
afdrifaríka dag. Og ekki mundi maðurinn minn,
Dalamaðurinn Gísli Guðmundsson, eftir því í hverju
ég var en sagði þegar hann sá myndirnar: Jú, ætli
þetta passi ekki.“
Sara hefur málað allt sitt líf. Hún flutti 1979 suður
og hóf myndlistarnám eftir framhaldsskóla. „Svan-
hildur systir mín er líka málari. Átta árum yngri en
ég. Við höfum verið að mála saman í tvö ár, köllum
okkur Duosisters og málum sjálfsævisöguleg atriði,
blöndum listasögunni inn í og þekktum persónum
úr ævintýrum. Við vorum með sýningu í listasafni
ASÍ í febrúar á þessu ári. Svo sýndum við í Listasafni
Ísafjarðar og fórum til Danmerkur á gestavinnustofu
í einn mánuð í maí og máluðum þar,“ lýsir Sara og
undir hljómar suðræn tónlist í litlu hljómflutnings-
tæki í horni eldhússins.
Dagurinn
sem Sara
dó – tvisvar
Sara Vilbergsdóttir fékk græddan bjargráð í bringuna
sem á að gefa henni stuð hætti hjartað að slá. Hún
fagnar því að hafa bjargvættinn innra með sér, en
hún hafði heldur betur heppnina með sér þegar lög-
reglumaður í vaktafríi bjargaði lífi hennar á bensín-
stöðvarplani í Hveragerði í júlí. Sara og systir hennar,
Svanhildur, hafa málað saman síðustu tvö ár. Þær rýna
í líf sitt og býst Sara við að sjúkrasaga hennar verði
þeim innblástur í verk, rétt eins og krabbameinsbarátta
Svanhildar prýðir einn striga systranna.
„Við komumst langleiðina með stærsta
verk okkar til þessa í Danmörku – Við
málum alla fjölskylduna með tölu; 32. Þetta
er risastór mynd. Við vorum búnar að fá inni
í Listasal Mosfellsbæjar og ætluðum að af-
hjúpa fjölskylduna þar 1. september. En þar
sem mér var kippt úr leik verður sýningin
að bíða betri tíma.“
Tiger Woods og Danmerkurför
Danmerkurferðin var afdrifarík. „Úti í Dan-
mörku var svo skítkalt, við stórkvefuðumst
báðar og urðum veikar. Hún er ekki ennþá
búin að ná úr sér hóstanum. En ég var svo
ólík sjálfri mér eftir að við komum heim í
júní. Mér leið eins og ég hefði orðið undir
valtara. Ég var að kenna pappamassanám-
skeið í Kópavogi en fann að ég hafði ekki
fulla orku. Mér datt ekki til hugar að fara
til læknis, var ekki að velta þessu fyrir mér.
Svo fer ég óforvarendis í þetta hjartastopp í
Hveragerði.“
Þær systur leiddu pensla sína saman
á Menningarnótt 2010. Sara átti að fylla
metra, hafði skissað Vestfjarðakjálkann
upp, sá að verkið var viðamikið og ákvað
að biðja systur sína að vera á kantinum og
hjálpa sér að klára ef hún væri að renna út á
tíma, en verkið var samstarfsverkefni allra
landshorna.
„Við höfðum heimild til að leyfa fólki að
koma og grípa í. Hún kom og hjálpaði mér
en fram að þessu hafði hún lítið málað frá
því að hún lauk myndlistarnámi. Við systk-
inin höfðum hvatt hana áfram, gefið pensla
og liti í afmælis- og jólagjafir og hún lítt
ánægð með hvatninguna,“ segir Sara. „En
þarna hófst hún handa. Saman málum við
ekki aðeins fortíðina heldur einnig atburði
líðandi stundar. Þegar við hófum samstarfið
var Tiger Woods maður augnabliksins.
Framhjáhöldin voru að koma fram í dags-
ljósið og við unnum á Korpúlfsstöðum með
golfvöllinn í kringum okkur. Hann rataði
því í myndirnar okkar.“
Mála sig á sama strigann
Nú eru þær sjálfar þó í aðalhlutverkum.
„Hún málar alltaf sig og ég mig. Við höfum
málað syni okkar í fanginu okkar. Þeir eru
orðnir fullorðnir, en við eigum báðar sinn
soninn og þegar þannig er verður maður
ungamamma út lífið. Ég heyrði sögu af 100
ára gamalli konu á Grund sem að dæsti
svo þægilega einn daginn þegar starfs-
stúlka kom inn og sagði: Mikið er mér létt.
Heldurðu að ég hafi ekki komið honum Guð-
mundi mínum inn á elliheimili.“
Myndina kalla þær Jesúbörnin. „Þeir
voru nú nánast eingetnir. Við ólum þá upp
einar.“ Af lýsingunni mætti ætla að þær
systur hafi alltaf verið mjög nánar, enda hafi
þær fengið svipuð spil á hönd þegar gefið
var í upphafi. „Í raun og veru gerðum við
okkur ekki grein fyrir því fyrr en við fórum
í þetta samtengda verkefni hvað við höfðum
valið líka lífsleið og það þótt við séum mjög
Við töl-
uðum
um hvað
kjarna-
fjölskylda
okkar væri
ótrúlega
lánsöm
að hafa
ekki lent
í stórum
áföllum,
eins og
sumar fjöl-
skyldur eru
endalaust
að gera.
Daginn eftir
stoppar
hjarta mitt.
Hjartastopp
í Hveragerði
12:47
Útkall berst til
sjúkraflutninga-
manna á Selfossi
12:58
Sjúkraflutningamenn
koma á staðinn
13:36
Ekið af vettvangi
í Hveragerði og á
Borgarspítalann í
Fossvogi
14:09
Komið á spítalann.
Þar sem sjúkrabíllinn
beið á meðan Sara
fór í heilaskönnun.
14:50
Lögð inn á gjörgæslu
á Hringbraut, þar
sem Sara fór í þræð-
ingu og var kæld
niður í 32 græður og
haldið sofandi í tvo
sólarhringa.
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Framhald á næstu opnu
Sara Vilbergsdóttir „Ég vil kýla meira á hluti sem mig langar að gera og kannski er það klisja en mér líður eins og ég hafi
fengið annað tækifæri – endurfæðst og eigi tvo afmælisdaga.“ Ljósmynd/Hari
30 viðtal Helgin 31. ágúst-2. september 2012