Fréttatíminn - 31.08.2012, Qupperneq 81
Farðu skynsamlega
með þitt Fé!
Fékort er nýtt fyrirframgreitt greiðslukort, sem
sameinar bestu kosti þess að nota reiðufé og
kreditkort. Nýja MasterCard Fékort auðveldar þér að
taka fjármálin fastari tökum og færir þér um leið
ærleg afsláttarkjör hjá fjölda áhugaverðra fyrirtækja.
Það er óþarfi að vera kindarlegur. Sæktu um
Fékort á www.kreditkort.is.
FÍ
TO
N
/
S
ÍA
Bollywood-
dans á Íslandi
I ndverska stórstjarnan Ram Charan kom til Íslands ásamt
mótleikurum sínum og töku-
liði í lok ágúst til þess að taka
upp tónlistarmyndbönd fyrir
Bollywood-myndina Naayak.
Ram Charan er feikilega vinsæll
í heimalandi sínu og þessarar
nýjustu myndar hans er beðið
með mikilli eftirvæntingu á Ind-
landi.
Indverskir fjölmiðlar greina
frá því að Ram Cahran hafi kom-
ið til landsins með fríðu föru-
neyti til þess að taka upp tón-
listarmyndbönd fyrir Naayak í
heillandi og myndrænu íslensku
landslagi. Fregnir herma að Ram
Charan og mótleikkona hans,
Amala Paul, séu mjög spennt
fyrir laginu og hafi notið sín vel í
íslenskri náttúru.
Naayak er rómantísk hasar-
mynd í leikstjórn VV Vinayak
og fyrsta myndin sem leikstjór-
inn gerir með hinum dáða Ram
Charan.
Tónlist myndarinnar er í
höndum indverska kvikmynda-
tónskáldsins SS Thaman. Hann
er ákaflega ánægður með útsetn-
ingar sínar fyrir Naayak og telur
víst að lögin í myndinni muni fá
fólk til þess að dansa af gleði.
Ram Charan er 27 ára gamall
og fyrir utan það að vera vinsæll
leikari þykir hann frábær knapi
og hefur hlotið viðurkenningar
sem slíkur.
Uppkomin börn
alkóhólista
Almenna bókafélagið hefur endurútgef-
ið bókina Uppkomin börn alkóhólista
eftir Árna Þór Hilmarsson, sálfræðing
og ráðgjafa, sem fyrst kom út árið 1993
og hefur verið ófáanleg um langt árabil.
Í bókinni fer Árni Þór yfir hvaða áhrif
alkóhólismi foreldra hefur á æsku og
þroska barna og hvernig sjúkdómurinn
mótar líf þeirra og störf á fullorðinsár-
um. Árni Þór starfaði í rúman áratug við
einstaklings- hjóna- og fjölskylduráð-
gjöf, auk þess sá hann um stuðnings-
hópa fyrir uppkomin börn alkóhólista.
leIðtogafundurInn Ísland Í brennIdeplI nýrrar bÍómyndar
Michael Douglas verður Reagan í Reykjavík
f ramleiðsla bíómyndar-innar Reykjavik, sem fjalla á um leiðtogafund
Ronalds Reagan Bandaríkja-
forseta og Mikails Gorbatsjov,
aðalritara Sovéska kommúnista-
flokksins, í Reykjavík, virðist
loks vera komin á skrið.
Nú hafa þau tíðindi borist
frá Bandaríkjunum að stór-
leikarinn Michael Douglas sé
í viðræðum um að taka að sér
hlutverk Reagans. Þá liggur
fyrir að leikstjórinn Mike
Newell, sem sló á sínum tíma í
gegn með Four Weddings and a
Funeral og gerði stórmyndirn-
ar Harry Potter and the Goblet
of Fire og Prince of Persia: The
Sands of Time, muni leikstýra
myndinni.
Breski leikstjórinn Ridley
Scott, sem gerði góða ferð til
Íslands í fyrra þegar hann tók
upp atriði fyrir geimtryllinn
Prometheus, hefur verið við-
loðandi verkefnið um nokkurt
skeið og er á meðal framleið-
enda.
Árið 1986 varð Ísland nafli
alheimsins í nokkra daga, en
slíkt hafði ekki hent smáþjóð-
ina í norðri síðan árið 1972
þegar Fischer og Spasskí
tefldu um heimsmeistara-
titilinn í skák, þegar Reagan
og Gorbatsjov funduðu um
fækkun kjarnorkuvopna í
Höfða í tilraun til þess að binda
enda á kalda stríðið. Reykjavík,
og vitaskuld Höfði, hljóta því að
teljast æskilegir tökustaðir en
samkvæmt fréttum stendur til
að byrja tökur í Berlín í mars á
næsta ári. Í ljósi góðrar reynslu
Scotts af Íslandi má þó ætla að
leið kvikmyndafólksins muni
einnig liggja hingað. -þþ
Sögulegur fundur Reagans og
Gorbatsjovs í Höfða verður í
brennidepli myndarinnar Reykjavik. Gamla kempan Michael Douglas er
farinn að reskjast og láta á sjá þannig
að honum ætti að reynast hægur vandi
að bregða sér í hlutverk Reagans.
Myndir/NordicPhotos-Getty
Í ljósi góðrar
reynslu Scotts
af Íslandi má
þó ætla að leið
kvikmynda-
fólksins muni
einnig liggja
hingað.
dægurmál 69 Helgin 31. ágúst-2. september 2012