Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.05.2011, Blaðsíða 31

Fréttatíminn - 06.05.2011, Blaðsíða 31
viðhald húsa Unnið í samvinnu við Húseigendafélagið Helgin 6.-8. maí 2011  Verk að Vinna Sumarið er tími framkvæmda utanhúss Ef vandað er til undirbúnings fram- kvæmda er líklegra en ekki að vel takist til við framkvæmdina sjálfa. Þannig er alls ekki víst að sá sem býður lægst sé með hagstæðasta boðið þegar upp er staðið. a ðalframkvæmdatími viðhalds og nýframkvæmda utanhúss er sumarið. Nú er því runninn upp sá tími ársins hjá fasteigna- eigendum þar sem huga þarf að þessum þáttum enda ekki ráð nema í tíma sé tekið. Verkin eru mörg og ólík og spanna allt frá smávægilegum viðgerðum og endurnýj- unum til stórfelldra viðhaldsframkvæmda sem hlaupið geta á tugum milljóna króna. Með aukinni sérhæfingu í þjóðfélaginu og fjölgun fasteigna hefur hlutur verktaka í þessum efnum farið vaxandi. Að mörgu er að hyggja þegar fasteignareigandi hefur ákveðið að leita þjónustu verktaka. Hér verður drepið á nokkrum atriðum sem vert er að hafa í huga við það tækifæri. Undirbúningur Ef vandað er til undirbúnings framkvæmda er líklegra en ekki að vel takist til við fram- kvæmdina sjálfa. Það fer einkum eftir um- fangi og eðli fyrirhugaðra framkvæmda hversu mikill undirbúningur er nauðsyn- legur. Sé fasteignareigandi sjálfur ekki fagmenntaður á sviði bygginga getur honum verið réttast að leita til sérfróðs og viðurkennds aðila til að meta ástand húss- ins og viðgerðarþörf. Í því ástandsmati felst yfirleitt, auk ástandslýsingar, sundur- liðun á nauðsynlegum verkliðum með áætluðum magntölum. Séu fyrirhugaðar framkvæmdir minni háttar er sú leið fær að óska eftir tilboðum frá verktaka, byggðum á magntölum og verklýsingu samkvæmt ástandsmati. Þegar um stærri verk er að ræða getur hins vegar verið þörf á að fá þann aðila sem gerði ástandsskýrslu til að fullgera útboðs- og verklýsingu og standa að útboði í kjölfarið. Samið við verktaka Að velja verktaka er ekki auðvelt verk. Þannig er alls ekki víst að sá sem býður lægst sé með hagstæðasta boðið þegar upp er staðið. Líta þarf til fleiri atriða svo sem hvort verktaki hafi fullnægjandi fagréttindi, hvort af honum fari gott orðspor og hvort hann virðist fjárhagslega burðugur til að ljúka verki. Þegar verktaki hefur verið val- inn er gengið til samninga við hann. Skriflegur, skýr og ítarlegur verk- samningur Seint verður nægjanlega brýnt fyrir fólki mikilvægi þess að gera skriflegan samning við verktaka hvort sem er um lítil eða stór verk að ræða. Allt of algengt er að eng- inn skriflegur samningur sé gerður eða að ekki sé vandað til samningsgerðar að öðru leyti. Skapar það hættu á óþarfa ágrein- ingi og deilum síðar meir um atriði sem hæglega hefði mátt koma í veg fyrir með skýrum og ítarlegum samningsákvæðum. Mikilvægt er að í verksamningi sé að finna sem ítarlegustu ákvæði um verkkaupið og greiðslutilhögun þess, verktímann og fram- vindu verksins og síðast en ekki síst hvaða verkþætti verktaki eigi að inna af hendi. Þá er ýmist hægt að byggja á verklýsingu ástandsskýrslu sem aflað hefur verið eða á verklýsingu sem sett hefur verið fram í tilboði verktaka. Óljós eða rýr verksamn- ingur skapar hættu á að ágreiningur rísi um hvaða verkþátta samningur tók til og þá jafnframt að verktaki áskilji sér hærri greiðslur fyrir verkið en upphaflega var samið um þar sem hann hafi þurft að vinna við fleiri verkþætti en til stóð. Getur fast- eignareigandi verið í óþægilegri stöðu þar sem verkið er þá ef til vill langt á veg komið. Lög um þjónustukaup Ákvæði laga um þjónustukaup, sem gilda í samskiptum eigenda íbúðarhúsnæðis og verktaka geta þá komið til skoðunar. Þar er svo mælt fyrir að verktaki eigi ekki að vinna önnur verk en samningur kveður á um. Ef í ljós kemur þegar verk er unnið að eðlilegt sé að vinna önnur verk til viðbótar þeim sem samið var um ber verktaka að tilkynna fasteignareiganda þar um og óska eftir fyr- irmælum hans. Geri hann það ekki getur hann ekki áskilið sér rétt til aukagreiðslna vegna þeirra verkþátta. Hafi verið samið um fast verð í verksamningi getur verktaki almennt ekki við uppgjör krafist hærri fjár- hæða en upphaflega var samið, nema hann hafi unnið fleiri verkliði en verksamningur hljóðaði um með samþykki viðsemjanda síns, enda verða verktakar eins og aðrir að standa og falla með því verði sem þeir bjóða í samningum. Leiðbeiningarskylda verktaka Algengt er að fyrirvarar séu gerðir í verk- samningum um að magntölur verks séu áætlaðar og kunni að breytast og geti þar með haft áhrif til hækkunar verkkaups. Hafa ber í huga að við þessar aðstæður leggja lög um þjónustukaup og í mörgum tilvikum einnig samningsákvæði ríka upp- lýsinga- og leiðbeiningarskyldu á verktaka þegar honum verður ljóst að magntölur eru verulega vanáætlaðar. Er verktaka þá rétt- ast að hafa samráð við fasteignareiganda og upplýsa hann um stöðu mála og óska eftir fyrirmælum. Annars er hætta á ágreiningi við uppgjör aðila. Uppgjör – úttekt – eftirmál Í minni verkum er oft svo um samið að fasteignareigandi inni verkkaup af hendi í einni greiðslu þegar verki er lokið. Í stærri verkum tíðkast það hins vegar að greitt er eftir framvindu verksins. Þá er nauðsynlegt að fasteignareigandi fylgist sem best með framvindu verksins og að reikningar verk- taka séu sundurliðaðir og skýrir. Í þessu sambandi er rétt að benda á að virðisauka- skattur af vinnulið verktaka við viðhald fæst endurgreiddur hjá skattyfirvöldum ef fram- vísað er fullgildum reikningum. Lokaupp- gjör á síðan að fara fram eftir að verki telst lokið. Mikilvægt er að taka út framkvæmd- ina og frágang á verkinu áður en loka- greiðsla fer fram. Komi þá fram við skoðun að verk er að einhverju leyti gallað getur fasteignareigandi skorað á verktaka að bæta úr og ljúka verkinu á fullnægjandi hátt. Gallar Jafnvel þótt fasteignareigandi eða eftirlits- aðili á hans vegum hafi tekið verkið út ná- kvæmlega við verklok geta síðar komið í ljós gallar á verkinu. Lög mæla svo fyrir um að fasteignareigandi skuli í síðasta lagi tveim- ur árum eftir að verki lauk að hafa uppi athugasemdir um galla því eftir þann tíma er réttur hans til að bera þá fyrir sig fallinn niður. Réttur til að bera fyrir sig galla á verki getur þó fallið niður fyrr þar sem lög áskilja að verktaka sé tilkynnt án verulegs dráttar um gallanna eftir að fasteignareig- andi varð þeirra var. Tryggilegast er að hafa uppi slíkar athugasemdir skriflega. Skriflegur samningur er nauðsyn. Aðalframkvæmdatími viðhalds og nýframkvæmda utanhúss er sumarið. _____ _____ UPP REK EIG FRA SAM ____________ ____________ LÝSINGAR STUR NASKIPTING MKVÆMDIR ÞYKKTIR _____________ _____________ ____________ ____________ _____________ Fas upp Lei vís ker _____________ ____________ teignakerfið er he lýsingar sem varð ðbeiningar sem birt a honum á hvað sk finu, þannig að allir ____________ ____________ ildarkerfi á netinu a fasteignina í tex ast við notkun fast uli gera á hverjum geta notað það, bæ ____________ _____________ fyrir umsjón og re ta, myndum eða á eignakerfisins, leiða stað í kerfinu og n ði þeir sem kunna _____________ ____________ kstur fasteigna. Þ PDF-formi, fletta notandann skref f ákvæmari útskýring meira og minna um ____________ _____________ ar má skrá og ge þeim upp og prent yrir skref í gegnum ar og forskriftir er rekstur húsfélaga. _____________ _____ yma allar a þær út. kerfið og að finna í _____ UpplýsingAr rEkstUr FrAmkvæmdir sAmÞykktir EignAskipting
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.