Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.05.2011, Blaðsíða 38

Fréttatíminn - 06.05.2011, Blaðsíða 38
8 viðhald húsa Helgin 6.-8. maí 2011 Bílastæðamálun Malbikun & malbiksviðgerðir Vélsópun & þrif Skilti Kantsteinn & viðgerðir Hellulagnir www.verktak.is verktak@verktak.is Sími: 551 4000 • Fax: 551 0440 • GSM: 898 9993 Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 Nýtt teppi á stigaganginn – nú er tækifærið !!!! Eitt verð - niðurkomið kr. 5.690 m2 Verðdæmi: 70 fermetra stigahús með 8 íbúðum Heildarverð kr. 398.300 Endurgr. VSK og meðal skattaafsl (68.460) Raunverð kr. 329.840 pr. íbúð aðeins 41.230 Komum á staðinn með prufur og mælum, ykkur að kostnaðar lausu  Kynning BSV Viðskiptavinirnir þróuðu fyrirtækið Viðhald er stefnan í dag.  Kynning BSV Spila álfarnir golf? B jarni Hilmar Jónsson er framkvæmdastjóri og eigandi BS verktaka en fyrirtækið sérhæfir sig í viðhaldi bílastæða og lóða umhverfis fyrirtæki og fjölbýlishús. „BS verktakar standa fyrir bílastæða-verktaka og þess vegna BS en fyrirtækið er trúlega eina fyritækið á Íslandi sem hefur verið starfrækt að bandarískri fyrirmynd en svokölluð „parking-lot maintenance“-fyrirtæki eru alþekkt í Bandaríkjunum og víðar. Hvað hefur fyrirtækið verið starfrækt lengi? BS verktakar eru í ár 23 ára en fyrirtækið hefur þróast, vaxið og dafnað mikið og segja má að við- kskiptavinir fyrirtækisins hafi í raun þróað BS verk- taka því upphaflega vorum við eingöngu í því að mála og sópa bílastæði en óskir viðskiptavinanna hafa mótað fyrirtækið í það sem það er í dag og stefnan er að leysa öll þau verkefni sem koma upp á borð til okkar hverju sinni og þannig að taka fyrirhöfnina af viðskiptavinum við að finna góða verktaka í hin ýmsu störf. Framkvæmið þið þá alla þá þjónustu sem fyrir- tækið býður? Já og nei, ef óskin tengist viðhaldi lóða og bíla- stæða þá leysum við það verkefni. Við teljum okkur þá bestu í málun bílastæða og viðgerðum á malbiki en við höfum lært að það er ekki hægt að vera góður í öllu og ef við getum ekki gert hlutina nógu vel þá útvistum við þá þætti (outsourcing). Við vorum til dæmis þeir fyrstu á Íslandi í hreinsun tyggigúmmís af stéttum og hreinsun og vörn gegn veggjakroti. Við komumst hins vegar að því að slík vinna hent- aði ekki endilega okkar daglegu starfsemi og því veljum við úr bestu verktakana í hina ýmsu þætti og tryggjum þannig bestu þjónustuna og verðið en þar fyrir utan losum við viðskiptavininn við fyrirhöfnina við að leita, hringja eftir og semja við hina og þessa verktaka. Hvaða þjónusta er það þá sem þið bjóðið? Kjarnastarfsemin er málun bílastæða, malbiksvið- gerðir og vélsópun en við bjóðum einnig: háþrýsti- þvott, bílastæðaskilti, hellulagnir, kantstein og við- gerðir á kantsteini, jarðvegsskipti og ýmsa jarðvinnu, malbikun á nýjum bílplönum og yfirlagnir á eldri plön, veggjakrots- og tyggjóhreinun og svo almenna lóðaumsjón og garðyrkju en ef upp kemur vandamál eða verkefni þá leysum við það með sóma. Við leggjum áherslu á að auðvelt sé að hafa sam- band við okkur, hægt er að hringja beint í skipti- borðið milli kl. 9 og 17 alla virka daga, það er hægt að hafa samband við mig 24/7 í síma 898 9993 eða með tölvupósti bjarni@vektak.is <mailto:bjarni@vektak. is>. Svo er hægt að fylla út fyrirspurn eða beiðni um tilboð á heimasíðu okkar www.verktak.is <http:// www.verktak.is> en þar eru líka ýmsar handhægar upplýsingar. M ikið hefur borið á Garðálfunum í Reykjavík upp á síðkastið og þegar málið var kannað kom í ljós að Björgvin Þórðarson, 25 ára Reykvíkingur, fer fyrir nokkrum slíkum. Við hittum Björgvin í vikunni og spurðumst fyrir um málið. Garðálfarnir – af hverju það nafn? „Ja, það er nú saga að segja frá því,“ segir Björgvin og brosir. „Ég hef rekið garðyrkjufyrirtækið Sláttu- og garðaþjón- ustu Björgvins í nokkur ár og í vetur, þegar ég var að undirbúa vertíðina, fór ég að hugsa og komst að því að mitt fyrirtæki og flestöll garðyrkjufyrirtæki heita mjög svipuðum nöfnum. Ég vildi skera mig úr hópnum, þar sem við veitum afbragðs þjónustu, og líka bæta við smá húmor þar sem þjóðfélagið hefur verið frekar þungt undanfarin ár og mikið um nei- kvæðni.“ Og að hvaða leyti skera Garðálfarnir sig þá úr? „Nú, við leitumst við að veita persónulega, fyrir- myndarþjónustu og heildarlausnir en þótt það sé algjört skilyrði og eitt aðalmarkmið fyrirtækisins viljum við gera annað og meira.“ Hvað þá helst? „Þótt það sé ekki algengt í garðyrkjugeiranum þá finnst mér það liggja í augum uppi að fyrirtæki eins og mitt eigi að vera „grænt“. Þess vegna er það markmið mitt að allt sem til fellur fari í endur- vinnslu. Tré sem ég felli eru söguð og hoggin í eldi- við, greinar og minni tré eru kurluð og sett í beð og tré og gróður sem er fjarlægður eru ýmist gróður- sett annars staðar eða fara á safnhaug. Eins og ég sagði áðan vildi ég skera mig úr og því vildi ég gera enn meira og kallaði saman rýnihóp.“ Og hver varð svo niðurstaða hópsins? „Niðurstaðan varð sú að það er í raun ekkert nýtt undir sólinni í heimi garðyrkju enda hefur hún verið stunduð um aldir og því var ákveðið að leita tæki- færa í einhverri nýjung sem væri garðinum til sóma. Einn úr hópnum er mikill markaðsmaður og ákvað þemað „garðurinn og íþróttir“ og niðurstaðan varð púttvellir enda er golfið nánast orðið þjóðaríþrótt Íslendinga. Segðu okkur meira frá þeirri hugmynd. „Já, við erum mikið búnir að funda um þessa hug- mynd og erum komnir með mjög áhugaverða vöru. Við ákváðum fljótlega að gera vellina þannig úr garði að það væri hægt að nota þá nánast allt árið um kring og þess vegna varð gervigras fyrir valinu. Við bjóð- um fjórar gerðir af grasi af misjöfnum gæðum og eiginleikum, vellirnir geta verið með snjóbræðslu, misstórir og misjafnir að lögun. Þetta er mjög spenn- andi verkefni enda hafa margar fyrirspurnir borist og nokkrar pantanir. Vorið hefur bara látið á sér standa í ár og því engin verk sem ég get sýnt þér.“ Björgvin segir líka að þótt það sé mikið að gera þessa dagana sé alltaf hægt að bæta við sig fleiri görðum til að hugsa um. Það geta allir náð í mig í síma 892 9999 alla daga allan sólarhringinn. Það er líka hægt að senda mér tölvupóst á gardalfar@gardalfar.is <mailto:gardalf- ar@gardalfar.is>, og heimasíðuna okkar www.gar- dalfar.is. K y n n in g K y n n in g
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.