Fréttatíminn - 06.05.2011, Blaðsíða 47
upplýsingar um verk frá sínum sjón-
arhóli og tengt verkið við viðhalds-
bók viðkomandi eignar.
Ýmislegt fleira er að finna á vefn-
um, svo sem fróðleik, fundargerðar-
form og fleira gagnlegt.
Þóra Jónsdóttir
vbok@vbok.is
þeir fagmenn sem fá einkunnina 4
eða 5 birtast á listanum „Finna fag-
mann“. Aðrir fasteignaeigendur sem
þurfa á fagmanni að halda geta flett
upp í listanum og hringt í viðkom-
andi fagmann.
Verkbók fagmanns
Fagmönnum stendur til boða að
skrá upplýsingar um sig og verk sín
í verkbók fagmannsins. Fagmaður-
inn skráir sig inn á vefinn og skrá-
Þ egar ráðist er í framkvæmdir á heimilum og húsum, hvort sem þær eru stórar eða smá-
ar, skiptir máli að skipuleggja þær
vel. Það er betra að mála stofuna
áður en parketið er lagt ef á annað
borð á að gera hvoru tveggja og
betra að huga að pípulögnum á bað-
herbergi áður en flísar eru lagðar. Ef
skipta á um þakjárn á fjölbýlishúsi er
nauðsynlegt að halda húsfund með
góðum fyrirvara. Meiri breytingar á
þaki þarf jafnvel að láta teikna og fá
samþykktar af íbúum áður en sótt er
um leyfi til byggingarfulltrúa.
Vistvænt efni
Undanfarin ár hefur viðhorf til um-
hverfisins tekið stakkaskiptun.
Mun algengara er að fólk vilji nota
vistvænt efni við framkvæmdir. Þá
er skynsamlegt að velja efni sem
auðveld eru í viðhaldi og sem eru
endingargóð. Ef um er að ræða
sambærileg byggingarefni er end-
ingarbetra efnið umhverfisvænna en
það sem endist skemur.
Húseigendur, sem vilja bæta um-
hverfið, hafa það að markmiði að
nýta allt sem best. Það getur verið
jafn skemmtileg glíma að breyta því
sem fyrir er og að nýta það sem er
til staðar í stað þess að fleygja öllu
og kaupa nýtt. Við þær aðstæður
væri ánægjulegt að geta flett upp í
viðhaldsbók og séð hvernig staðið
var að málum þegar það var unnið
sem nú skal breytt. Viðhaldsbók
er fyrst og fremst hagnýt við allar
framkvæmdir en auk þess getur
hún verið skemmtileg lesning hvort
sem flett er upp eigin framkvæmd
eða fyrri eiganda íbúðar eða húss.
Minnið svíkur okkur óþægilega
hratt og þeir sem þykjast muna
halda oft bara að þeir muni rétt. Ef
við búum okkur aftur á móti til við-
haldsbók getum við hvenær sem er
flett upp í henni og séð hvenær hlut-
irnir voru gerðir, hver vann fyrir
okkur og hvaða efni voru notuð og
metið hvort tími sé kominn á nýtt
viðhald.
Viðhaldsbók eignar og húsfélags
Viðhaldsbók sem einu sinni er búin
til á www.vidhaldsbok.is fylgir við-
komandi fasteign þótt hún skipti um
eigendur. Húseigandi og félagar í
húsfélögum geta fært viðhald á eign-
um sínum til bókar með því að skrá
sig og nota vefinn reglulega. Sérstök
viðhaldsbók er búin til fyrir hverja
íbúð. Ein sameiginleg viðhaldsbók
er fyrir húsfélagið í húsinu og í hana
eru skráðar upplýsingar um við-
hald sem húsfélagið stendur fyrir.
Eigandi eignar skráir upplýsingar
um viðhald sem hann stendur fyrir
í sinni íbúð í viðhaldsbók fasteignar
sinnar.
Viðhaldsbókin er stundum kölluð
húsbók með tilvísun í að húsbókin
inniheldur viðhaldsbók, símaskrá
og fleiri upplýsingar um fasteignina
eins og t.d. ástandsmat sem eigandi
getur fyllt út ef hann ætlar að setja
eignina sína í sölu. Það sýnir hans
mat á ástandi eignarinnar sem til-
vonandi kaupandi getur skoðað og
metið þegar hann kemur og skoðar
fasteignina. Það þarf ekki mikið til
að tengja viðhaldsbók valinnar eign-
ar við fasteignavef þ.a. áhugasamir
kaupendur viðkomandi fasteignar
geti skyggnst inn í hana ef eignin er
auglýst til sölu, skoðað valdar upp-
lýsingar sem notandi heimilar að
birtist, en sú tenging hefur enn sem
komið er ekki verið framkvæmd.
Húsbókin inniheldur einnig stutt
yfirlit sem notandi skráir um bygg-
ingarsögu eignarinnar.
Skráning og notkun er notendum
að kostnaðarlausu og á þeirra eigin
ábyrgð. Notandi býr til viðhaldsbók
Þurfti mamma endilega
að hringja þegar ég var
að láta renna í baðið?
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is / www.tryggingamidstodin.isFasteignatrygging TM
Dæmi um vatnstjón sem Fasteignatrygging TM bætir:
// Fasteignatrygging TM bætir tjónið þegar pípulagnir hússins
fara að leka, hvort sem um er að ræða vatnsleiðslur eða
frárennslislagnir.
// Ef vaskar og önnur hreinlætistæki heimilisins yfirfyllast og
flæða yfir, færðu tjónið bætt.
// Þú færð líka tjónið bætt þegar frysti- eða kæliskápur
heimilisins byrjar skyndilega að leka.
Dæmi um vatnstjón sem Fasteignatrygging TM
bætir ekki:
// Ef vatn berst inn í hús utan frá, t.d. vegna úrkomu eða
snjóbráðar, og veldur tjóni, færðu það ekki bætt.
// Tjón sem verður vegna stíflu í lögnum fyrir utan grunninn á
húsinu þínu færðu ekki bætt.
// Fasteignatrygging TM bætir ekki tjón sem rekja má til þess að
frárennslislögnin í grunni hússins gefur sig vegna aldurs eða
eðlilegs slits.
Við sumum spurningum fást bara engin svör.
Óhöpp henda okkur og við því er ekkert að gera.
En þú getur brugðist við strax með því að tryggja hjá tryggingarfélagi sem gefur þér skýr
svör og leggur áherslu á hraðvirkan frágang tjónamála.
Alltaf skal það koma okkur jafnmikið á óvart þegar blessað vatnið rennur aðra leið en því er
ætlað. Afleiðingin er tjón sem oft er ansi þungt fyrir budduna.
Fasteignatrygging TM er ekki flókinn hlutur og það tekur enga stund að ganga frá henni.
Fasteignatrygging TM veitir víðtæka vernd fyrir tjóni á fasteignum, t.d. af völdum vatns,
óve›urs e›a innbrota.
Það er góð regla að lesa vel tryggingaskilmálana, þeir eru sá grundvöllur sem samskipti þín og TM byggjast á. Hringdu í síma 515 2000 eða farðu á www.tryggingamidstodin.is og fáðu skýr svör.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
M
I
28
60
5
1
1/
20
05
viðhald húsa 17Helgin 6.-8. maí 2011
Viðhaldsbók Skipulagning grundvallaratriði
Framkvæmdir á heimilum
Tvær skjámyndir teknar af vefnum. Önnur sýnir lista yfir viðhaldsverk eignar en
hinn lista yfir fagmenn sem notendur mæla með.
Viðhaldsbók er fyrst og fremst hagnýt við allar framkvæmdir en auk þess getur hún verið skemmtileg
lesning hvort sem flett er upp eigin framkvæmd eða fyrri eiganda íbúðar eða húss.
fyrir eignina sína og skráir síðan í
hana upplýsingar um viðhaldsverk,
efni sem eru notuð og fleira sem á
við hverju sinni.
Viðhaldsbókin er þannig upp-
byggð að henni tengist símaskrá þar
sem fasteignaeigandi skráir nafn og
símanúmer fagmanns sem vinnur
fyrir hann. Þegar faseignaeigandi
skráir viðhaldsverk í viðhaldsbók
getur hann gefið viðkomandi fag-
manni einkunn á bilinu 0 – 5. Aðeins
ir þar upplýsingar um sig sem allir
notendur vefsins geta skoðað. Þegar
fasteignaeigandi þarf á fagmanni að
halda getur hann annað hvort leit-
að að fagmanni sem aðrir eigendur
mæla með af listanum „Finna fag-
mann“ eða leitað beint í verkbók fag-
mannsins. Þegar fram líða stundir
ættu fagmenn einnig að geta skráð