Fréttatíminn - 06.05.2011, Blaðsíða 6
GOLFKORTIÐ
FRÍTT
MEÐ ÁRSÁSKRIFT
GOLFKORTIÐ VEITIR
40% AFSLÁTT
AF GOLFVÖLLUM UMHVERFIS ÍSLAND:
FERÐAÁVÍSUN FRÁ ÚRVAL - ÚTSÝN
40% FLEIRI BOLTAR ÞEGAR
KEYPT ER BOLTAKORT Í BÁSUM
20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM
VÖRUM HJÁ HOLE IN ONE
GOLFKLÚBBUR VESTMANNAEYJA
GOLFKLÚBBUR HELLU
GOLFKLÚBBUR SUÐURNESJA
GOLFKLÚBBURINN KIÐJABERG
GOLFKLÚBBUR BAKKAKOTS
GOLFKLÚBBUR ÞORLÁKSHAFNAR
GOLFKLÚBBURINN HÚSAFELLI
GOLFKLÚBBURINN ÞVERÁ
GOLFKLÚBBURINN GEYSIR
GOLFKLÚBBURINN FLÚÐIR
GOLFKLÚBBUR HVERAGERÐIS
GOLFKLÚBBUR SANDGERÐIS
GOLFKLÚBBUR BORGARNESS
GOLFKLÚBBURINN GLANNI
GOLFKLÚBBUR SAUÐÁRKRÓKS
GOLFKLÚBBURINN MOSTRI
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ
Á SKJARGOLF.IS
A thafnamaðurinn Heiðar Már Guðjónsson hef-
ur stefnt Reyni Trausta-
syni, ritstjóra DV, vegna
leiðara sem ritstjórinn
skrifaði 26. nóvember
á síðasta ári. Fer hann
fram á að leiðarinn í
heild sinni verði dæmdur
dauður og ómerkur og
vill fá eina milljón króna í
miskabætur. Þessi stefna
bætist við aðra stefnu
Heiðars Más á hendur
starfsmönnum DV en
hann hafði áður stefnt
Reyni og meðritstjóra hans, Jóni Trausta Reynis-
syni, sem og fréttastjóranum Inga Frey Vil-
hjálmssyni, vegna umfjöllunar blaðsins um meinta
stöðutöku Heiðars Más gegn íslensku krónunni í
aðdraganda hrunsins 2008.
Samkvæmt stefnunni sem Fréttatíminn hefur
undir höndum telur Heiðar Már að skrif Reynis
vegi að æru hans að tilefnislausu auk þess sem
aðdróttanir um lögbrot geti ekki fengið að standa
óáreittar. Birgir Tjörvi Pétursson, lögmaður
Heiðars Más, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir
því var leitað.
Reynir Traustason, ritstjóri DV, gefur ekki mikið
fyrir þessa stefnu í samtali við Fréttatímann og hót-
ar gagnstefnu á hendur Heiðari Má vegna óhróðurs
í garð blaðsins og þeirra sem þar starfa.
„Þessi stefna lýsir heift þessa manns. Honum
nægir ekki að stefna mér einu sinni heldur er það
nú í annað sinn. Að þessu sinni vegna skoðana
minna. Ég hef metið Heiðar Má sem dindilmenni
og hyggst standa við það álit mitt fyrir dómi. Það
fær enginn mannlegur máttur mig til að skipta
um skoðun í þeim efnum. Það er dálítið skondið
að bloggarinn Bubbi Morthens kallaði Heiðar
hiklaust krónuníðing. Heiðar fer ekki í mál við hann
vegna þess en stefnir leiðarahöfundi DV sem þó
komst að þeirri niðurstöðu að aðrir hefðu reynst
krónunni skeinuhættari en hann,“ segir Reynir og
bætir við að hann og hans fólk muni mæta honum
af fullri hörku fyrir dómi.
Fjölmörg mál hafa hrannst upp á hendur DV og
starfsmönnum blaðsins á undanförnum mánuðum.
Eins og Fréttatíminn greindi frá eru tíu meiðyrða-
mál tengd blaðinu að velkjast um í kerfinu á mis-
munandi dómstigum. Spurður um það segir Reynir
að það sé í tísku nú um stundir hjá skrúðkrimmum
og ýmsum vafasömum einstaklingum að draga fjöl-
miðlafólk og aðra fyrir dómstóla.
„Þetta er líklega gert í þeim tilgangi að knésetja
okkur og aðra sem fjalla um útrásarvíkinga og aðra
slíka. Við sjáum líka að forystumenn Hells Angels
eru að stefna yfirvöldum á Íslandi. Við erum þó
ekki að kljást við þann hóp manna. Það er margur
svartur sauðurinn að berjast fyrir dómstólum,“
segir Reynir. oskar@frettatiminn.is
Heiðar Már
stefnir Reyni
Traustasyni
Vill fá milljón frá ritstjóra vegna leiðara sem hann
skrifaði í DV í nóvember í fyrra.
dómsmál meiðyrðAmál
Heiðar Már Guðjónsson
vill heilan leiðara Reynis
Traustasonar dæmdan
dauðan og ómerkan.
Ljósmynd/Hari
Ef leiðarinn í heild
fæst ekki dæmdur
dauður og ómerkur
vill Heiðar Már fá
eftirfarandi ummæli
dæmd dauða og
ómerk:
a) „Ekkert í fortíð hans
bendir til þess að hann
hafi auðgast með þeim
hætti að hagsmunir
hans og þjóðarinnar
fari saman, þvert á
móti.“
b) „Gróði hans er, eins
og margra annarra
útrásarvíkinga, reistur
á braski og skilur fátt
eftir sig annað en
sviðna jörð.“
c) „Heiðar Már Guð-
jónsson er af þeirri gerð
nýríkra manna sem
ofmetur sjálfan sig og
upphefur.“
d) „Seðlabanki, Fjár-
málaeftirlitið og lög-
reglan verða að sam-
einast um að svipta
hulunni af fortíð hans
með það fyrir augum
að skera úr um sekt
hans þótt siðleysið liggi
fyrir.“
e) „Skertur af viti krefst
hann þess að opinber
rannsókn fari fram á
tengslum DV og Seðla-
bankans sem leitt hafi
til þess að upplýst var
um þær grunsemdir
bankans að hann væri
brotamaður.“
f) „Fæstir botna í
því hvað er að gerast
í höfðinu á þessum
manni. Kjökur og
kveinstafir útrásarvík-
ingsins bera vott um
siðblindu.“
g) „Peningarnir sem
hann græddi gera það
að verkum eins og
alþekkt er að dindil-
mennið álítur sig vera
stórmenni.“
h) „Megi gæfa ís-
lenskrar þjóðar vera sú
að braskarinn finni sér
viðurværi í útlöndum
og snúi ekki til baka.“
Reynir
Traustason er
kominn með
tvær stefnur
frá Heiðari Má
Guðjónssyni og
hótar að gagn-
stefna honum.
Ljósmynd/Hari
Helgin 6.-8. maí 2011