Fréttatíminn - 06.05.2011, Blaðsíða 16
S tjórnarmenn fyrirtækja taka ábyrgð sína tvímælalaust alvarlegar og af meiri festu en fyrir efnahagshrunið hér
á landi haustið 2008. Nýjar áherslur
kalla á nýtt verklag enda þurfa
stjórnarmenn að hafa góða yfirsýn
yfir starfsemi félagsins sem þeim
er falið að stýra. Ýmsar spurningar
vöknuðu um stjórnarhætti sem við-
gengust í íslensku atvinnulífi og
viðskiptasiðferði hefur í mörgum til-
vikum verið dregið í efa. Samfélagið
kallar á breytt vinnulag hjá félögum
og að stjórnarmenn og stjórnendur
axli ábyrgð á gerðum sínum.
Úttekt á stjórnarháttum
fyrirtækja
Viðskiptaráð hefur á undanförnum
vikum ýtt úr vör úttekt á stjórnar-
háttum fyrirtækja. Hún er unnin af
Rannsóknarmiðstöð um stjórnar-
hætti við Háskóla Íslands en að ferl-
inu koma jafnframt Samtök atvinnu-
lífsins og Kauphöllin. Verkefnið er
hluti af vinnu þessara aðila á sviði
góðra stjórnarhátta en að mati Við-
skiptaráðs dugar útgáfa leiðbeininga
ekki ein og sér. Síðustu tvö ár hefur
áherslan því fyrst og fremst verið
lögð á markvissa eftirfylgni meðal
fyrirtækja.
Þeim fyrirtækjum sem standast
matsferli, að mati Rannsóknarmið-
stöðvar um stjórnarhætti, verður
veitt viðurkenning sem þau geta
notað í starfi sínu í eitt ár frá veitingu
hennar. Fyrirtækin standa sjálf
straum af kostnaði rannsóknarmið-
stöðvarinnar og þess ráðgjafarfyrir-
tækis sem þau ráða til verksins.
Handbókin er verkfæri fyrir
stjórnarmenn
Þá hefur KPMG gefið út Hand-
bók stjórnarmanna í samstarfi við
Landssamtök lífeyrissjóða, Samtök
atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrir-
tækja og Viðskiptaráð Íslands. Hand-
bókin tekur mið af leiðbeiningum
um stjórnarhætti fyrirtækja sem
Viðskiptaráð, Kauphöllin og Sam-
tök atvinnulífsins gáfu út 2009. Með
samantekt handbókarinnar er á ein-
um stað yfirlit yfir hlutverk, ábyrgð
og skyldur stjórnarmanna.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir, lög-
fræðingur á fyrirtækjasviði KPMG,
segir að handbók stjórnarmanna hafi
verið gefin út í október síðastliðnum.
Hún sé afrakstur margra mánaða
vinnu. „Ástæða þess að við gáfum út
þessa bók er að svona verkfæri fyrir
stjórnarmenn hefur ekki verið til hér
á landi. Þetta hefur verið út um allt,
lög og leiðbeiningar um stjórnar-
hætti og alls konar sérlög fyrir
stjórnarmenn hjá eftirlitsskyldum
fyrirtækjum sem heyra undir Fjár-
málaeftirlitið. Við fundum það, sér-
staklega í kjölfar efnahagshrunsins,
að stjórnarmenn og framkvæmda-
stjórar fyrirtækja leituðu til okkar
til að fá leiðbeiningar. Þeir vildu vita
hvað væri rétt að gera, hvenær væri
rétt að grípa til aðgerða auk þess að
fara fram á skilgreiningu valdheim-
ilda, þ.e. hvenær framkvæmdastjóri á
að stoppa og stjórn að taka við.
Hugsi um ábyrgðina
Við höfum aðstoðað félög vegna
stjórnarhátta, tekið þá út og skoðað
t.d. hvort stjórn starfi í samræmi við
starfshætti stjórnar. Nú ber öllum
Svona verk-
færi fyrir
stjórnar-
menn hefur
ekki verið
til hér á
landi.
Vitundarvakning eftir hrunið
Fyrirtæki sem standast matsferli Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands fá viðurkenningu. Handbók stjórnarmanna hefur verið gefin út af
KPMG. Samfélagið kallar á breytt vinnulag og að stjórnarmenn axli ábyrgð á gerðum sínum. Jónas Haraldsson kannar bætta stjórarhætti.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir, lögfræðingur á fyrirtækjasviði KPMG.
„Við viljum fá staðfestingu á að
okkar stjórnarhættir séu í lagi,“
segir Sigurður St. Arnalds,
stjórnarformaður verkfræðistof-
unnar Mannvits. „Ef við getum
gert eitthvað betur en við gerum
í dag viljum við gjarna fá ábend-
ingar þar um. Mannvit vill vera
fyrirmyndarfyrirtæki. Það er
einkafyrirtæki og eignarhaldið
er að hluta til hjá starfsmönnum.
Hjá Mannviti eru um 400 starfs-
menn. Þar af eru um 130, eða
um þriðjungur, sem eiga hlut í
fyrirtækinu. Stjórnin ber mikla
ábyrgð gagnvart þessum með-
eigendum sem jafnframt eru
starfsmenn.
Við erum í verkfræðiráðgjöf.
Þeir sem eru í stjórninni eru
tæknimenn en auðvitað lesum
við okkur til um stjórnarstörf,
ábyrgð og stjórnarhætti. Þá
fáum við ráðgjöf frá lögfræði-
ráðunauti og endurskoðend-
unum, KPMG, þ.e. leiðbeiningar
um hvernig standa á að hlut-
unum, viðskipta- og lagalega.
Hlutverk stjórnar reynum við
að uppfylla; hvernig boðað er til
stjórnarfunda, séð um utanum-
hald og ákvarðanatökur, þ.e. að
rétt sé farið að hlutunum. Með
þessari yfirferð og vottun erum
við að kanna hvort rétt sé staðið
að því sem við erum að gera, því
það er það sem við viljum.“
jonas@frettatiminn.is
Stjórnin
ber mikla
ábyrgð.
Viljum staðfestingu á að
stjórnarhættir okkar séu í lagi
Með þessari yfirferð og vottun erum við að kanna hvort rétt sé staðið að
því sem við erum að gera.
Sigurður St.
Arnalds, stjórnar-
formaður Mannvits.
„Við fórum í þetta fyrst og fremst
vegna þess að við leggjum mikið
upp úr því að hafa stjórnarhætti í
fyrirtækinu eins og best verður á
kosið,“ segir Ingimundur Sigur-
pálsson, forstjóri Íslandspósts.
„Það var í raun KPMG sem bauð
upp á þetta. Okkur fannst það
mjög góð viðbót við annað sem
við höfum verið með undanfarin
ár, m.a. kynningu Háskólans í
Reykjavík fyrir um tveimur árum.
Með úttektinni nú er möguleiki
að fá stjórnarhættina vottaða.
Almennt er það til framdráttar
að vera með vottun á vinnulagi,
hvort sem það er í framleiðsluferli
eða stjórnun. Aðalatriðið er að fá
staðfestingu á því að það verklag
sem við höfum tileinkað okkur
sé í samræmi við það besta sem
þekkist. Metnaður okkar felst í
því. Við höfum safnað saman upp-
lýsingum fyrir KPMG sem þeir
vinna úr. Annar fasinn er svo að
taka ákvörðun um vottunina.
Það er gott að fá utanaðkom-
andi aðila til að leggja mat á
stjórnarhættina.
jonas@frettatiminn.is
Góð við-
bót við
annað.
Gott að fá utanaðkomandi til
að leggja mat á stjórnarhætti
Almennt til framdráttar að vera með vottun á vinnulagi.
Ingimundur Sigur-
pálsson, forstjóri
Íslandspósts.
Finnur Oddsson,
framkvæmdastjóri
Viðskiptaráðs. Framhald á næstu opnu
16 úttekt Helgin 6.-8. maí 2011