Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.05.2011, Blaðsíða 51

Fréttatíminn - 06.05.2011, Blaðsíða 51
www.myndlistaskolinn.is MÓTUN leir og tengd efni Diplómanám 4 annir Ígildi 120 ECTS eininga til BA náms hjá erlendum samstarfsskólum UMSÓKNARFRESTUR TIL 30. maí Myndlista- og hönnunarsvið Fornám 2 annir Undirbúningur fyrir nám á háskólastigi í arkitektúr, hönnun og myndlist. UMSÓKNARFRESTUR TIL 23. maí – Lifið heil www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 5 46 67 0 4/ 11Lægra verð í Lyfju 15% afsláttur í maí á öllum stærðum af Nicotinell IceMint Dæmi: 2 mg, 204 stk. með afslætti 5.516 kr.  skoðun Umferð gömlu mannanna Í slenski boltinn fór af stað um síðustu helgi með látum. Knatt- spyrnan, sem boðið var upp á, var ekki sú áferðarfallegasta en á þessum árstíma er sennilega sann- gjarnt að taka viljann fyrir verkið. Meira fór fyrir baráttunni en brasil- ískum bílastæðabolta. Enda vell- irnir ósléttir. Það sem stendur upp úr í fyrstu umferðinni er sennilega frammistaða gömlu mannanna – reynsluboltanna sem drógu vagn- inn fyrir sín lið þegar mest á reyndi. Jóhann Birnir Guðmundsson, orðinn 34 ára, kom af bekknum hjá Keflavík og sneri jafntefli gegn Stjörnunni í unninn leik með tveim- ur mörkum. Tryggvi Guðmunds- son skoraði sitt 117. mark í efstu deild þegar hann tryggði ÍBV sigur á Fram eftir að venjulegum leik- tíma var lokið. Og Helgi Sigurðs- son kom sínum mönnum í Víkingi á bragðið í nýliðaslagnum á móti Þór. Bæði Tryggvi og Helgi verða 37 ára á þessu ári. Annar er gráhærður og hinn hefur gefist upp í vonlausri baráttunni og krúnurakað sig. Burt- séð frá háralit og hárleysi virðast þessir andans menn ekki eldast sem knattspyrnumenn. Vissulega eru þeir ekki jafnfljótir og þeir voru en það sem þeir hafa misst af hraða hafa þeir öðlast í reynslu. Reynslu sem er ekki tínd upp úr fjörugrjótinu eins og ekki ómerk- ari maður en Guðjón Þórðarson sagði alltaf þegar hann sannfærði menn um að James Bett, yndisleg- ur Skoti í yfirvigt, væri frábær kaup fyrir KR árið 1994. Helgi og Tryggvi eru leiðtogar sinna liða, lifandi dæmi þess að ástríðan getur haldið mönnum ungum langt umfram almanaks- árin. Frábærar fyrirmyndir. Og það er eitthvað sem segir mér að fyrsta umferðin verði ekki eina umferð- in þar sem þessir tveir toppmenn koma sínum liðum til bjargar. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is HUNDRAÐASTA ÍSLANDSMÓTIÐ Fram-ÞÓr, lau kl. 16 Bæði lið töpuðu leikjum sínum í fyrstu umferð. Fram beið lægri hlut fyrir ÍBV þar sem sigurmarkið kom í uppbótartíma. Lítið var hægt að dæma Framara af spilamennsk- unni gegn ÍBV þar sem mikill vindur setti svip sinn á leikinn. Ljóst er þó að brotthvarf markvarðarins Hannesar Þórs Halldórs- sonar þarf ekki að valda þeim áhyggjum. Hinn ungi og efnilegi Ögmundur kristins- son stóð vaktina frábærlega og vilja margir knattspyrnuspekingar sjá drenginn í U-21 árs landsliðinu. Nýliðar Þórs töpuðu nýliðaslagnum gegn Víkingi í Víkinni. Liðið er ungt og Gunnar már Guðmundsson var eini leikmaðurinn í byrjunarliðinu sem hafði áður spilað í efstu deild. Ef mið er tekið af fyrsta leiknum þarf Páll Viðar þjálfari helst að fá meiri ógn á síðasta þriðjungi vallarins. Helst er horft til Davids Diztl en hann var meiddur í fyrsta leik og verður tæpast klár í leikinn gegn Fram. Hinn ungi miðjumaður atli Sigur- jónsson lofar virkilega góðu. Hann er frábær spyrnumaður og þurfa Þórsarar nauðsynlega að nýta betur sendingar hans inn í teiginn. Ekkert vantar hins vegar upp á baráttuna hjá Þórsurum frekar en Frömurum og má búast við fjörugum leik í Laugardalnum. SPÁ: 2-0 fyrir Fram Stjarnan-VíkinGur lau kl. 16 Stjörnumenn urðu fyrir mótlæti í fyrstu umferðinni í Keflavík þegar klárri vítaspyrnu á Keflvíkinga var sleppt í stöðunni 2-2. Eftir það datt botninn úr leik liðsins. Það verður því verkefni Bjarna jóhannssonar þjálfara að rífa liðið upp úr svekkelsi mánudagsins. ingvar jónsson, markvörður liðsins, var meiddur í fyrsta leik en kemur inn. Stjarnan þarf á toppleik að halda frá lykilmönnum sínum í sóknarleiknum, Garðari jóhannes- syni og Halldóri Orra Björnssyni. Víkingar treysta á að gömlu mennirnir Helgi Sigurðsson og Björgólfur takefusa dragi vagninn sóknarlega líkt og þeir gerðu gegn Þór. Mun meira þarf að koma út úr finnska miðjumanninum Denis abdulahi heldur en gegn Þór ef félagið ætlar sér að ná háleitum markmiðum sumarsins. SPÁ: 1-1 íBV-Fylkir lau kl. 16 Eyjamenn byrjuðu með sigri og fylgdu þar með eftir frábæru gengi á síðasta sumri. Þeir eru erfiðir heim að sækja og með tryggva Guðmundsson í toppformi verða þeir án nokkurs vafa á meðal efstu liða. Fylkismenn þurfa að sanna það fyrir sjálfum sér og öðrum að þeir geti spilað meira en einn góðan hálfleik og geti komið til baka eftir að hafa fengið á sig mark. Frábærir taktar og yfirburðir í fyrri hálfleik ásamt algjöru hruni í síðari hálfleik hafa verið á boðstólum í undanförnum leikjum. Fylkis- liðið er vel mannað en þarf að halda haus. Einn góður hálfleikur nægir ekki til að vinna fótboltaleiki. SPÁ: 2-1 fyrir ÍBV GrinDaVík-Valur Sun kl. 19.15 Grindvíkingar unnu eftirminnilegan sigur á Fylkismönnum í fyrstu umferðinni. Gengi Grindvíkinga mun standa og falla með því að einhver framherja liðsins stígi upp og fylli skó Gilles Ondo, markahæsta leikmanns deildarinnar í fyrra, og hvort liðið hefur kjark til að spila fótbolta líkt og það gerði í síðari hálfleik gegn Fylki en ekki í þeim fyrri þar sem ekkert spil var í liðinu. Valsmenn mæta fullir sjálfstrausts eftir sigur á FH í fyrstu umferð. Allir leikmenn liðsins eru heilir og það verður gaman að sjá hvort kristjáni Guðmundssyni þjálfara tekst að halda mönnum á jörðinni eftir sigurinn á FH. SPÁ: 1-2 fyrir Val kr-keFlaVík Sun kl. 19.15 KR-ingar unnu mikilvægan sigur á sjálfum Íslandsmeisturunum í fyrstu umferð. Góðu fréttirnar fyrir KR eru að Bjarni Guðjónsson er í miklu betra formi en í fyrra og kjartan Henry Finnbogason virðist hafa þroskast mikið. Lið Keflavíkur er mikið breytt frá því í fyrra. Liðið sýndi mikinn karakter gegn Stjörnunni og þarf að finna hann aftur, ætli það sér að vinna á KR-vellinum. Það væri ótrúlegt ef jóhann B. Guðmundsson yrði ekki í byrjunarliðinu eftir innkomu sína gegn Stjörnunni. SPÁ: 3-1 fyrir KR FH-BreiðaBlik Sun kl. 19.15 Stórleikur umferðarinnar. Bæði lið töpuðu í fyrstu umferð. FH er með best mannaða liðið í deildinni en eins og Heimir Guðjónsson, þjálfari liðsins, benti á eftir Valsleikinn þarf að mæta til leiks með rétt hugarfar. Það vott- aði fyrir vanmati í Valsleiknum og því þarf Heimir að eyða fyrir leikinn gegn Breiðabliki. Á góðum degi eiga fá lið roð í FH-liðið. Breiðablik glímir við brotthvarf Alfreðs Finnbogasonar og leikbann markvarðarins snjalla, ingvars kale. Ólafs kristjánssonar bíður erfitt verkefni við að verja titilinn með sama mannskap og í fyrra fyrir utan besta leikmann deildarinnar sem er horfinn á braut. SPÁ: 3-2 fyrir FH  fótbolti PePsi-deildin Heil umferð um helgina Kjartan Henry Finnbogason skoraði tvö mörk í fyrstu umferðinni gegn Breiða- bliki. Heil umferð fer fram í Pepsi-deild karla um helgina. Stórleikur um- ferðarinnar verður spilaður í Kaplakrika þar sem FH tekur á móti Íslandsmeisturum Breiðabliks. FH, sem flestir hafa spáð Íslands- meistaratitli í sumar, tapaði fyrsta leik sínum gegn Val, 1-0, og Blikar hófu einnig titilvörn sína með tapi, gegn KR í Kópavoginum. Fréttatíminn spáir í spilin fyrir umferðina. Lj ós m yn d/ Te it ur fótbolti 31 Helgin 6.-8. maí 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.