Fréttatíminn - 06.05.2011, Blaðsíða 42
12 viðhald húsa Helgin 6.-8. maí 2011
AÐRAR LAUSNIR
VIÐGERÐAEFNI
FLOTEFNI
Fáðu nánari upplýsingar:
4400500
www.steypustodin.is
Gott
viðhald
Ein besta fjárfesting sem völ er á í dag.
PICSEAL yfirborðsefni
Fyrir steypta fleti eins og
hellur og mynstursteypu.
Efnið lokar yfirborðinu,
ver fyrir vatni, salti og sól.
Hindrar að olía og tyggi-
gúmmí nái að festast við.
STO útiflot
Sementsbundið flotefni
sem er ætlað til notkunar
utanhúss eða í iðnaðar-
rými. Má leggja í þykktum
frá 5 - 50 mm.
Conplan KF þurrefni
Sementsbundinn flot-
múr til afréttingar á
steyptum gólfum.
Má leggja í þykktum frá
3 - 30 mm í hverri
umferð.
Fasademörtel SI
Sérútbúinn límingarmúr
til steiningar á steypta
veggi og múraða fleti.
Hentar einnig til minni-
háttar viðgerðar. Fæst í
nokkrum litum. Mjög
góð viðloðun.
Redidrep 45 RSF
Frostþolin hraðmúr-
blanda til viðgerðar á
steinsteypu. Blandan er
trefjarbundin með
mikla og góða viðloðun.
Mjög auðveld í vinnslu.
Megafix flísalím
Hágæða úti og inni lím.
Öllum vörum fylgir efnis- og verklýsing
Komum á staðinn og gerum tilboð
þér að kostnaðarlausu, erum búnir
að vera í sólpallasmíði í 18 ár,
erum snöggir og vöndum vinnu
okkar. upplýsingar veittar í síma
697-9660. Ólafur
www.betripallar.com
SÓLPALLAR
S umarið er tími útiveru. Til að njóta sem best veðurblíðunnar heima við er æ algengara að fólk komi sér upp
svokölluðum sólpöllum í görðum sínum. Til
að taka af mesta garrann og í þeim tilgangi
að njóta aukins friðar fylgir smíði sólpalla
gjarnan uppsetning skjólveggja umhverfis
pallinn. Að mörgu getur verið að hyggja
áður en ráðist er í smíði sólpalls og skjól-
veggja. Til að framkvæmdir séu löglegar
getur bæði þurft að leita samþykkis bygg-
ingaryfirvalda og meðlóðarhafa.
Samþykki meðlóðarhafa
Algengt er að fleiri hús eða húshlutar standi
á sameiginlegri lóð sem telst í óskiptri sam-
eign allra húsanna eða húshlutanna. Hér
undir geta t.d. fallið parhús, raðhúsalengjur,
fjölbýlishús með mörgum stigagöngum og
jafnvel hús sem ekki eru sambyggð öðrum
húsum en tilheyra sömu lóð. Sé lóð í sam-
eign hefur það þá þýðingu að einstökum
eigendum hennar verður ekki fenginn auk-
inn og sérstakur réttur til hagnýtingar lóðar
eða lóðarhluta umfram aðra eigendur nema
þeir allir ljái því samþykki. Uppsetning
palls og/eða skjólveggja felur í sér aukinn
og sérstakan rétt eins umfram aðra. Þannig
getur t.d. eigandi á jarðhæð í fjölbýlishúsi
almennt ekki reist sólpall eða girt sig af án
þess að samþykki annarra eigenda hússins
liggi fyrir.
Ef eigandi, sem hefur hug á því að leggja
sólpall, er ekki öruggur á hverjir eru með-
lóðarhafar hans getur hann gengið úr
skugga um það með því að kanna eigna-
skiptayfirlýsingu eða lóðarsamning sem
þinglýst er á fasteign hans. Allt of algengt
er að sá sem framkvæmir gangi of skammt í
þessum efnum, leiti t.d. einungis samþykkis
í sínum stigagangi eða aðeins þeirra sem
eiga aðliggjandi íbúðir í húsi en síðar komi
í ljós þegar mannvirki eru risin að fleiri áttu
réttilega að eiga hlut að máli.
Þrátt fyrir að lóð sé sameiginleg er
nokkuð um það, einkum í nýrri húsum,
að ákveðnir hlutar lóðarinnar séu í eigna-
skiptayfirlýsingu eða sérstöku samkomu-
lagi eigenda gerðir að svokölluðum séraf-
notaflötum einstakra eigenda. Í því felst að
eiganda er veittur einkaréttur til afnota og
umráða yfir þeim hluta lóðarinnar sem felur
þá jafnframt í sér kvöð á aðra eigendur að
lóðinni að virða þennan einkarétt. Um leið
tekur sérafnotahafi á sig stofn-, viðhalds- og
umhirðukostnað við flötinn.
Þótt eiganda sé þannig ýmsar ráðstaf-
anir heimilar á sérafnotafleti sínum þýðir
það ekki að hann hafi frjálsar hendur um
hvaðeina þar. Verið getur að hann þurfi
að leita samþykkis a.m.k. einfalds meiri-
hluta eigenda á húsfundi áður en ráðist er í
smíði palls og skjólveggja. Ef samþykktar
teikningar hússins og byggingarlýsing gera
ráð fyrir palli og/eða skjólveggjum verður
að telja að eigandi geti ráðist í slíkar fram-
kvæmdir í samræmi við teikningar eða
byggingarlýsingu án sérstaks samþykkis.
Ef lýsing sérafnotaréttarins mælir hins
vegar ekki fyrir um þessa hluti og ekki er
gert ráð fyrir slíkum mannvirkjum á sam-
þykktum teikningum verður sérafnotahafi
að bera fyrirhugaðar framkvæmdir undir
sameiginlegan fund eigenda enda geta
slíkar framkvæmdir haft áhrif á heildarútlit
húss og lóðar, en ákvörðunarvald um útlit
utandyra er í höndum húsfundar sam-
kvæmt fjöleignarhúsalögum. Stærð og gerð
umræddra mannvirkja eru síðan ráðandi
sjónarmið við mat á því hvort samþykkis
einfalds meirihluta eigenda eða fleiri er
áskilið samkvæmt ákvæðum fjöleignar-
húsalaga.
Samþykki byggingaryfirvalda
Samkvæmt skipulags- og byggingarlögum
er meginreglan sú að byggingarleyfi þurfi
fyrir öllum húsbyggingum og breytingum
á þeim ásamt jarðföstum framkvæmdum á
lóð. Þá þarf að leita samþykkis byggingar-
yfirvalda fyrir gerð á frágangi girðingar á
lóð ef hún er hærri en 1,80 m eða nær lóðar-
mörkum en svar hæð hennar. Byggingar-
leyfi getur því þurft fyrir palli á lóð og/eða
skjólveggjum umhverfis hann án þess að
það sé fortakslaust skilyrði í öllum tilvikum.
Ef sýnilegt er að stærð og gerð umræddra
mannvirkja hefur áhrif á svipmót húss og að
ósamræmi verði í frágangi lóðar er vissara
fyrir eigendur a.m.k. að leita sér upplýsinga
hvort yfirvöld telji framkvæmdina bygg-
ingarleyfisskylda.
Sólpallar
Að mörgu að hyggja áður
en sólpallurinn er byggður
Til að njóta sem best veðurblíðunnar heima við er æ algengara að fólk komi sér upp sólpöllum og
skjólgirðingum í görðum sínum.
Leita getur
þurft sam-
þykkis
byggingar-
yfirvalda og
meðlóðar-
hafa.
Sólpallur og skjólgirðing er draumur margra en
til þess að framkvæmdir séu löglegar getur bæði
þurft að leita samþykkis byggingaryfirvalda og
meðlóðarhafa.
M iðvikudaginn 6. apríl undirrituðu Gísli Örn Bjarnhéðinsson, fram-kvæmdastjóri Búseta, og Victor
Berg Guðmundsson, framkvæmdastjóri HGL,
samstarfssamning um fyrirbyggjandi viðhald
á fasteignum Búseta með hreinsun og fóðrun
neysluvatnslagna með LSE-System. HGL ehf.
er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í fyrir-
byggjandi viðhaldi neysluvatnslagna með LSE-
System sem er einstök tækni á heimsvísu. 25
ára reynsla er komin á þessa margviðurkenndu
tækni þar sem komið er í veg fyrir áframhald-
andi óþægindi, tæringu, ryðútfellingar, stíflu,
leka og síðast en ekki síst óþarfa stóraukinn
viðhaldskostnað.
Búseti undirritar samstarfs-
samning við HGL ehf.
Gísli Örn Bjarnhéðinsson, framkvæmdastjóri Búseta og
Victor Berg Guðmundsson, framkvæmdastjóri HGL.