Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.05.2011, Page 47

Fréttatíminn - 06.05.2011, Page 47
upplýsingar um verk frá sínum sjón- arhóli og tengt verkið við viðhalds- bók viðkomandi eignar. Ýmislegt fleira er að finna á vefn- um, svo sem fróðleik, fundargerðar- form og fleira gagnlegt. Þóra Jónsdóttir vbok@vbok.is þeir fagmenn sem fá einkunnina 4 eða 5 birtast á listanum „Finna fag- mann“. Aðrir fasteignaeigendur sem þurfa á fagmanni að halda geta flett upp í listanum og hringt í viðkom- andi fagmann. Verkbók fagmanns Fagmönnum stendur til boða að skrá upplýsingar um sig og verk sín í verkbók fagmannsins. Fagmaður- inn skráir sig inn á vefinn og skrá- Þ egar ráðist er í framkvæmdir á heimilum og húsum, hvort sem þær eru stórar eða smá- ar, skiptir máli að skipuleggja þær vel. Það er betra að mála stofuna áður en parketið er lagt ef á annað borð á að gera hvoru tveggja og betra að huga að pípulögnum á bað- herbergi áður en flísar eru lagðar. Ef skipta á um þakjárn á fjölbýlishúsi er nauðsynlegt að halda húsfund með góðum fyrirvara. Meiri breytingar á þaki þarf jafnvel að láta teikna og fá samþykktar af íbúum áður en sótt er um leyfi til byggingarfulltrúa. Vistvænt efni Undanfarin ár hefur viðhorf til um- hverfisins tekið stakkaskiptun. Mun algengara er að fólk vilji nota vistvænt efni við framkvæmdir. Þá er skynsamlegt að velja efni sem auðveld eru í viðhaldi og sem eru endingargóð. Ef um er að ræða sambærileg byggingarefni er end- ingarbetra efnið umhverfisvænna en það sem endist skemur. Húseigendur, sem vilja bæta um- hverfið, hafa það að markmiði að nýta allt sem best. Það getur verið jafn skemmtileg glíma að breyta því sem fyrir er og að nýta það sem er til staðar í stað þess að fleygja öllu og kaupa nýtt. Við þær aðstæður væri ánægjulegt að geta flett upp í viðhaldsbók og séð hvernig staðið var að málum þegar það var unnið sem nú skal breytt. Viðhaldsbók er fyrst og fremst hagnýt við allar framkvæmdir en auk þess getur hún verið skemmtileg lesning hvort sem flett er upp eigin framkvæmd eða fyrri eiganda íbúðar eða húss. Minnið svíkur okkur óþægilega hratt og þeir sem þykjast muna halda oft bara að þeir muni rétt. Ef við búum okkur aftur á móti til við- haldsbók getum við hvenær sem er flett upp í henni og séð hvenær hlut- irnir voru gerðir, hver vann fyrir okkur og hvaða efni voru notuð og metið hvort tími sé kominn á nýtt viðhald. Viðhaldsbók eignar og húsfélags Viðhaldsbók sem einu sinni er búin til á www.vidhaldsbok.is fylgir við- komandi fasteign þótt hún skipti um eigendur. Húseigandi og félagar í húsfélögum geta fært viðhald á eign- um sínum til bókar með því að skrá sig og nota vefinn reglulega. Sérstök viðhaldsbók er búin til fyrir hverja íbúð. Ein sameiginleg viðhaldsbók er fyrir húsfélagið í húsinu og í hana eru skráðar upplýsingar um við- hald sem húsfélagið stendur fyrir. Eigandi eignar skráir upplýsingar um viðhald sem hann stendur fyrir í sinni íbúð í viðhaldsbók fasteignar sinnar. Viðhaldsbókin er stundum kölluð húsbók með tilvísun í að húsbókin inniheldur viðhaldsbók, símaskrá og fleiri upplýsingar um fasteignina eins og t.d. ástandsmat sem eigandi getur fyllt út ef hann ætlar að setja eignina sína í sölu. Það sýnir hans mat á ástandi eignarinnar sem til- vonandi kaupandi getur skoðað og metið þegar hann kemur og skoðar fasteignina. Það þarf ekki mikið til að tengja viðhaldsbók valinnar eign- ar við fasteignavef þ.a. áhugasamir kaupendur viðkomandi fasteignar geti skyggnst inn í hana ef eignin er auglýst til sölu, skoðað valdar upp- lýsingar sem notandi heimilar að birtist, en sú tenging hefur enn sem komið er ekki verið framkvæmd. Húsbókin inniheldur einnig stutt yfirlit sem notandi skráir um bygg- ingarsögu eignarinnar. Skráning og notkun er notendum að kostnaðarlausu og á þeirra eigin ábyrgð. Notandi býr til viðhaldsbók Þurfti mamma endilega að hringja þegar ég var að láta renna í baðið? TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is / www.tryggingamidstodin.isFasteignatrygging TM Dæmi um vatnstjón sem Fasteignatrygging TM bætir: // Fasteignatrygging TM bætir tjónið þegar pípulagnir hússins fara að leka, hvort sem um er að ræða vatnsleiðslur eða frárennslislagnir. // Ef vaskar og önnur hreinlætistæki heimilisins yfirfyllast og flæða yfir, færðu tjónið bætt. // Þú færð líka tjónið bætt þegar frysti- eða kæliskápur heimilisins byrjar skyndilega að leka. Dæmi um vatnstjón sem Fasteignatrygging TM bætir ekki: // Ef vatn berst inn í hús utan frá, t.d. vegna úrkomu eða snjóbráðar, og veldur tjóni, færðu það ekki bætt. // Tjón sem verður vegna stíflu í lögnum fyrir utan grunninn á húsinu þínu færðu ekki bætt. // Fasteignatrygging TM bætir ekki tjón sem rekja má til þess að frárennslislögnin í grunni hússins gefur sig vegna aldurs eða eðlilegs slits. Við sumum spurningum fást bara engin svör. Óhöpp henda okkur og við því er ekkert að gera. En þú getur brugðist við strax með því að tryggja hjá tryggingarfélagi sem gefur þér skýr svör og leggur áherslu á hraðvirkan frágang tjónamála. Alltaf skal það koma okkur jafnmikið á óvart þegar blessað vatnið rennur aðra leið en því er ætlað. Afleiðingin er tjón sem oft er ansi þungt fyrir budduna. Fasteignatrygging TM er ekki flókinn hlutur og það tekur enga stund að ganga frá henni. Fasteignatrygging TM veitir víðtæka vernd fyrir tjóni á fasteignum, t.d. af völdum vatns, óve›urs e›a innbrota. Það er góð regla að lesa vel tryggingaskilmálana, þeir eru sá grundvöllur sem samskipti þín og TM byggjast á. Hringdu í síma 515 2000 eða farðu á www.tryggingamidstodin.is og fáðu skýr svör. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T M I 28 60 5 1 1/ 20 05 viðhald húsa 17Helgin 6.-8. maí 2011  Viðhaldsbók Skipulagning grundvallaratriði Framkvæmdir á heimilum Tvær skjámyndir teknar af vefnum. Önnur sýnir lista yfir viðhaldsverk eignar en hinn lista yfir fagmenn sem notendur mæla með. Viðhaldsbók er fyrst og fremst hagnýt við allar framkvæmdir en auk þess getur hún verið skemmtileg lesning hvort sem flett er upp eigin framkvæmd eða fyrri eiganda íbúðar eða húss. fyrir eignina sína og skráir síðan í hana upplýsingar um viðhaldsverk, efni sem eru notuð og fleira sem á við hverju sinni. Viðhaldsbókin er þannig upp- byggð að henni tengist símaskrá þar sem fasteignaeigandi skráir nafn og símanúmer fagmanns sem vinnur fyrir hann. Þegar faseignaeigandi skráir viðhaldsverk í viðhaldsbók getur hann gefið viðkomandi fag- manni einkunn á bilinu 0 – 5. Aðeins ir þar upplýsingar um sig sem allir notendur vefsins geta skoðað. Þegar fasteignaeigandi þarf á fagmanni að halda getur hann annað hvort leit- að að fagmanni sem aðrir eigendur mæla með af listanum „Finna fag- mann“ eða leitað beint í verkbók fag- mannsins. Þegar fram líða stundir ættu fagmenn einnig að geta skráð

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.