Fréttatíminn - 13.05.2011, Síða 49
mittismálið,“ sagði ég og benti
konunni á að enn væri ég tiltölu-
lega grannur og fallegur í laginu.
„Ætli ég fari ekki nokkuð
nærri um það, minn kæri,“
sagði konan. „Má ég benda þér
á,“ bætti hún við, „að þegar við
hófum sambúð fyrir löngu var
buxnalengdin þín 34 tommur, rétt
eins og núna, en mittismálið 31
tomma. Þú varst eiginlega eins
og kústskaft.“
„Ég er nú fjögurra barna faðir,
einhvers staðar hlýtur slíkt að
sjást,“ sagði ég. Sú staðreynd virt-
ist ekki hafa mikil áhrif á konuna
þar sem hún stóð við rekkann og
fletti í gegnum buxnabunkana.
„Þú verður að prófa þessar,“ sagði
hún og rétti mér buxur. Lengdin
var að sönnu 34 en mittisnúm-
erið aðeins 33. „Ég finn engar
34x34,“ sagði konan. „Það getur
ekki verið, ég er í standard-stærð
glæsimenna, hoj, slank og vel-
voxen,“ sagði ég og sló um mig á
prentsmiðju-dönsku.
„Mátaðu þær,“ sagði konan og
gaf ekkert eftir. Ég hlýddi, fann
klefa, hengdi gömlu buxurnar
á snaga og brá mér í þær nýju,
34x33. Síddin var fullkomin en
verr gekk með mittið. Það var
sama hversu ákveðið ég dró
inn kviðinn, útilokað var að ná
strengnum saman. Eitthvað hafði
ég þroskast frá því að við hjónin
hófum sambúðina. Raunar sá ég
ekki að tomma til viðbótar hefði
breytt neinu.
„Þetta passar ekki,“ sagði ég
um leið og ég steig út úr klef-
anum. „Nei, mig grunaði það, en
það sakaði ekki að reyna,“ sagði
konan sem gert hafði þessa til-
raun á eiginmanni sínum, kúst-
skaftinu fyrrverandi. „Getur
það verið að þessi bjór sem ég
fékk mér í hádeginu hafi skipt
sköpum?“ sagði ég og gjóaði aug-
unum á konuna. „Þú veist hvernig
bjór sest á mann.“ Konan svaraði
þessi engu en rótaði áfram í
bunkanum.
„Það er svo undarlegt,“ sagði
hún, „að ég finn engar í réttri
stærð fyrir þig. Við verðum að
athuga þetta annars staðar.“
„Gleymum þessu í bili,“ sagði ég,
„förum út í sólina og gerum eitt-
hvað annað en að máta.“ Ég var
raunar til í annan bjór, fyrst við
vorum í fríi, og sá ekki að það
breytti neinu varðandi mittismál-
ið, svona úr því sem komið var.
Ég nefndi samt ekki við konuna
að mittisstærðin gæti hugsanlega
verið önnur en sú sem við vorum
að leita að, en það kemur víst í ljós
síðar – þegar við finnum 34x34.
handhægarumbúðir
gerir grillmat að hreinu lostæti!
EN
N
EM
M
/
SÍ
A
/ N
M
46
40
7
118 ja.is Símaskráin
Stórskemmtileg
útgáfuhátíð!
Útgáfuhátíð Símaskrárinnar er á morgun,
laugardag, í Smáralind kl. 14, fyrir framan
Hagkaup. Gillz sýnir sig, Gerplustelpurnar
verða að sjálfsögðu á svæðinu og árita
fyrstu eintökin.
Kíktu við og nældu þér í eintak af
Símaskránni sem er hrikalega mössuð
og stútfull af alls konar upplýsingum.
-er svarið