Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.06.2011, Page 8

Fréttatíminn - 17.06.2011, Page 8
TILBOÐ á 1 lítra Kókómjólk Nýjar og betri umbúðir! – FULLT HÚS ÆVINTÝRA REYKJAVÍK • AKUREYRI ellingsen.is grillum í sumar PIPA R\TBW A • SÍA • 111362 Grillflötur 450x600 mm 3 brennarar Fullt verð 84.500 kr. 14.083 kr. léttgreiðsla í 6 mán. GASGRILL ELLINGSEN Máttur krónunnar fremur lítill Gengi krónunnar hefur lækkað nokkuð á síðustu dögum og hefur hún ekki verið jafn veik gagnvart helstu viðskiptamynt- um síðan í lok maí á síðasta ári. Krónan er nú rúmlega 5% veikari en hún var um síðustu áramót. Á sama tímabili í fyrra styrktist krónan hins vegar um rúm 8% miðað við gengisvísitöluna. Að hluta til má rekja þessa þróun til veikingar á gengi evrunnar á þessum tíma en svo virðist sem máttur krónunnar sé fremur lítill um þessar mundir og þar með að krónan sé sjálf undir töluverðum lækkunarþrýstingi, að því er fram kemur hjá Greiningu Ís- landsbanka. Evran, sem vegur rúmlega 40% gengisvísitölunnar, kostar nú um rétt rúmar 166 krónur á innlendum millibankamarkaði en um síðustu áramót var evran á um 153 krónur. Dollarinn er á svipuðu róli og hann var um áramótin, um 116 krónur, en pundið hefur hækkað úr tæpum 180 krónum í 189 krónur. -jh Óbreyttir stýrivextir í takt við spár Stýrivextir Seðlabankans eru óbreyttir, samkvæmt ákvörðun peninga- stefnunefndar bankans á miðvikudag. Vextir á viðskipta- reikningum innlánsstofnana verða áfram 3,25%, hámarksvextir á 28 daga inn- stæðubréfum 4,0%, vextir á lánum gegn veði til sjö daga 4,25% og daglánavextir 5,25%. Ákvörðunin kom ekki á óvart, enda í takt við væntingar markaðarins og opinberar spár. Vaxtahækkun var þó ekki útilokuð enda hafa verðbóga og verðbólguvæntingar aukist að undanförnu og gengi krónunnar gefið nokkuð eftir. Nefndin segir að hugsanlega þurfi að auka aðhald peningastefnunnar á næstunni til þess að draga úr líkum á því að langtíma- verðbólguvæntingar aukist. - jh 2. október 2008 Lögmennirnir Ragn ar Aðalsteinsson og Sigríður Rut Júlíus­ dóttir óska eftir því við ríkissaksóknara að hafin verði opinber rannsókn á meintum lögbrotum við rannsókn Hafskips- málsins í kjölfar þess að félagið fór í þrot 1985. Er krafan lögð fram fyrir hönd fyrr- verandi forsvarsmanna Hafskips, Björgólfs Guðmundssonar, Páls Braga Kristjónssonar, Helgu Thomsen, ekkju Ragnars Kjartans­ sonar, Þórðar H. Hilmarssonar og Helga Magnússonar. Hin ætluðu, hartnær aldarfjóðungs gömlu, brot áttu að hafa verið framin af ýmsum þá- verandi opinberum starfsmönnum. Nafn- greindir sem hugsan- legir sakborningar í málinu eru Gunnlaugur Claessen, hæstaréttar- dómari og fyrrverandi ríkislögmaður, Hall­ varður Einvarðsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi rannsóknar- lögreglustjóri ríkisins, Markús Sigurbjörns­ son, hæstaréttardómari og fyrrverandi borgar- fógeti í skiptarétti, og Ragnar H. Hall, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi borgarfógeti í skiptarétti. 8. október 2008 Í svari frá Valtý Sig­ urðssyni, þáverandi ríkissaksóknara, kemur fram að lögreglustjóra verði falið að annast rannsóknina eftir nánari fyrirmælum. 29. janúar 2009 Ríkissaksóknari tilkynnir að við nánari skoðun hafi embættið komist að þeirri niðurstöðu að frekari rannsóknar á meintum brotum sé ekki þörf. Eftir ríkissaksókn- ara er haft í fjölmiðlum að „rannsóknarbeiðnin hefði ekki leitt neitt í ljós sem gæfi til kynna refsiverð brot hjá þeim sem átti að rannsaka“. 7. mars 2009 Fyrrum Hafskipsmenn- irnir kæra til dóms- málaráðherra ákvörðun ríkissaksóknara um að rannsaka ekki meint brot opinberra starfs- manna í tengslum við Hafskipsmálið. Ragna Árnadóttir er þá nýtekin við sem dóms- málaráðherra. 8. júní 2009 Dómsmálaráðuneytið fellir þann úrskurð að kærunni skuli vísað frá. 4. maí 2010 Ríkissaksóknara berst tilkynning um að dóms- málaráðuneytið hafi ákveðið að endurupp- taka málið í ráðuneytinu. Tilefni endurupptök- unnar er bréf umboðs- manns Alþingis sem hann ritaði ráðuneytinu í framhaldi af kvörtun Ragnars Aðalsteinssonar hrl. fyrir hönd rann- sóknarbeiðenda, vegna úrskurðar ráðuneytisins frá 8. júní 2009. 13. júlí 2010 Dómsmálaráðuneytið fellir úr gildi ákvörðun ríkissaksóknara frá 29. janúar 2009 um að rannsóknar sé ekki þörf. Samkvæmt úr- skurðarorði stendur því óhögguð sú ákvörðun ríkissaksóknara frá 8. október 2008 að fallast á beiðni kærenda frá 2. október 2008 um rann- sókn. Jafnframt hefur ráðuneytið þar með fellt úr gildi eigin úrskurð frá 8. júní 2009. 5. ágúst 2010 Ríkissaksóknari tilkynn ir með bréfi til dómsmála­ ráðuneytis að emb- ættið muni endurskoða ákvörðun sína frá 29. janúar 2009 enda hafði hún verið felld úr gildi. 15. september 2010 Ríkissaksóknari tilkynnir á nýjan leik að ekki sé hægt að mæla fyrir um rannsókn. Í bréfi Valtýs Sigurðssonar til dóms- málaráðuneytisins kem- ur fram að hann hafi, ásamt Daða Kristjáns­ syni saksóknara, farið yfir rannsóknarbeiðnina að nýju og skoðað þau viðbótargögn sem borist hafa. „Er það mat okkar að ekki sé unnt að mæla fyrir um sérstaka rannsókn lögreglu á þeim atriðum sem rannsóknarbeiðnin lýtur að með þeim rökum sem þegar hafa komið fram. Eins og áður hefur komið fram sæta þessi atriði ekki endurskoðun æðra stjórnvalds. Telst málinu því lokið.“ Nýr dómsmálaráðherra frá 2. september 2010 er Ögmundur Jónasson. 17. júní 2011 Viðbragða ráðuneytis enn beðið.  RannsóknaRkRafa send fRam og aftuR um keRfið CINTAMANI WWW.CINTAMANI.IS Peysuveður Líttu vel út án þess að sjúga stöðugt upp í nefið. VíðA STREKKinGuR Af A­ oG nA. SKúRiR SunnAn­ oG SuðVESTAnlAnDS, En AnnARS Að MESTu ÞuRRT, En HEilT yfiR SólARlíTið. SVAlT noRðAn­ oG AuSTAnTil, En Mun MilDARA SunnAnlAnDS. HÖfuðBoRGARSVæðið: SÓLARGLENNuR FRAMAN AF EN SMÁSKúRiR þEGAR LÍðuR Á DAGiNN. ÁfRAM ÁKVEðinn VinDuR, 7­10 M/S, SíST Þó SunnAn­ oG SuðAuSTAnlAnDS. SVAlT noRðAn­ oG noRðAuSTAnTil, En HlýRRA SyðRA. HÖfuðBoRGARSVæðið: Að MESTu bJART VEðuR, HæGSTæðuR ViNDuR oG HiTi ALLT Að 15 STiGuM. læGiR oG léTTiR VíðA Til Á lAnDinu oG HElDuR HlýnAnDi AlMEnnT Séð. Þó ÁfRAM SVAlT oG MEð ÞoKuSuDDA Við noRðAuSTuRSTRÖnDinA. HÖfuðBoRGARSVæðið: HæGViðRi EðA HAFGoLA oG SÓLRÍKT LENGST AF DAGSiNS. Þjóðhátíðarblástur Allar líkur eru á að það breiði vel úr flöggum í dag, 17. júní. Vindur verður NA-stæður, en í Reykjavík er þá oftast ágætis skjól. Síður á þingvöllum og líkast til verður nokkur blástur við hátíðarhöldin á Hrafnseyri. Svalt norðan og austanlands, en mun mildara syðra. Fullyrða má að landið sé tvískipt hvað veður varðar. Á sunnudag eru sýnilegar breytingar í þá veru að þá er spáð hægum vindi á landinu og víðast léttir til. Háþrýstisvæði virðist ætlað að hreiðra um sig við landið. það ætti að boða gott! 14 8 9 8 13 14 8 7 7 12 13 11 11 9 15 Einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is Föstudagur laugardagur sunnudagurveður  Hafskipsmál enn kRafa um Rannsókn 26 áRum eftiR gjaldþRotið. n íu mánuðum eftir að ríkissaksókn-ari hafnaði öðru sinni kröfu um opinbera rannsókn vegna meintra brota embættismanna við rannsókn Haf- skipsmálsins í kjölfar gjaldþrots félagsins árið 1985 liggur málið enn óafgreitt hjá innanríkisráðuneytinu. Ragnar H. Hall hæstaréttarlögmaður, einn hinna kærðu, segir meðferð ráðu- neytisins „fyrir neðan allar hellur“ í sam- tali við Fréttatímann. Í skriflegum athuga- semdum kallar hann úrskurð ráðuneytisins frá 13. júlí 2010 „alvarlega íhlutun í störf ákæruvaldsins í landinu og vega gróflega að sjálfstæði þess“ og segir að hann sé „markleysa og að engu hafandi“. Lögmenn hæstaréttardómaranna Markúsar Sigur- björnssonar og Gunnlaugs Claessen og Hallvarðar Einvarðssonar hæstaréttarlögmanns, sem einnig eru í hópi hinna kærðu, taka í svipaðan streng í athugasemdum sínum, en þær koma fram í bréfi ríkissaksóknara til innanríkisráðuneyt- isins, frá 15. septem- ber 2010. Í seinni synjun ríkissaksóknara á beiðni um rannsókn er sagt að atriði málsins geti ekki sætti endurskoðun æðra stjórnvalds og því sé þar með lokið. Því er Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Hafskipsmanna og kærenda í málinu, ósammála. „Málinu er að sjálfsögðu ekki lokið. Það er í höndum ráðherra að ákveða hver málsmeðferðin verður í framhaldinu.“ Ragnar segir þessa löngu óvissu slæma fyrir alla sem að þessu koma; skjólstæðinga hans, ráðuneytið og þá sem málið beinist að. Ragnar H. Hall missir hins vegar ekki svefn yfir þeim ásökunum sem að honum beinast. „Ég lít á þessa rannsóknarbeiðni eins og hvert annað rugl.“ -jk Krafa um rannsókn á meintum brotum embættis- manna í Hafskipsmál- inu er stopp í innanríkis- ráðuneytinu. Tveir hæsta- réttardómarar meðal þeirra sem hafa sætt óafgreiddum kærum árum saman. Meðferð ráðuneytisins „fyrir neðan allar hellur“ Valtýr Sigurðs- son, fyrrum ríkissaksóknari, hafnaði í tvígang beiðni um rannsókn á meintum brotum embættismanna í Hafskipsmál- inu. Segir Ragnar H. Hall hæstaréttar- lögmaður um úrskurð ráðu- neytisins. markleysa og að engu hafandi 8 fréttir Helgin 17.-19. júní 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.