Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.06.2011, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 17.06.2011, Blaðsíða 30
G arðabær innheimtir húsaleigu kr. 20,8 milljónir af daggjöldum heim- ilismanna hjúkr- unarheimilisins Holtsbúðar. Ef við núvirðum húsa- leiguna er bærinn búinn að fá greitt af daggjöldum heim- ilismanna Holtsbúð- ar 208 milljónir frá stofnun heimilisins til dagsins í dag. Daggjöld fær heimilið greidd frá ríkinu fyrir hvern heimilismann. Árið 2010 voru daggjöld (tekjur) kr. 312 millj. og gjöld sam- tals kr. 341 millj.; launakostnaður kr. 253 millj.; annar rekstrarkostn- aður (fæði, lyf, hjúkrunarvörur og húsaleiga) kr. 98 millj. Tap ársins 2010 var því kr. 9,358 millj. Ef húsaleigan væri ekki tekin af dag- gjöldum heimilismanna væri hagn- aður af rekstri Holtsbúðar árið 2010 rúmar 11 millj. króna. Í forsendum á útreikningi dag- gjalda frá ríkinu segir: „daggjöld gera eingöngu ráð fyrir rekstrar- kostnaði hjúkrunarheimila, afborg- anir á lánum og húsaleiga eru ekki í grunni daggjalda.“ Þrátt fyrir þetta ákvæði dregur Garðabær húsaleigu af daggjöldum heimilismanna og skerðir þjónustuna sem því nemur. Landlæknisembættið gerði úttekt á starfsemi hjúkrunar- heimilisins Holtsbúðar veturinn 2010 til 2011. Meðfylgjandi stólparit er fengið úr skýrslu landlæknis- embættisins. Mörgu er ábótavant á hjúkrunarheimilinu miðað við stöðluð gæðaviðmið. Efri gæðavið- mið (lélegt) er það viðmið sem talið er lýsa vandamáli sem er til staðar varðandi umönnun og meðferð heimilismanna. Þau viðfangsefni sem þarfnast umbóta og kanna þarf frekar í Holtsbúð eru hegðunar- vandamál, þunglyndiseinkenni, þvag- og hægðaleki, þvagfærasýk- ingar, fjötrar og mikil notkun lyfja (svefnlyf, geðlyf og róandi lyf). Um er að ræða vanda sem rekja má til vöntunar á áætlunum og markmiðum um gæði og þjónustu á heimilinu. Ábyrgð á þessu ber stjórn Holtsbúðar sem virðist stefna að áframhaldandi niðurskurði og skerðingu á þjónustu. For- maður stjórnar Holtsbúðar segir að „ósanngjart sé að gera sömu kröfur til minni hjúkrunarheimila og ætl- ast til þess að þau hafi burði til að gera fullkomnar gæðahandbækur“. Slíku mati er alfarið hafnað enda ber að hlúa að heimilisfólki og tryggja sömu gæði á hjúkrunarheimilum hvort sem þau eru stór eða lítil. Samkvæmt fund- argerðum stjórnar Holtsbúðar kemur nýr formaður, Erling Ásgeirsson, í stjórnina 28 október 2008. Hans fyrsta verk er að segja upp framkvæmdastjóra heimilisins sem er hjúkrunarfræð- ingur. Hún hefur verið frá störfum vegna veikinda frá 1. febrúar 2008, en mikill myglusvepp- ur var í kjallara og starfsrými framkvæmdastjórans. Á næsta stjórnarfundi Holtsbúðar, 25. nóvember 2008, samþykkir stjórnin tillögu stjórnarformanns um að ráða Svein H. Skúlason, forstjóra Hrafnistu, í 50% starf framkvæmda- stjóra tímabundið. Á þessum tímapunkti hefst niðurskurður á hjúkrunarheimilinu með afleiðing- um sem sjást í niðurstöðum á úttekt Landlæknisembættisins . 1. Strax í byrjun árs 2009 var farið í uppsagnir starfsmanna, starfs- hlutföll starfsmanna skert og stöðugildi aflögð. 2. Markmið var sett að auka nýtingu á dagvistun (en samt að fækka fólki). 3. Samningi við LSH varðandi þjón- ustu öldrunarlækna var sagt upp. 4. Nýr samningur við LSH þar sem samið er um að læknar muni sinna Holtsbúð í 15% starfshlut- falli. 5. Sjúkraþjálfun lögð niður. 6. Djáknaþjónusta lögð niður. 7. Iðjuþjálfari hefur aldrei unnið á heimilinu. 8. Framtíðarsýn sýnir að hjúkrun- arrrými Holtsbúðar geta vart nýst lengur vegna þess að sífellt veikari einstaklingar koma til vistunar. 9. Þrátt fyrir tilmæli heilbrigðis- eftirlitsins varðandi aðgengi að salernum var framkvæmdastjóra falið að svara heilbrigðiseftir- litinu að stjórn Holtsbúðar treysti sér ekki til að fara í nefndar fram- kvæmdir, bíða þurfi eftir ásætt- anlegri salernisaðstöðu til ársins 2013 en þá muni nýtt hjúkrunar- heimili verða tekið í notkun. 10. Þrátt fyrir allan þennan niður- skurð og bágt ástand heimilis- ins samkvæmt skýrslu Land- læknisembættisins er í stjórn Holtsbúðar enn rætt um frekari niðurskurð. Í fundargerð stjórnar frá 26. október 2010 segir undir liðnum Önnur mál: „Rætt um á hvern hátt er hægt að ná fram frekari sparnaði í rekstri heim- ilisins“. 11. Niðurstaða Landlæknisembætt- isins er að hraða verði byggingu nýs hjúkurnarheimilis á Sjálandi og embættið fækkar hjúkrunar- rýmum í Holtsbúð úr 40 í 39. Gæluverkefni meirihluta Garða- bæjar á sama tíma og niðurskurður er á hjúkrunarheimilinu: 1. Leiga á húsnæði fyrir Hönnunar- safn Íslands 12 millj. króna á ári. 2. Skrif á sögu Garðabæjar rúmlega 40 millj. króna. 3. Styrkur til Garðasóknar til kaupa á orgeli 15 millj. króna. 4. Niðurgreiðsla kr. 50.500 á mán- uði vegna „aupair“ barnagæslu til 10 fjölskyldna árið 2007, samtals kr 6 millj., og 4 fjölskyldna árið 2011, samtals kr 2.4 millj. 5. Niðurgreiðsla á dagvistun í alla leikskóla bæjarins en hæsta niðurgreiðslan er í ungbarna- leikskóla Hjallastefnunnar, kr. 154.000 þús. fyrir hvert barn á mánuði. Hjallastefnan skilaði 98 millj. króna hagnaði árið 2009. 6. Niðurfelling á fasteignagjöldum til fasteignafélagsins Klasa, en Klasi á nokkur hús við Garða- torg. Skyldi hjúkurnarheimilið fá fasteignagjöldin niðurfelld? 7. Frí afnot af bílastæðum allan sólarhringinn á Garðatorgi fyrir flugmenn og annað starfsfólk Icelandair. Stjórn Holtsbúðar er pólitískt skipuð nefnd en hana skipa: Erling Ásgeirsson, formaður stjórnar, odd- viti D-listans, Ingibjörg Hauksdótt- ir, D-lista sem einnig er formaður nefndar um málefni eldri borgara í Garðabæ, Jóna Sæmundsdóttir, D-lista, Steinþór Einarsson, S-lista, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, og Pálmi Másson, bæjarstjóri Álftaness. Það er óskiljanlegt að eitt ríkasta bæjarfélag landsins, Garðabær, skuli koma svona fram við elstu og viðkvæmustu íbúa bæjarins. Íbúar hjúkrunarheimilisins jafnt og aðrir íbúar Garðabæjar eiga skilið að komið sé fram við þá af virðingu og þeim sýnd sú lágmarks kurteisi að eldast með reisn hvar sem þeir kjósa að búa í bænum síðustu æviárin. 30 viðhorf Helgin 17.-19. júní 2011 Í forsendum á útreikn- ingi daggjalda frá ríkinu segir: „daggjöld gera eingöngu ráð fyrir rekstrakostnaði hjúkrun- arheimila, afborganir á lánum og húsaleiga eru ekki í grunni daggjalda.“ Þrátt fyrir þetta ákvæði dregur Garðabær húsa- leigu af daggjöldum heimilsmanna ... Auður Hallgrímsdóttir hjúkrunarfræðingur og fulltrúi Fólksins í bænum Hversu hreinar eru líkamsvörurnar þínar? Derma Eco body lotion Mjög rakagefandi body lotion með Aloa Vera og E- vítamíni. Fæst í Heilsuhúsinu, Fjarðarkaup, Heilsuver, Hagkaup, Árbæjarapóteki, Apóteki Vesturlands, Apóteki Ólafsvíkur, Melabúðinni, Vöruval Vestmannaeyjum, Þín verslun Seljabraut. Innflutningsaðili: Gengur vel ehf DERMA ECO LÍFRÆNT VOTTAÐAR HÚÐ- OG HÁRSNYRTIVÖRUR Á SKYNSÖMU VERÐI – Án Parabena, ilm og litarefna – 35 30 25 20 15 10 5 0 Feb 2010 Jun 2010 Okt 2010 Feb 2011 Líkamsfjötrar/öryggisútb. Holtsbúð n Neðri gæðaviðmið n Efri gæðaviðmið n Holtsbúð – FULLT HÚS ÆVINTÝRA REYKJAVÍK • AKUREYRI ellingsen.is grillum í sumar PIPA R\TBW A • SÍA • 111362 Grillflötur 2,226 cm2 2 brennarar Fullt verð 49.900 kr. 8.317 kr. léttgreiðsla í 6 mán. COLEMAN FERÐAGASGRILL Það er hvort sem er ekkert að gerast „Engar útvarpsfréttir á Rás 2“ Fréttatímum RÚV klukkan 16 og 17 verður einungis útvarpað á Rás 1 í dag, vegna beinnar lýsingar frá leik Íslands og Sviss á EM U21. Af hverju ætli það sé? „Traust eykst á flest nema Alþingi“ Traust nemenda framhaldsskóla hefur aukist á kirkjunni, dómstólum og lög- reglu á milli áranna 2004 og 2010. Hins vegar hefur traust á Alþingi minnkað á sama tímabili. Framsókn kemur sterk inn „Fyrstu Icesave-lögin fallin brott“ Meðal þeirra lagafrumvarpa sem sam- þykkt voru á Alþingi sl. föstudagskvöld var frumvarp þingflokks framsóknar- manna um brottfall fyrstu Icesave- laganna frá árinu 2009. Mannréttindavegur hvað? „Of mikil gleði fyrir Laugaveg“ Gleðigangan var orðin of stór fyrir Laugaveg og því var ákveðið að breyta gönguleiðinni í ár þannig að hún fari um Sóleyjargötu í staðinn. Þetta segir Þorvaldur Kristinsson, forseti Hinsegin daga, í Reykjavík. Og farið aftur „Sumarið mætt í borgina“ Sumarið virðist loksins komið til höfuð- borgarinnar eftir frekar brösuga byrjun ... Á morgun er hins vegar spáð rigningu. Engin þörf á að krydda „Geislavirkt efni í 2 hrefnum“ Vísindamenn í Japan hafa fundið geislavirkt sesíum í tveimur hrefnum sem veiddar voru undan ströndum Hokkaídó-eyju. Veit Björn af þessu? „Íslendingar í herþjónustu í Noregi“ Um þessar mundir gegna tíu íslenskir ríkisborgarar herþjónustu með norska hernum og hafa sex þeirra tekið virkan þátt í hernaðaraðgerðum Norðmanna í Afganistan. Eiga landhelgisbrjótarnir að hringja og láta vita í land? „Þriðjungur tekna af leigustarfsemi“ Bæði varðskipin og Dash 8-flugvél Land- helgisgæslunnar eru í útleigu á Miðjarðar- hafi. Þyrlan TF-LÍF verður ein til taks í sumarlok þegar TF-GNÁ fer í viðgerð.  Vikan sem Var Heilsugæsla Falleinkunn hjúkrunar- heimilisins Holtsbúðar í Garðabæ Heimild: Skýrsla Landlænis- embættisins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.