Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.06.2011, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 17.06.2011, Blaðsíða 28
28 viðhorf Helgin 17.-19. júní 2011 Austurströnd 3, 170 Seltjarnarnesi. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmda- stjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. Árið 1995 höfðu 64 prósent fimmtán til sex­ tán ára unglinga orðið drukknir um ævina. Nú, sextán árum síðar, er þetta hlutfall komið niður í 24 prósent. Um þessa ánægjulegu þróun má lesa í niðurstöðum evrópsku vímu­ efnarannsóknarinnar ESPAD, sem Háskól­ inn á Akureyri kynnti í vikunni. Önnur merkileg tölfræði í rannsókninni er að nú telja aðeins þrír af hverjum tíu unglingum á þessu aldri það mjög auðvelt að verða sér út um bjór niður en árið 1995 var þetta hlutfall tvöfalt hærra, eða sex af hverjum tíu. Út úr þessum tölum má lesa ýmsan athyglisverðan fróðleik. Til dæmis að ung­ lingar í dag eru meðvitaðri um mögulega skaðsemi áfengis en unglingar áður fyrr, og ekki síður að með­ vitund foreldra og annarra fullorðinna hefur líka snar­ batnað; þeir sem hafa aldur til eru síður líklegir til að kaupa áfengi fyrir unglinga en áður. Annar flötur, og ansi merkilegur, er að þessi ánægjulega þróun hefur átt sér stað sama tíma og Áfengisverslun ríkisins hefur fjölgað verslunum og rýmkað afgreiðslu­ tímann verulega, auk þess sem lítt dulbúnum auglýsingum á áfengum bjór hefur fjölgað mjög í fjölmiðlum landsins. Aðgengið að áfengi hefur sem sagt almennt snaraukist og líka sýnileikinn á tiltekinni gerð áfengra drykkja í umhverfi unglinga landsins. Samkvæmt ýmsum kenn­ ingum um lýðheilsu hefði þetta átt að leiða til meiri drykkju unglinga en ekki minni, eins og er þó svo afgerandi raunin. Umhyggja fyrir bættri heilsu ungs fólks er einmitt talin upp í athugasemdum með nýlegu lagafrumvarpi innanríkisráðherra um hert bann við áfengisauglýsingum. Breyting­ in, sem þar er boðuð á áfengislögunum, á að girða fyrir að farið sé í kringum bannið með því að auglýsa óáfengan bjór sem er í nánast eins umbúðum og áfengur bjór. Slíkar auglýsingar eru lesendum blaða og áhorfendum sjónvarpsstöðva vel kunnar. Raunveruleikinn segir okkur þó aðra sögu en að heilsu unglinga stafi hætta af þeim. Ástæðunum fyrir því má raða um það bil í tvo flokka. Annars vegar virðast unglingar það vel upplýstir um þessar mundir að þeir átta sig á að áfengi er engin hollustuvara, og sér­ lega háskaleg fólki sem er að taka út líkam­ legan og andlegan þroska. Og svo hitt, sem ýmsar rannsóknir hafa sýnt fram á, að bjór­ auglýsingarnar, dulbúnar eða beinar, auka ekki neyslu á bjór. Vel lukkuð auglýsinga­ herferð eykur fyrst og fremst sölu á tiltekinni gerð af bjór á kostnað annarra tegunda. Ánægjulegar niðurstöður evrópsku vímuefnakönnunarinnar sýna enn og aftur að neysla áfengis er háð allt öðrum breytum en með hvaða hætti áfengi er selt og eftir atvikum auglýst. Fyrir áhugamenn um boð og bönn er nauðsynlegt að hafa í huga að upplýsing og fræðsla eru margfalt öflugri verkfæri við að fá fólk til að hverfa frá óhollum lífsháttum. Því miður vill það gjarnan gleymast hjá þeim sem eru hvað ákafastir í að hafa vit fyrir öðrum. Boð og bönn eða fræðsla og upplýsing Auglýsingar og unglingadrykkja Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Á Fært til bókar Beint á boltann Það getur verið gaman að fylgjast með góðum fótboltaleik, eins og raunar öðrum íþróttum sem leiknar eru af list. Ríkissjónvarpið hefur að undanförnu sýnt beint, bæði frá fótbolta og handbolta. Það er vel en oft má deila um forgangs- röðun þegar kemur að boltanum. Það getur verið verjandi að færa fréttatíma vegna beinnar útsendingar þar sem Ís- lendingar taka þátt í úrslitakeppni en tæplega finnast góð rök fyrir slíkri færslu svo að sýna megi ungmennakeppni Dana og Svisslendinga í knattspyrnu, jafnvel þótt þjóðirnar séu í riðli með ungmenna- liði Íslendinga. Jónas Kristjánsson rit- stjóri vakti athygli á þessu á síðu sinni og sagði: „Stundum velti ég fyrir mér, hvaða tilgangi þjóni að reka hér rík- isútvarp og ríkissjónvarp á kostnað skattgreiðenda. Einkareknar stöðvar ættu að geta veitt þjón- ustu á flestum sviðum. Auðvelt er að reka íþróttastöðvar á kostnað notenda. Eina afsökun ríkisrekstr- ar er að koma öryggisfréttum á framfæri, svo sem veðri, jarðskjálft- um og eldgosum. Hugsanlega líka almennum fréttum, ef einkafjölmiðlar eru hagsmunatengdir. En ég skil alls ekki, hvers vegna fréttatímar Ríkisútvarps- ins eru látnir víkja fyrir boltaleikjum. Steininn tekur úr, þegar fréttir víkja fyrir fótboltaleik milli Danmerkur og Sviss.“ Jónas bendir á í öðrum pistli að mælingar sýni að um þriðjungur fólks hafi áhuga á íþróttum, svipaður fjöldi og hafi áhuga á menningu og listum, og að þriðjungur hafi áhuga á pólitísku efni eins og leið- urum. Hann segir jafnvægi skorta milli framboðs og eftirspurnar þessara efnis- þátta hjá Ríkisútvarpinu, sem kalla mætti Boltastöðina. „Þar ímynda ráðamenn sér, að allir Íslendingar hafi áhuga á bolta. Því fer víðs fjarri,“ segir ritstjórinn. Sérkenni- legt má það vera að Ríkisútvarpið noti ekki aukarás sína, Plúsinn svokallaða, fyrir beinar íþróttalýsingar sem eru á sama tíma og kvöldfréttirnar, að minnsta kosti ef Íslendingar koma ekki við sögu. Trekkir Pétur? Heimsóknir á vef Alþingis ríflega tvö- földuðust milli vikna, samkvæmt nýjustu mælingum vefmælingafyrirtækisins Modernus. Alls sóttu rúmlega 30 þúsund notendur vefinn í síðustu viku en voru ríflega 16 þúsund vikuna á undan. Í til- kynningu frá Modernus eru leiddar að því líkur að áhugi landsmanna stafi af áhuga þeirra á kvótafrumvörp- unum tveimur, að því er fram kemur í fréttum. Aðeins tvisvar hafi not- endur althingi.is mælst fleiri. Fyrst í lok árs 2008 þegar „hrunið“ stóð sem hæst og næst um miðjan aprílmánuð í fyrra, þegar rannsóknarskýrsla Alþingis birtist almenningi á vefnum. Aðrar og einfaldari skýringar gætu verið á vinsældum vefs Alþingis. Galsi hljóp í þingmenn eins og verða vill undir þinglok. Frægt varð hláturskast Péturs H. Blöndal þar sem hann kom varla frá sér tillögu sinni um að stjórnlagaráð kæmi því í stjórnarskrárfrumvarp sitt að á þingi sætu aðeins barnlausir þingmenn enda vinnustaðurinn varla fjölskylduvænn miðað við vinnutímann. Smitandi hlátur Péturs gæti hafa laðað áhorfendur að skemmtivef þessum, ekki síður en kvóta- málið endalausa. M ikil umræða hefur verið um núverandi fiskveiðistjórn­unarkerfi vegna frumvarpa sem lögð hafa verið fram og ætlað er að umbylta núverandi kerfi. Helstu rök fyrir boðuðum breytingum eru að samfélagið fái ekki viðunandi hlutdeild í afrakstri auðlindarinnar og að nauðsynlegt sé að sjávarbyggðir geti ráðstafað aflaheimild­ um til að tryggja atvinnu og búsetu. Um­ sagnir um nýju kvótafrumvörpin eru al­ mennt að rekstrarhagkvæmni í greininni muni minnka og afrakstur þjóðarinnar muni verða minni ef boðaðar breytingar koma til framkvæmda. Í núverandi kerfi er útgerðum árlega úthlutað veiðiheimildum. Ef minnka þarf veiðar eru heimildir allra skertar hlut­ fallslega en auknar ef afli er aukinn. Einungis þeir sem eiga fiskiskip geta fengið úthlutað aflaheimildum og eru þær bundnar tilteknum skipum. Sameign þjóðarinnar Í lögum um stjórn fiskveiða segir að nytjastofnar á Íslandsmiðum séu sameign þjóðarinnar og að mark­ mið laganna sé að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Nokkuð ósamræmi er á milli þess að nytjastofnar séu sameign þjóðarinnar og að þeim einum sem eiga fiskiskip er úthlutað aflaheimildum. Nauðsynlegt er að skilja á milli úthlutunar á aflaheimildum og fiskveiða. Með slíkum aðskilnaði væri opnað á að allir landsmenn gætu fjárfest í aflaheimildum án þess að eiga fiskiskip eða hafa veiðileyfi í fiskveiðilögsögunni. Með tillög­ unni er ekki verið að kollvarpa reglum sem gilt hafa um úthlutun á aflaheimildum. Þvert á móti að þær verði með sama hætti og verið hefur, þannig að þeir sem nú hafa yfir að ráða aflaheimildum haldi þeim. Einungis er gert ráð fyrir að aðilar, sem ekki stunda fiskveiðar, geti fjárfest í aflaheimildum. Nýr fjárfestingarvalkostur Aðskilnaður milli nýtingarréttar á aflaheimildum og heimildar til að stunda fiskveiðar í atvinnuskyni er grundvöllur þeirra breytinga sem hér eru kynntar. Með þeim verður aðilum, sem ekki stunda fiskveið­ arnar heimilt, að fjárfesta í aflaheimildum. Fjárfesting í aflaheimildum verður þá valkostur á við fjárfestingu í hlutabréfum. Arður af fjárfestingunni yrði í formi leigu á aflamarki til útgerða. Þessi útfærsla hentar sveitarfélögum vel þar sem þeim verður heimilt að fjárfesta í aflaheim­ ildum og leigja til útgerða sem auka atvinnu í sveitarfélögunum. Það kann að vera hagkvæmt fyrir útgerðir að gera langtímasamninga um leigu á aflamarki í stað þess að fjárfesta í aflaheimildum. Þeirra hagur er að stunda fiskveiðar á hagkvæman hátt án þess að þurfa að binda fé í aflaheimild­ unum. Breytingar á reglum Mikilvægt er fyrir útgerðir og fjárfesta að hafa ráðstöfunarrétt yfir auðlindinni til langs tíma. Fjárfestar eru ekki líkleg­ ir til að fjárfesta í aflaheimildum ef þeir hafa takmarkaðan ráðstöfunarrétt. Eins er útgerðum mikilvægt að hafa ráðstöfunarrétt til langs tíma til að marka langtímastefnu í veiðum og vinnslu. Til að samræma sjónarmiðin um eignarhald þjóðar­ innar og að tryggja handhöfum aflaheimilda nýtingar­ rétt til langs tíma er lagt til að beita sambærilegum reglum og við leigulóðir. Ef slík regla er yfirfærð á aflaheimildir myndu handhafar þeirra semja um lang­ tímaafnot aflaheimilda án formlegs eignarhalds. Í núgildandi lögum um stjórn fiskveiða er tekið fram að úthlutun aflaheimilda myndi ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði yfir heimildum. Í samningum væri, með vísan til verndunarsjónar­ miða, hugsanlegt að veita heimild til að skerða úthlut­ aðar aflaheimildir um ákveðið hámark (2­5%) á samn­ ingstímanum án bóta. Ef hins vegar væri talið óhætt að auka veiði yrði aukningin seld á markaði. Á sama hátt og aukning yrði seld bæri að kaupa aflaheimildir ef nauðsynlegt væri að draga úr veiðum umfram samn­ ingsbundnar skerðingar. Handhafar aflaheimilda myndu árlega greiða leigu­ gjald (auðlindagjald) til ríkissjóðs. Niðurstaða Framangreindar tillögur fela í sér róttækar breyt­ ingar frá núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi og þeim frumvörpum sem lögð hafa verið fram á Alþingi en eru til þess fallnar að sætta ólík sjónarmið. Stöðug­ leiki og öryggi sem felst í tillögunum munu leiða til hagræðingar í útgerð og fiskvinnslu sem mun skila sér í auknum tekjum útgerðar, sjómanna og sam­ félagsins í heild. Alexander G. Eðvardsson endurskoðandi KPMG Kvótinn er sameign þjóðarinnar Fleiri geti fjárfest í aflaheimildum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.