Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.06.2011, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 17.06.2011, Blaðsíða 14
F jölmargir fasteignasalar eru ósáttir við þær kröfur sem Orkuveita Reykjavíkur gerir til þeirra sem bjóða í jarðir og fast- eignir fyrirtækisins. Grétar Jónas- son, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, segir í samtali við Fréttatímann að nokkrir fasteigna- salar hafi kvartað vegna skilmála OR í söluauglýsingu. „Mér þóttu þetta vera fullharðar kröfur og nefndi það við Orkuveituna. Þess- ar kröfur hindra marga í að bjóða í þetta. Ég fékk hins vegar þau svör að þetta væru skilmálarnir sem Orku- veitan ætlaði að hafa og að fyrirtæk- ið hefði það í hendi sér hvernig að þessu yrði staðið,“ segir Grétar og bætir við að skilmálarnir séu harðari en til að mynda hjá bönkunum. Í auglýsingunni frá Orkuveitunni kemur fram að þær kröfur sem væntanlegir söluaðilar þurfi að upp- fylla séu til að mynda að hafa jákvætt eigiðfé í árslok 2010, og hafa selt at- vinnuhúsnæði eða jarðir fyrir einn milljarð frá ársbyrjun 2009. Á meðal þeirra fasteignasala sem blaðamað- ur ræddi við var það aðallega krafan um milljarðinn sem fór fyrir brjóstið á þeim. Ekki var annað að heyra en sú krafa myndi útiloka nær allar fast- eignasölur frá því að sækjast eftir því að selja þessar eignir. Eiríkur Hjálmarsson, upplýsinga- fulltrúi Orkuveitunnar, þvertekur fyrir það í samtali við Fréttatímann að skilmálarnir séu stífir. „Þetta eru ekki ósanngjarnar kröfur miðað við þann metnað sem við höfum fyrir verkefninu. Það er almenn krafa í útboðum hjá okkur að þeir sem bjóða í verk séu með jákvæða eigin- fjárstöðu hvort heldur sem þeir eru að fara að grafa skurði eða selja fast- eignir. Varðandi kröfuna um seldar eignir fyrir milljarð þá erum við ein- faldlega að leita að aðilum sem sýnt hafa að þeir geta unnið og selt eign- ir við erfið markaðsskilyrði eins og verið hafa á fasteignamarkaðnum. Við teljum að margir uppfylli þessi skilyrði enda er það ekki okkar hag- ur að sem fæstir geti boðið í verkið,“ segir Eiríkur. Hann vill ekki gefa upp hversu mikið Orkuveitan vill fá fyrir þess- ar eignir en á meðal þeirra eru til að mynda Perlan, einhverjar fasteignir við Bæjarháls og verðmætir jarðar- partar eins og til dæmis austur í Grafningi. Frestur til að skila inn tilboðum rennur út næstkomandi miðvikudag. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is Sæktu um skuldalækkun J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Ekki þarf að sækja um lækkun fasteignaskulda ef öll áhvílandi lán eru í Landsbankanum. Sækja þarf um ef önnur lánafyrirtæki þurfa að færa niður skuldir. Ekki þarf að sækja um endur greiðslu vaxta. Skilmála og nánari upp- lýsingar um skuldalækkun Landsbankans má fi nna á landsbankinn.is, eða í næsta útibúi. Skuldalækkun Landsbankans verður aðeins í boði í fáeinar vikur. Sæktu strax um að lækka skuldir þínar áður en frestur rennur út. Lækkun fasteignaskulda - Þú sækir um í næsta útibúi Lækkun annarra skulda - Þú sækir um í netbankanum 1. júlí 15. júlí Eldfjall Rúnars verðlaunað Rúnar Rúnarsson hlaut verðlaun fyrir bestu leik- stjórn á kvikmyndahátíðinni í Transylvaníu, Transylvania International Film Festival fyrir kvikmyndina Eldfjall, að því er fram kemur í tilkynningu Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Rúnar deildi verðlaununum með Constantin Popesc, sem leikstýrði kvikmyndinni Prin- ciples of Life. Eldfjall er fyrsta kvikmynd Rúnars Rúnarssonar í fullri lengd og var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí. Kvikmynd Valdísar Óskarsdóttur, Kóngavegur, var einnig sýnd í keppni á kvik- myndahátíðinni. Valdís hélt einnig málþing um starf sitt og hvernig hún tvinnar saman leikstjórn og klippingu. -jh  HellisHeiðarvirkjun jarðHitasýning alla daga Náttúruperla í næsta nágrenni höfuðborgarinnar Jarðhitasýningin er byggð á marg- miðlunartækni. Kynningarfulltrúar taka á móti gestum og fræða um mikilvægi jarðhitans. Móttökurýmið er í miðhúsi Hellisheiðarvirkjunar. Húsið sjálft er heimsóknarinnar virði. „Við erum full bjartsýni enda ekki tilefni til annars þar sem tugþúsundir hafa komið í heimsókn hingað á undanförnum árum,“ segir Helgi Pétursson sem sér um jarðhita- sýningu í Hellisheiðarvirkjun. Þau Auður Björg Sigurjónsdóttir, bæði fyrrum starfs- menn Orkuveitu Reykjavíkur, hafa stofnað fyrirtækið Orkusýn og tekið við rekstri jarðhitasýningarinnar í virkjuninni sem opnuð var árið 2006. „Hér er opið alla daga vikunnar frá kl. 9 til 17 í glæsilegu móttöku- rými í miðhúsi Hellisheiðarvirkjunar, en húsið sjálft er út af fyrir sig heimsóknar- innar virði, enda skemmtilega hannað og sérkennilegt.“ Sýningin er byggð á margmiðlunartækni en kynningarfulltrúar taka á móti gestum og fræða um mikilvægi jarðhitans fyrir landsmenn, meðal annars í ljósi þess að um 90% allra húsa á Íslandi eru hituð með jarðhita. Enn fremur er lögð áhersla á að upplýsa gesti um þekkingu vísindamanna og verkfræðinga á nýtingu jarðhitans, bæði hér á landi og erlendis. Helgi segir að mikill meirihluti gesta hingað til hafi verið erlendir ferðamenn og skólahópar en hann hvetur Íslendinga til þess að koma í heimsókn og kynna sér jarð- hitanýtingu og jarðvísindi frá fyrstu hendi. Gestir fræðast um jarðhitann og upp- runa hans, fá að líta inn í vélasal virkjunar- innar, skoða fróðleik um framleiðsluferli hennar og á sýningunni er að finna miklar upplýsingar um Hellisheiðina og Hengils- svæðið allt. Í miðrýminu er kaffihúsið Kaffi Kolviðarhóll og handverksverslun. „Við höfum lagt mikla áherslu á að kynna Hengilssvæðið fyrir íbúum höfuðborgar- svæðisins enda er það mikil náttúruperla í næsta nágrenni,“ segir Helgi enn fremur. „Á undanförnum áratugum hafa verið lagðir um 150 kílómetrar af merktum göngustígum um svæðið sem er mikið notað af göngufólki, hestamönnum og til hvers konar útiveru.“  Útboð Fasteignir og jarðir orkuveitu reykjavíkur Fasteignasalar ósáttir við kröfur Orkuveitunnar Perlan er meðal þeirra eigna sem Orkuveitan hyggst selja. Ljósmynd/Teitur. Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala. Ljósmynd/Hari ... að leita að að- ilum sem sýnt hafa að þeir geta unnið og selt eignir við erfið markaðsskil- yrði eins og verið hafa á fasteigna- markaðnum. Félag fasteignasala hefur kvartað til Orkuveitu Reykjavíkur vegna stífra skilyrða sem gerðar eru til þeirra sem bjóða í fasteignir og jarðir í eigu fyrirtækisins. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Sonur Vilhjálms syngur með Þuríði Söngkonan Þuríður Sigurðardóttir söng í upphafi ferils síns með Vilhjálmi heitnum Vilhjálmssyni í Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar. Á miðvikudag- inn kemur, 22. júní, syngur Jóhann Vilhjálmsson, sonur Vilhjálms, með Þuríði í lagi sem hún söng fyrst opinberlega með föður hans í sjónvarpsþætti í lok sjöunda áratugarins. Tónleikar Þuríðar og hljómsveitarinnar Vanir menn verða í Salnum í Kópavogi og hefjast kl. 20. Þuríður heldur um þessar mundir upp á 45 ára söng- feril sinn og var vel tekið á Siglufirði um páskana og á Akureyri í maílok. Poppið í Salnum á miðvikudaginn verður því þroskað en þar verður flutt úrval dægurlaga sem hljómuðu í óskalagaþáttum útvarps og á dansleikjum í Lídó á sínum tíma, þar sem Stöð 2 og Fréttablaðið eru nú til húsa, sem og Röðli, Sigtúni og Hótel Sögu. -jh 14 fréttir Helgin 17.-19. júní 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.