Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.06.2011, Side 51

Fréttatíminn - 17.06.2011, Side 51
 Plötuhorn Dr. Gunna Ég trúi á þig  Bubbi & Sólskuggarnir Bubbi skilur köttinn sinn Tónlist Bubba er svo nálægt kvikunni að það hefur alltaf verið hægt að heyra hvernig honum er innanbrjósts þegar hann gerir plöturnar sínar. Nú er hann glaður og að mestu sáttur við umhverfi sitt: „Ég köttinn minn skil,“ syngur hann í París, einu af heimilislegu lögum plötunnar. Þau eru allnokkur svoleiðis, notaleg „feelgood“ sumarlög í sannfærandi soul-búningi þeirra fag- manna sem spila með: Benzín-bræður Börkur og Daði þar fremstir í flokki ásamt súper soulsöngkonunni Krist- jönu Stefáns. Það er þó ekki eintómt sólskin því bláminn læðist víða inn í hrynheitum soul-ballöð- unum. Þótt undarlegt megi virðast með allan þennan lagabálk í farteskinu getur Bubbi ennþá fundið ferska vinkla á afköstin. Soul- herðasláin fer honum vel og Bubbi hefur líklega aldrei sungið betur en á þessari sallafínu plötu. Pink Boats  Vigri Allir í bleiku bátana! Ekki veit ég hvað þetta togara-blæti í hljóm- sveitinni Vigra á að fyrirstilla. Hljómsveitin spilar að minnsta kosti ekki brimsölt sjómannalög, heldur sandblásið og seig- fljótandi draumarokk og allir í hljómsveitinni eru eflaust með lokuð augun þegar tilfinn- ingarík tónlistin er flutt – enda full ástæða til að vera í fílingi. Bræðurnir Bjarki og Hans Pjeturs- synir fara fyrir vel spilandi hljómsveitinni og tónlistinni má lýsa sem bræðingi af Sigur Rós, Coldplay og alt- kántrí dóti eins og Bon Iver og Fleet Foxes. Þeir syngja að mestu á ensku og stundum með krúttlega ýktum hreim. Platan er mjög sannfærandi frumsmíð sem nostrað hefur verið við; lögin mis sterk, en mörg alveg frábær. Ég hef fulla trú á að þessir strákar eigi mikið inni enn, en þeir mættu samt minnka aðeins hátíðleikann næst. Gas - Góðir alþýðusöngvar  Lögreglukórinn Blúsaðar löggur Þetta er þriðja plata Lögreglukórsins. Hér er vandað til verka, leik- menn úr popplandsliðinu leggja kórnum lið í bandi sem Samúel J. Samúels- son og Ómar Guðjónsson fara fyrir. Kórinn sjálfur er oftast í aukahlutverki, kyrjar karlmannlega í bakgrunni og styður við á áherslupunktum á meðan sjö gestasöngv- arar syngja aðalrödd – fólk eins og Sigtryggur Baldursson, Jónas Sigurðsson og Sigríður Thorlacius. Kórinn er einn og óvaldaður í fjórum lögum af ellefu og stendur sig vel. Laga- valið tekur mið af meintri kreppu. Lögin koma frá Bergþóru Árnadóttur, Bubba, KK, Herði Torfa og fleirum og hér er sungið um óréttlæti, fordóma og manns- vonsku; kjarabaráttu, smáborgarahátt og lífið í sollinum – blúsað innihald á köflum, en engum þyngslum er fyrir að fara í nettum og á stundum reggívæddum útsetningunum. Helgin 17.-19. júní 2011 Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á þjónustustöðvum N1 um land allt HELGARBLAÐ fyrir ómetanlegt starf í þágu gull- smíðagreinarinnar. María Kristín fæddist 1977 og er fulltrúi kynslóðar sem hefur tileinkað sér meira frelsi í verkefna- og efnisvali. Efniviður hennar er band sem formað er í skartgripi með aðferðum sem þekktar eru úr hnýtingum, auk aðferða sem hún hefur sjálf þróað til þess að ná fram þeim formum sem hún sækist eftir. Hálsmen eftir Maríu Krist- ínu. Sýningin á verkum hennar og Dóru Guðbjartar stendur til 10. september. Mynd/Oddvar Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á þjónustustöðvum N1 um land allt HELGARBLAÐ

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.