Fréttatíminn - 02.11.2012, Qupperneq 4
Óbundið, lau mál Litlatrés,
ljóðrænt að tjáningu, myndnotkun
og orðavali, er einn samfelldur
óður til lífsins, óður til á arinnar,
óður til náttúrunnar, óður til
Borgar arðar — en jafnframt
slóttug lýsing á sárri einsemd og
þeim vanda mannsins að nna
sér merkingu á ævikvöldinu.
Óvenjuleg bók —
og ógleymanleg!
„Þetta er mannbætandi texti.“
~Ísak Harðarson
KOMIN
í verslanir
www.tindur.is
www.facebook.com/litlatre
Áttu forngrip
í þínum fórum?
Almenningi er boðið að koma með gamla
gripi í greiningu til sérfræðinga Þjóðminja-
safnsins á milli 14 og 16 á sunnudaginn.
Að þessu sinni verður sérstök áhersla á
silfurgripi, t.d. gamlar skeiðar með stimpli
og búningasilfur. Greiningin er gestum að
kostnaðarlausu. Reynsla sýnir að það næst
að greina um 50 gripi á 2 klukkustundum
og því er fólki bent á að koma tímanlega
og taka númer í afgreiðslu. Einungis verður
reynt að greina muni með tilliti til aldurs,
efnis, uppruna o.s.frv. en starfsmenn meta
ekki verðgildi gamalla gripa. Eigendur taka
gripina með sér aftur að lokinni skoðun. -jh
Ungmenni
keppa í hugviti
Átta lið úr framhaldsskólum
landsins keppa til úrslita í
Boxinu – framkvæmdakeppni
framhaldsskólanna á morgun,
laugardag. Í Boxinu leysa fram-
haldsskólanemendur þrautir
sem reyna á hugvit, verklag og
samvinnu. Keppnin stendur yfir
frá klukkan 10-16.30 í Háskól-
anum í Reykjavík. Markmiðið
með keppninni er að kynna og
vekja áhuga á tækni, tækninámi
og störfum í iðnaði og gera
verkviti hátt undir höfði.
Viðsnúningur hjá Toyota á Íslandi
Rekstrartekjur Toyota á Íslandi
fyrstu átta mánuði rekstrarárs-
ins 2012 námu 4.817 milljónum
króna. Það er tæplega 78%
aukning frá sama tíma í fyrra.
Hagnaður af rekstri fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði var
rúmar 125 milljónir en um 11
milljóna tap var af rekstrinum á
sama tímabili á síðasta ári. Í árs-
byrjun var gengið frá fjárhags-
legri endurskipulagningu félagsins með samningi við Landsbankann. Var það hluti af
samkomulagi við nýja eigendur. Skuldum var breytt í hlutafé og leiðrétting var gerð á
erlendum lánum. Toyota á Íslandi flytur inn Toyota og Lexus bifreiðar auk varahluta.
Söluaðilar eru fjórir, í Kauptúni í Garðabæ, á Akureyri, Selfossi og í Reykjanesbæ. Auk
þess eru 7 viðurkenndir Toyota þjónustuaðilar starfandi á landinu. - jh
OYSTER PERPETUAL GMT-MASTER II
Michelsen_255x50_H_0612.indd 1 01.06.12 07:22
S jávarútvegur á Íslandi nær fjörutíu pró-sent meira út úr hverju veiddu kílói en til dæmis Norðmenn. Þannig er virði hvers
veidds kílós af þorski á Íslandi um 2,3 evrur
en í Noregi er virðið aðeins
1,7 evrur á kíló. Þetta
kemur fram í nýrri skýrslu
um íslenskt efnahagslíf
sem McKinsey&Company
kynnti á þriðjudag.
„Ég held þetta sé fyrst
og fremst að við höfum
náð að tengja betur veiðar
vinnslu og markaðsstarf,“
segir Friðrik J. Arngríms-
son, framkvæmdastjóri
LÍÚ, og bendir á að Norð-
menn hugsi meira um magn, salti og þurrki
þorskinn, en að á Íslandi sé meira lagt upp úr
gæðum og að koma afurðum á þann markað
sem skilar besta verðinu.
En þótt Íslendingar standi sig vel þegar
kemur að veiddum fiski vantar okkur enn mik-
ið upp á ef við eigum að teljast samkeppnishæf
við Noreg þegar kemur að fiskeldi. Síðasta
áratug hafa Norðmenn nær tvöfaldað veltu
sjávarútvegsins hjá sér með fiskeldi sem er
næstum því ekki til í neinni mynd sem vert er
að nefna á Íslandi.
Samkvæmt skýrslunni
er sjávarútvegurinn enn
ein mikilvægasta atvinnu-
greinin á Íslandi. Engin
þjóð þénar hlutfallslega,
miðað við höfðatölu, jafn
mikið á sjávarútvegi. Ís-
lendingar veiða 3,5 tonn á
hvern íbúa og þéna 5.500
dollara á hvern Íslending.
Norðmenn þéna aðeins um
1.500 dollara á hvern íbúa
og veiða um 0,5 tonn á hvern Norðmann. Sam-
kvæmt skýrslu McKinsey&Company á engin
sjálfstæð þjóð jafn mikið undir sjávarútvegi og
Íslendingar.
Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
ÞorSkur ÍSlendingar græða 40% meira á ÞorSkkÍló en norðmenn
Engin
sjálfstæð
þjóð
á jafn
mikið
undir
sjávarút-
vegi og
Ísland
Græðum mun meira
á þorski en Norðmenn
Í nýrri skýrslu McKinsey&Company kemur fram að Íslendingar ná miklu meira út
úr hverju veiddu þorskkílói en til að mynda Norðmenn. Við erum líka háðari fisk-
veiðum en nokkur önnur sjálfstæð þjóð.
Ísland:
Útflutningur í evrum: 432 milljónir
Heildarafli: 190 þúsund tonn
Verð á kíló: 2,3 evrur
Noregur:
Útflutningur í evrum: 576 milljónir
Heildarafli: 339 þúsund tonn
Verð á kíló: 1,7 evrur
Hornafjörður í náttmyrkrinu. Íslendingar standa sig vel þegar kemur að því að fá sem mest út úr hverju veiddu kílói samkvæmt
nýrri skýrslu Mckinsey&Company.
veður FöStudagur laugardagur Sunnudagur
NorðaN sTorMur og hrÍðarVeður frá
VesTfjörðuM ausTur á laNd.
höfuðborgarsVæðið: MjöG HVASST
oG KALT. SMÁ éL.
lÍTið láT á þessu N-áhlaupi.
bloTar ausTasT.
höfuðborgarsVæðið: SVipAð VEðUR, ÁfRAM
éLjAfjúK oG HVASST.
geNgur loks Niður og léTTir Til
suNNaN- og VesTaNTil.
höfuðborgarsVæðið: HæG N-ÁTT, BjART
oG HiTi UM fRoSTMARK.
Snælduvitlaust fram
á laugardag
Þessu langa og nær samfellda norðan áhlaupi
lýkur snemma á sunnudag, en fram að því
er spáð ofsa í veðrinu, mikilli veðurhæð og
snjóbyl norðan- og austantil. Hún verður
mjög þétt hríðin í dag og fram á morgundag-
inn, sérstaklega frá Eyjafirði og
austur um. Samgöngur í lofti
og á láði munu vafalaust fara
meira og minna úr skorðum. Á
sunnudag dettur hins vegar
allt í dúnalogn, síðast þó
austast á landinu.
-3
-4 -3
0
0
1
-1 1 3
4
0
-3 -1 0
1
Einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
4 fréttir Helgin 2.-4. nóvember 2012