Fréttatíminn - 02.11.2012, Blaðsíða 74
Borgardekk
Vetrarhátíð Samkeppni um opnunarhátíð
Baðaði Hallgrímskirkju í ljósum
Samkeppni um hönnun opnunar-
verks Vetrarhátíðar í Reykjavík
2013 er í fullum gangi. Hún verður
haldin 7. - 10. febrúar næstkom-
andi en skilafrestur vegna sam-
keppninnar um opnunarhátíðina
er til 16. nóvember næstkomandi.
Spænski arkitektinn Marcos Zotes
sigraði í fyrra með ljósainnsetn-
ingu sinni Rafmögnuð náttúra. Þá
varpaði hann verkinu á framhlið
Hallgrímskirkju með risastórum
skjávörpum og breytti þannig
ásýnd kirkjunnar og skapaði kraft-
mikla sjónræna upplifun.
Samkeppnin er opin öllum
hönnuðum, arkitektum, mynd-
listarmönnum, tónlistarmönnum,
ljósamönnum, rafmagnsverk-
fræðingum eða öðrum sem vinna
með rafmagn og list í einhverju
formi. Verðlaunafé er 400 þúsund
krónur. Auk þess verður gerður
samningur við vinningshafa og
fær hann 1,4 milljónir til verksins.
„Ég er arkitekt og lít ekki á mig
sem listamann,“ segir Marcos sem
hefur mjög gaman að því að kanna
hvernig nota megi myndvarpa
til þess að virkja almannarými.
LeikhúS DagSkrá um hyLDýpi
Heilluð af
frásagnarhefð
ömmu
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir vakti athygli erlendra gesta
sviðslistahátíðarinnar LÓKAL. Hún fékk boð um að taka þátt
í tilraunasýningu á gagnvirkri sviðslistahátíð þar sem áhorf-
endur taka þátt í mótun verks. Þar flutti hún dagskrárverk um
hyldýpi. Hún mun svo fara fyrir föruneyti fjögurra ungra lista-
manna til Helsinki þar sem verkið, sem er í stöðugri mótun,
verður flutt á alþjóðlegri hátíð.
Ragnheiður Harpa tekst á við dagskrá Hyldýpisins í sviðslistaverki sem hún
flytur ásamt fleiri á Norðurlöndunum.
Helgin 2.-4. nóvember 2012