Tölvumál - 01.12.1999, Qupperneq 18
Kasmír mikl
er á myndina.
• Reynið að nota fáar myndir á hverri
síðu.
• Endumýtið myndir á síðu, þegar vafr-
ari hefur birt mynd einu sinni er hún
geymd í flýtiminni og birtist því hratt
eftir fyrsta skipti.
• Ef GIF skrá er notuð notið þá sem
fæsta liti og vistið sem _interlaced“.
• Ef JPG skrá er notuð reynið þá hæstu
þjöppun, minnkið síðan þjöppunina að
því marki þegar gæða/stærðar hlutfall-
ið er ásættanlegt.
• Skiptið stórum myndum upp í töflu-
reiti. Ath. að TCP/IP sendir gögn í
litlum pökkum.
X-einingar
Ef þörf er á birtingu efnis sem krefst sér-
stakrar vinnslu úr gagnagrunni eða gagn-
virkni við notendur vefsins em svokallaðar
X-einingar notaðar (Informix-einingar).
Þessar einingar em settar inn í síðuumsjón-
arhluta Kasmírs með kviklegu tagi sem tek-
ur heiti einingarinnar og aðrar breytur, sem
skilgreina útlit og eiginleika einingarinnar,
sem færibreytur. Útlit X-einingarinnar fer
eftir sama staðli og HTML og dæmi um
hvemig X-eining er notuð í Kasmír væri:
<?xeining h={ heiti x-einingar) b={breyt-
ur)>.
Með Kasmír fylgja nokkrar X-einingar
til ýmissa nota, þar má nefna sem dæmi
fréttaeiningu, fyrirspurnaeiningu, leitar-
vél, netfangalista og breytingalista. X-ein-
ingunum getur fylgt umsjónarhluti eins og
tilfellið er með fréttaeininguna. Fréttaum-
sjónarhlutinn gefur möguleika á að slá inn
frétt og láta Kasmír birta hana strax eða
sjálfvirkt á fyrirfram ákveðinni dagsetn-
ingu. Fréttaeiningin sér um að flokka frétt-
irnar og sér til þess að eldri fréttir séu
ávallt aðgengilegar. Ef nægt efni er í
reglubundnar fréttir á vefnum er fréttasíða
sterkur leikur til að gera vef fyrirtækisins
áhugaverðari. Ohætt er að segja að fólk
sækist í fréttir en einir fjölsóttustu vefir
landsins em einmitt fréttavefir sbr. visir.is
og mbl.is.
Árni Cunnar Róberisson, rafmagnsverkfræð-
ingur, er höfundur Kasmírs
18
Tölvumál