Tölvumál - 01.12.1999, Side 37
NetWorld + Interop
ing og hönnun, Öryggi, Viðskipta- og net-
kerfisstefnumótun, Samruni gagna, tals og
myndsendinga og Windows NT.
Flestir Islendingarnir sóttu dags nám-
skeið hjá David Passmore, en hann er virt-
ur ráðgjafi í svokölluðum arkitektúr net-
kerfa. Þar var farið ítarlega í þrjá þætti
arkitektúrsins; tæknistöðu (e; technical
positions), kerfismát (e; templates) og
grunnreglur (e; principles).
Arkitektúr netkerfis er skilgreining á
meginþáttum þess og hvernig þættirnir
spila saman. Hann lýsir æskilegri heildar-
hönnun net- og fjarskiptakerfis og tekur
mið af stefnumótandi tímaramma frekar
en útfærslu (með ásýnd á þrjú ár eða
meira). Arkitektúr er ekki það sama og
högun netkerfis sem segir til unt stærð og
staðsetningu eininganna, heldur er hann
leiðbeinandi unt tæknilegar útfærslur.
Tæknistaða lýsir þeim stöðlum eða skil-
greiningum sent eiga við alla meginþætti
högunar netkerfisins. Dænti um tækni-
stöðu eru fullyrðingar eins og þessi: „Öll
tölvukerfi skulu eingöngu keyra á IP sam-
skiptahætti.” Eða: „Staðarnet skulu byggja
á 100 Mb/s netskiptri Ethernet netmiðju.
Nethryggur skal ekki vera ATM.”
Kerfismátin eru teikningar sem sýna
dreifingu kerfisþáttanna og hvernig þeir
tengjast saman. Mát geta einnig verið lík-
ön sem sýna samspil á milli kerfisþáttanna
sem skilgreindir eru í tæknistöðunni.
Grunnreglur arkitektúrs eru hástemdar
markmiðssetningar sem tengja netkerfið
við viðskiptaleg markmið starfseminnar.
Grunnreglurnar innihalda gildi og eigin-
leika fyrirtækisins og styðja við stefnu
þess. Grunnreglurnar leiða síðan tækni-
stöðuna og kerfismátin.
Við skilgreiningu á arkitektúr netkerfis
er byrjað á því að setja fram grunnreglurn-
ar útfrá viðskiptalegum markmiðum fyrir-
tækisins, og síðan eru teiknuð og hönnuð
mát sent leiða síðan lil skilgreininga á
tæknistöðu varðandi alla meginþætti net-
kerfisins. Slíkur arkitektúr er lykill að
sveigjanleika netkerfis til þróunar og
stækkunar og forsenda fyrir hagkvæmum
rekstri kerfisins. Góður og vel skilgreind-
ur arkitektúr er mikilvægasta forsenda
þess að samræmi sé milli væntinga starf-
seminnar og þeirrar upplýsingaþjónustu
sem veitt er á netkerfinu.
Lokaorð
NetWorld+Interop er mjög gagnleg ráð-
stefna þar sem margt er á döfinni. Auk
þess sem hér hefur verið tjallað um voru
ýmsir sérstæðir fyrirlestrar og kynningar-
námskeið unt málefni eins og staðamet,
víðnet og ýmsar tækninýjungar, auk vett-
vangs fyrir umræðu um framtíðina og
stefnumótun í upplýsingatækni. Og um
kvöldmatarleitið tvo ráðstefnudagana voru
í gangi fundir undir formerkinu „sækjast
sér um líkir” (e; birds-of-a-feather) þar
sem jafningjar gátu sest niður og fjallað
um sín hugðarefni.
A ráðstefnunni var líka bókabúð þar
sent hægt var að skoða og meta bækur um
ýmis málefni tengd tölvum og netkerfum.
Algengt er að ráðstefnugestir skoði bæk-
urnar og skrifi hjá sér en panti síðan á vef-
setri á Alnetinu. Tölvuver voru víða um
svæðið þar sent hægt var að skrá sig inn á
staðarnet sýningarinnar og senda tölvu-
póst og tengjast Alnetinu. Gefið var út
dagblað og rekin útvarpsstöð, en einnig
voru beinar sjónvarpssendingar inn á Al-
netið. Fyrirtækið Nokia bauð 500 ráð-
stefnugestum þráðlaust fjarskiptakort í
fartölvur sem gerði þeim kleift að sitja
hvar sem var með tölvurnar sínar og vinna
inn á staðarneti ráðstefnunnar með að-
gangi að Alnetinu og tölvupósti.
Margt athyglisvert kom fram á ráðstefn-
unni. Leiga á notkunarhugbúnaði (e; app-
lication service providers: ASP) er vax-
andi, þar sem viðskiptavinir geta keypt að-
gang hjá miðlægum þjónustuaðilum að
ýmsum forritum, þar á meðal skrifstofu-
kerfum og ljárhagskerfum auk aðgengis
að Alnetinu og tölvupósti. Hýsiþjónusta
fer líka vaxandi, en þá er tölvukerfi við-
skiptavinarins hýst hjá miðlægum þjón-
ustuaðila. Þetta er einfaldara og ódýrara
með tilkomu fjarvinnsluþjóna eins og
Terminal Server frá Microsoft og biðlara-
hugbúnaðar frá Citrix. í slíkri útfærslu fer
tölvuvinnslan fram á netþjóninum en ein-
ungis gögnum vegna lyklaborðsásláttar,
hreyfingar músar og uppfærslu skjá-
mynda, ásamt prentskrám, er varpað yfir
fjarvinnslutengingar.
Athyglisvert var að mikið af þeint hug-
Tölvumál
37