Heimilisritið - 01.01.1947, Síða 40

Heimilisritið - 01.01.1947, Síða 40
og kyssa hana rembingskossa á báðar kinnar, einsog franskur hers- höfðingi, sem úthlutar heiðm-s- merkjum. Svo mundi hún hita te og þau mundu setjast hjá aminum og tala saman. En Ben var hér ekki. Hún leit á klukkuna og sá að hún var næst- um tíu. Ef til vill ætlaði hann ekki að koma heim í kvöld þar eð liann vissi ekki um komu hennar. Það hafði oft komið fyrir, að hann gisti í borginni næturlangt af því störf hans töfðu hann frá að ná síðustu kvöldlestinni. Ef hann kæmi ekki fljótlega, mundi hann alls ekki komast heim. Hún var ekki ánægð með þá til- liugsun. Hún heyrði þytinn í trjá- toppunum og ýlfrið í storminum umhverfis litla húsið. Næstu ná- grannar voru meira en mílu í burtu og hún fann sárt til einstæðings- skapar síns þetta óhugnanlega ó- veðurskvöld. Hún var þrjátíu og fimm ára og hafði verið gift í fimmtán mánuði. Henni fannst ennþá það vera lík- ast ævintýri, að hún skyldi yfir- leitt hafa gifzt. Hún fór að ganga um húsið og kveikja Ijósin. Ben hafði skilið við allt í röð og reglu, enda var liann snyrtimenni. Brátt veitti hún því eftirtekt, að það var mjög kalt í húsinu svo hún fór inn í setustof- una til þess að kveikja upp í arnin- um. Þegar farið var að loga, gekk hún fram í eldhúsið, til þess að hita te. Hún var undarlega eirðar- laus og gat ekki verið kyrr, en þó var gott að vera komin heim. Hún gekk aftur inn í setustofuna, sem var einkar hlýleg og viðkunnanleg, þótt hún væri lítil. En jurtirnar í glugganum voru dánar; Ben hafði gleymt að vökva þær, þrátt fyrir á- minningar hennar, og nú héngu þær visnar og máttlausar í þurrum jurtapottunum. Þessi sýn jók dap- urleikann, sem var í þann veginn að eyðileggja gleðina af heimkom- unni. Hún fór fram í eldhúsið og sótti te í bolla og setti hann á lítið kringl- ótt borð, sem stóð hjá stóra hæg- indastólnum er Ben var vanur að sitja í. Eldurinn logaði glatt, en henni var kalt. Hún skalf og fór í gamlan jakka af Ben, áður en hún settist niður. Stormurinn buldi á hurðinni og rúðunum og regnið heyrðist án af- láts skella á þakinu. Hún hlustaði og þráðj komu Bens innilega. Aldr- ei hafði hún verið svona einmana. Hann hafði verið svo góður, þegar hún vakti máls á þessari heim- sókn til systur hennar, sem var veik. Hann hafði fylgt henni á járnbrautarstöðina með fullt fang- ið af bókum og ávöxtum. Hún vissi þó, að hann var ekki gefinn fyrir að eyða peningum, hann var aðsjáll í þeim sökum. 38 HEIMILISRITIB

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.