Heimilisritið - 01.01.1947, Qupperneq 63

Heimilisritið - 01.01.1947, Qupperneq 63
r Aðdáun Sögukorn eftir Kristínu S. Njarðvík-y HANN LÁ í heitum sandinum og horfði á hana aðdáunaraugum. Hann hafði aldrei veitt því eftir- tekt fyrr, hve hún hafði litla og snotra fætur.--------Nú stanzaði hún. Á hvað skyldi hún vera að horfa? Gaman væri að vita það. Það var merkilegt, að hvorki hann né félagar hans hö'fðu veitt henni athygli fyrr. Eins og hún var þó búin að vera þarna lengi. Hann sneri sér á hina hliðina og var að hugsa um að fara út í vatn- ið. Það var freistandi að sjá bár- urnar skvettast upp að steinunum. . Jú! — — Hann ætlaði að fara að synda einu sinni yfrum. Nei — —■ Ósjálfrátt varð honum litið á hana aftur. Hvernig stóð á því, að hann gat ekki haft augun af henni? Nú færði hún sig nær honum. Skyldi hún hafa tekið eftir því, að hann var að horfa á hana? Kannski. Hvað mundi hún nú hugsa um hann? Eða hugsaði hún yfirleitt nokkuð um hann? Um hvað skyldi hún vera að hugsa? Var hún að hugsa um góða veðrið? Eða var hún að hugsa um, hvað það væri nú annars fyrirlitleg < HEIMILISRITIÐ sjón að sjá þrjá fullorðna karlmenn liggja þarna í sandinum og sleikja sólskinið, meðan flestir ungir menn á þeirra aldri væru við vjnnu sína? Nei----------Hún hugsaði áreið- anlega ekkért þessu líkt, og kannski hugsaði hún alls ekki neitt' núna. Ef hann væri ekki að horfa á hana þessa stundina, þá myndi hann áreiðanlega liggja og glápa út í loftið, án þess að hugsa nokk- uð. En hvað það hlyti að vera gam- an, að snerta hana. Bara að koma við hana rétt sem snöggvast. Hann vaknaði upp úr þessum hugleiðingum sínum við að heyra Pétur segja í þróttmikilli rödd: „Mér finnst nú nógu ræfilslegt af okkur að liggja hér í leti, þó þú eyðir ekki öllum morgninum í að glápa á skordýr“. — — — Litla, svarta paddan skreið áfram eftir sandinum, án þess að hafa hina minstu hugmynd um þá athygli, er henni hafði verið veitt. E N D I R 61
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.