Heimilisritið - 01.09.1947, Síða 7

Heimilisritið - 01.09.1947, Síða 7
Hercule Poirot hóf upp hend- urnar. „Ég get fullvissað yður um, madame, að ég er kominn hingað af sömu ástæðum og þið hjónin — til þess að hafa það þægilegt — til þess að hvíla mig“. Ungfrú Brewster greip fram í með hvellum rómi: „Enga dauða líkama hér á Smyglara-eynni“. Hercule Poirot sagði: „0 — það er nú svo með það“. Hann benti niður eftir. „Lítið á þessa; hverjir ei*u það? Þetta eru ekki menn og konur. Ekkert per- sónulegt — bara líkamar!“ Bary majór sagði með hrifningu: „Dáindis laglegar telpur, sumar að minnsta kosti; kannski nokkuð mjóslegnar“. Poirot hrópaði: „En hvar er það dularfulla og heillandi? Ég er af gamla skólan- um; þegar ég var ungur, sá maður í hæsta lagi öklana. Það brá fyrir hvítum faldi, hvíb'k eggjun — hvelfdur kálfi — hné —:Sokkaband með slaufu ...“. „Ilvaða dónaskapur!“ rumdi í Barry majór. „Það er miklu skynsamlegra eins og nú tíðkast", sagði ungfrú Brewster. „Já, já, Poirot'1, sagði frú Gard- ener. „Þér verð'ið að ganga inn á, að framkoma æskunnar nú á dög- um er miklu skvnsamlegri og heil- HEIMILISRITIÐ næmari. Þetta er ungt og leikur sér, ef þér skiljið, hvað ég á við, já, þau“ — frú Gardener roðnaði; hún var siðavönd kona — „þau meina ekkert með því, ef þér skilj- ið hvað ég á við“. „Já, ég veit“, sagði Poirot, „því miður að segja“. „Því miður?“ hrópaði frú Gard- ener. , Já, að allri rómantík skuli vera sópað á burt — öllu þvi dularfulla. Nú er allt jafnað og sléttað út“. Poirot benti á líkamana í fjörunni. ..Þetta minnir mig alveg á La Morgue í París“. „Poirot!“ Frú Gardener ofbauð. „Svona niðurraðaðir skrokkar — eins og í kjötverzlun!“ „En góði Poirot, er þetta nú ekki nokkuð hranalega tíl orða tekið?“ Hercule Poirot viðurkenndi það. ,,Jú, ef til vffl". „Samt sem áður, ég myndi vera yður sammála að einu leyti. Þessar stúlkur, sem liggja svona berar í sólinni, verða loðnar bæði á fótum og handleggjum. Það sagði ég við Irenu — það er dóttir mín, Poirot. Irena, sagði ég, ef þú liggur svona í sólskininu, verður þú öll kafloð- in, bæði á fótum og handleggjum, og brjósti; það verður ekki sjón að sjá þig, það sagði ’ég — var það ekki, Odell?“ „Jú, elskan“, sagði Gardener. Það varð þögn um stund. Ef til vill voru þau að velta fyrir sér út- 5

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.