Heimilisritið - 01.09.1947, Page 11

Heimilisritið - 01.09.1947, Page 11
IV Það varð þögn. Stephen Lane ræskti sig og sagði nokkuð borgin- mannlega: „Þér sögðuð nokkuð, sem hreif huga minn áðan, Poirot. Þér sögð- uð að það væri margt misjafnt undir sólinni. Það vaf eins og þér væruð að vitna í Prédikarann. Hann þagnaði stundarkorn og vitnaði síðan: ,,Og hjarta mann- anna fyllist illsku og heimska ríkir í hjörtum þeirra alla œvi —“. And- lit hans varð uppljómað af guð- móði. „Það gladdi mig að heyra yður segja það. Nú á dögum trúir enginn á hið illa; það er frekar lit- ið á það sem tilslökun á hinu góða. Illvirki eru nú bara framin — segir fólk í fávizku sinni — af þeim sem eru vanþroska, og verðskulda frek- ar meðaumkvun en áfellisdóm. En, Poirot, hið illa er staðreynd. Eg er trúaður á hið illa, eins og guð er uppi yfir mér. Það er voldugt, jörðin er akur þess!“ Ilann hætti skyndilega. Hann var orðinn móður. Hann þurrkaði ennið með vasaklút og varð bljúg- ur í útilti. „Eg bið ykkur afsökunar; ég gleymdi mér alveg“. Poiret sagði rólega: „Ég skil hvað þér eigið við. Að vissu leyti er ég á sama máli. Hið illa herjar á jörðina, því verður ekki neitað“. Barry majór ræskti sig. „Fyrst við förum út í það, þá voru það nú þessir fakírar í Ind- landi —“ Bary majór var búinn að vera það lengi í Jolly Iloger, að menn voru yfirleitt á verði gagnvart þeirri tilhneigingu hans, að koma að löngum og ítarlegum sögum frá Indlandi. Ungfrú Brewster og frú Redfern gripu án tafar inn í við- ræðurnar. „Það er maðurinn yðar sem er að synda upp að, frú Redfern, er það ekki? En þau sundtök. Hann er fyrirtaks sundmaður“. Um leið sagði frú Redfern: „Nei, sko fallega bátinn þarna, með rauðu seglunum. Það er víst BIatts“. Báturinn með rauðu seglunum slagaði út af víkinni. Barry majór muldraði: „Er það uppátæki, rauð segl!“ En sögunni um fakírana var rutt úr vegi. Hercule Poirot horfði með að- dáun á hinn unga mann, sem var að stíga upp úr sjónum. Patrick Redfern var fallega vaxinn maður; vöðvamikill, herðabreiður, en mjór um lendarnar, og dökkbrúnn að hörundslit.. Ilann var altillegur og glaðvær i fasi, og því geðþekkur jafnt konum sem körlum. Nú stóð hann þarna í fjörunni og strauk af sér vatnið. Hann veif- aði hendi t'il konu sinnar. Hún veifaði aftur og kallaði: HEIMILISRITIÐ 9

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.