Heimilisritið - 01.09.1947, Síða 17

Heimilisritið - 01.09.1947, Síða 17
Á hverjum degi kemur það oft fyrir, að við vildum hafa verið ró- legri og hafa haft betri framkomu, en við sýndum við einstök tilfelli. Svo sem húsmóðirin, er kemur 'til dyra í morgunkjólnum sínum, jiegar einhver ber að dyrum. Hún er svo óstyrk út af sjálfri sér, að hún afsakar sig í sífellu, lagar á sér hárið, dregur niður pilsið, kross- leggur fæturna til þess að hylja lykkjuföllin í sokkunum. Ef hún gæti aðeins gleymt útliti sínu og hugsað um gest sinn, myndi hún vera rólegri og finnast gesturinn vera skemmtilegur. Gestinum myndi þá einnig finnast hún skemmtileg. Málafærslumaðurinn hafði þann óvana að slá á réttarborðið, fitla við bindið sitt og flibbann. Þegar hann fór að hugsa meira um aðra menn, gleymdi hann sjálfum sér og losnaði við þetta fum. í stað joess að banka á borðið taldi hann hrukkurnar í andliti annars lögfræðings. Tímaeyðsla, auðvitað, en hann hugsaði þá um einhvern annan. Hann horfði á flibba kviðdómaranna, og sérhver kviðdómandi varð upp með sér vf- ir ])ví, að málafærslumaðurinn skyldi horfa á hann með þessum áhuga. Þegar hann stóð upp til að gefa kviðdómnum yfirlit um málið, hætti hann að hugsa um bindið sitt, en í staðinn hugsaði hann um skjólstæðing sinn og frægar máls- varnarræður, sem hann hafði lesið. Það hjálpaði honum bæði til að gleyma sjálfum sér og hafa betri framkomu, auk þess sem hinn á- gæti heili hans starfað án fums og óstyrks. Góð aðferð til að prófa. hvernig maður er í framkomu, er sú, að hugsa um atburði dagsins og at- huga, hvenær maður hefur hugsað um sjálfan sig og hvenær um ein- hvern annan. Sá, sem hugsar um aðra, hefur ekki aðeins viðkunnanlegri fram- komu, heldur fleiri vini, meiri skemmtun og fleiri tækifæri. 2. róð: Snertu á verndar- gripnum. ÚTGEPANDI eins stærsta dag- blaðs heimsins var nýlega kallað- ur á fund eftirlitsnefndar nokkurr- ar. Hann ákvað að hafa á sér sterk- an aga meðan á vitnaleiðslunni stæði. Með jiað fyrir augum notaði hann verndargrip. Enda þótt hann sé ekki hjátrúarfullur og trúi ekki á galdra, notaði hann þennan verndargrip og hann hreif. Verndargripurinn var aðeins lítill pappírssnepill, sem hann hafði skrifað á þrjár stuttar setningar: „Vertu rólegur — vertu ekki með fyndni — brostu“. Þetta lét hann í jakkavasa sinn HEIMILISRITIÐ 15

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.