Heimilisritið - 01.09.1947, Síða 23

Heimilisritið - 01.09.1947, Síða 23
andlitið. Úr myrkrinu við hlið mína heyri ég veikt korr, og um mig hríslast voðalegur grunur. Ég þýt fram úr rúminu og kveiki á lampanum fálmandi höndum. Maður, sem kveikir ljós í mvrkri og óvissu, tekst mikið á herðar. Það ljós, sem hann tendr- ar og gerir það grunaða að vissu, er ef til vill hans örlagaráðning. Og í rauðgulu olíuljósinu blasir við mér sjálf staðreyndin, hræðilegri hinum myrkasta draumi. A alblóðugum koddanum liggur Iírefna skorin á háls. Ég sé vopn- ið, Það er rakhnífurinn minn. Honum hafði ég stungið í rúms- hornið. Ég stend bugaður úti á gólfinu og finn blóð hennar á and- liti mínu og sé hendur mínar litað- ar blóði hennar. Það er eins og eitthvað snökkti inn í mér, líkari hryglu en gráti. Ég nálgast rúmið og sé hún er dáin. Þá grípur mig æði og ég þríf brækur mínar og hleyp út úr bæn- um, út í nóttina. í hæfilegri fjar- lægð snarast ég í brækurnar og hleyp berfættur í krapinu. Aðeins ein hugsun ræður för minni: til prestsins. Ég fer út í ána, þar sem ég kem að henni, hún er ekki djúp, en ég hrasa og dett, sýp hveljur og blóðga fætur mína á aurnum. En þegar ég kem til prestsins, hefur kuldinn og vosbúðin sljófg- að svo taugar mínar. að ég drep fingrunum rólega á dökkar rúðurn- ar. HVERNTG þessir mánuðir hafa liðið, dimmir og kaldir, skil ég ekki. Löng voru dægrin meðan ITrefna stóð hér uppi, en lengri hafa þau verið eftir að hún hvarf til hinnar röku moldar. Aum er tilvera þess manns, sem er undir áhrifum frá fjalli myrkursins, einn og fjarri mönnum; heyrir reiðiöskur þess úti i nóttinni og þekkir andardrátt þess á glugga sínum. hlyrkur ótt- ans slekkur jafnóðum hinn rauða loga hatursins sem kann að kveikna í sál mannsins. Ög mað- urinn verður viljalaus og beygir sig auðmjúkur undir vald hinna mvrku álaga. Eins og oft undanfarið hef ég verið andvaka í nótt. Ég veit að góumyrkrið liggur á glugganum, — ennþá er langt til vors. Og nú veit ég, að ég á að fara. fara strax í nótt og segja mannfólkinu að myrkrið sé svart og að stærsta fjall í heimi sér úr myrkri. En áður en ég hverf frá þessum stað, verð ég að inna af hendi mikla skyldu — heilagt verk. Ég verð að grafa hnífinn og koddann. Ræði hnífurinn og koddinn ge.vma blóð Hrefnu. Það er hluti af henni sjálfri og þarf að komast í gröf hennar. Ég læt góumyrkrið skýla mér við verk mitt. Fyrst þarf ég að gefa þér Rninn HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.