Heimilisritið - 01.09.1947, Side 25

Heimilisritið - 01.09.1947, Side 25
Hér er skýrt frá einstæðu morðmáli, sem vakti afar mik_ ið umtal í Englandi fyrir nokkrum árum. Raffenbury - málið Stoner stóð í útidyrunum og horjði þegj- andi á, þegar *jarið var burt með hana. „EINSTÆÐ í sögu glæpanna“ er margþvælt orðatiltæki, en um atvik, sem átti sér stað í lítilli villu í úthverfi Bournemouth, sunnu- dagskvöld eitt í marz 1935, má sannarlega nota það. I herbergi á neðri hæðinni var lagleg kona og ástleilin, um það bil þrjátíu og átta ára gömul, með viskýglaa í hendi, að reyna að kyssa lögreglu- mann, sem sýndi henni mótþróa, meðan dynjandi dansmúsík heyrð- ist frá grammófóninum. Fimm mínútum síðar sat vinnu- kona hennar hjá henni til að sefa æsingu hennar, og hinn vandræða- legi lögreglumaður flýtti sér þá í burtu. Á efri hæðinni var hinsveg- ar læknir einn að rannsaka blóð- ugt og rnarið höfuðið á eiginmanni konunnar; það hafði verið molað með hamri. í einhverjunr ákveðn- um hluta byggingarinnar leyndist hinn ungi glæpamaður. sein hafði gefið höggið. Þessi frábæri hrærigrautur af því líklega og ólíklega, því mann- lega og ómannlega, er gott ein- kenni morðsins, því hlægilega og sorglega í senn, sem menn þekkja undir nafninu Rattenburymálið. í aðalatriðum var það einfalt mál, ósköp venjulegt. Það er það, sem eftir fylgdi, sem var óvenju- legt. Annars er „óvenjulegt" of- veikt orð til að nota um þetta mál. Frú Rattenbury var ungleg 'kona, gift manni, sem var þrjátíu árum eldri en hún. Samband þeirra var fremur eins og samband föð- ur og dóttur en karls og konu. Rattenburv var við'feldinn, en hann drakk, og konan hans áleit hann nizkan. Hún var nijög óstyrk, tauga- veikluð, sjálfelsk, en göfuglynd við þá, sem henni líkaði við. Hún var alþýðleg við þjón- ustufóljk sitt, og aðeins tveim mánuðum eftir að hún hafði ráðið HEIMILISRITIÐ 23

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.