Heimilisritið - 01.09.1947, Page 30
Allir segja að við séum plága
Huggunarrík grein fyrir unglinga
eftir E. R. og G. H. Croves.
EF Þú hugsar sem svo, að ekk-
ert, sem þú gerir, sé nú lengur rétt,
og að eina leiðin til að geta glaðst
sé að forðast þá fullorðnu, þá
mætti þér verða huggun í því að
ta'ka það til athugunar, að þeir full-
orðnu urðu eitt sinn að reyna þetta
sama sjálfir og voru „eitur í bein-
uin“ fullorðinna á sinni tíð!
í uppvextinum er eitt eðlilegt
tímabil, sem nefnt er unglingsald-
urinn. Allir foreldrar hafa reynt
það, en fáir kunna nokkur skil á
því. Enn færri gera nokkuð til að
reyna að setja sig í spor ungling-
anna; það virðist auðveldast „að
láta þig bara vaxa upp úr því“, það
hkiptir minna máli þó skammir
þeirra og ólund þín sameinist til
að gera báða aðila leiða og lífs-
þreytta.
■ ★
Uppvaxtarárin eru
mörgum unglingum
crjið. Þeir vita eJcki
hvað þeir eiga að að-
hafast, eru latir,
brjóta heilan um kyn-
ferðismál og geta
aldrei verið þcim full-
orðnu til hœfis.
★
igerfi, hæfni þinni til að skemmta
þér, og því, að þú skulir eiga lífið
iframundan. Þegar þeir sjá þig og
félaga þína flissa að tilefnislausu,
ávíta þeir þig ef til viil, en í raun-
inni sakna þeir eigin æsku.
Þessi dulda öfund lýsir sér stund-
um í því, að sumir foreldrar leit-
ast við að lifa lífinu fyrir þína
hönd — ráðríki nefnir þá það. Þeir
vona að sjá eitthvað af sínum eig-
in glötuðu markmiðum nást, með
því að ákveða, hvað þú skulir
verða, þegar þú ert fullvaxta. Þá
langar til að yngjast upp í þér sjálf-
um.
Fullorðnir öfunda þig í raun og
veru
Eina af ástæðunum til þess að
fullorðnir finna að iframferði þínu,
klæðaburði og talsmáta, gera þeir
sér líklega ekki Ijósa sjálfir. í
hjarta sínu öfunda þeir þig af á-
hyggjuleysi æskunnar, líkamsat-
Þetta á einkum við um foreldra,
sem orðið 'hafa fyrir vonbrigðum á
unga aldri. Og í rauninni er það
svo, að framkoma þeirra gagnvart
þér, meðan þú ert unglingur, mót-
ast nokkuð af því, hvað þau hafa
reynt í æsku sinnii Hafi þau verið
hamingjusöm, hættir þeim síður til
að amast við leikjum þínum og
eru 'líklegri til að taka þátt í þeim;
28
HEIMILISRITIÐ