Heimilisritið - 01.09.1947, Page 34

Heimilisritið - 01.09.1947, Page 34
Nú loksins má ljóstra því upp LEYNDARMÁLIÐ Gamansaga eftir C. S. Forester NÚ, að hundrað árum liðnuin, ætti ekki að koma að sök, þótt ljóstað sé upp einu af hneykslis- málum fjölskyldu minnar. Það er mjög vafasamt, að ung- fní Forester (hún hét Eulalie, en þar eð hún var elzt dætranna og ógift, var hún auðvitað kölluð ung- frú Forester) og ungfrú Emilv Forester og ungfrú Eunice Forest- er, hafi rennt grun í það 1843, að árið 1947 yrði lenydarmál þeirra systra gert 'ýðum kunnugt. Yfir- leitt er injög vafasamt, að þær hefðu lagt trúnað á það, að heim- urinn yrði nokkurntíma þannig, að saga þeirra j'rði sögð hispurs- laust á prenti. í dag gengu slíkar sögur aðeins í hvíslingum kvenna á milli, þegar setið var yfir kaffidrykkju í dag- stofunni. En leyndarmáli Forest- er-systranna var hvíslað það lengi, að það náði að lokum eyrum afa míns, er var bróðursonur þeirra, og afi minn sagði mér söguna. Arið 1843 voru ungfrú Forester og ungfrú Emily Forester og ung- frú Eunice Forester þegar orðnar aldraðar jómfrúr. Fornfálega Georgíu-húsið, sem þær bjuggu í, dró sig siðlátlega í hlé frá hávaða og ærslum markaðstorgsins, alveg eins og íbúar þess. Já, systurnar lifðu mjög hlé- drægu lífi. Þær fóru stöku sinnum til kirkju, þær heimsóttu þá sjúkl- inga, sem heiðarlegum og virðuleg- um jómfrúm var sæmandi að heimsækja, þær lásu bragðdauf- ari skáldsögurnar í útlánsbóka- saifninu, og öðru hvoru buðu þæi ráðsettum konum til tedrykkju. Og einu sinni í viku buðu þær til sín karlmanni. Það lætur nærri að segja, að þær hafi beðið alla vikuna með óþreyju eftir heim- sóknum Achesons læknis. Acheson læknir var (engin systr- anna hefði verið það harðlynd að 32 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.