Heimilisritið - 01.09.1947, Side 37

Heimilisritið - 01.09.1947, Side 37
kvæmt stöðu sinni sem aldursfor- seti, kallaði á Deborah, stofustúlk- una, og bað hana að fara og sækja Acheson lækni, en það afsannar ckki. að hún hafi orðið fyrir slys- inu. Því hvort sem ungfrú EulaJie var slösuð, eða ekki, þá skorti hana ckki rómstyrk til að segja Deborah, hvað hún ætti að gera. Deborah sótti lækninn og fylgdi honum til svefnherbergis ungfrú Eunice, en auðvitað er sú stað- reynd, að honum var fylgt þang- að, engin sönnun þess, að ungfrú Eunice hafi verið þar inni. Acheson gat aldrei sannfærzt um það. Allt, sem hann sá, var liggjandi hrúgald, vafið í lak. A mitt lakið var skor- ið gat, eitt fet að ummáli, og gegn- um gatið sást á sitjanda sjúkfings- ins. Acheson krafðist engra skýringa. Ifann tók nálar sínar og sára- tvinna upp úr litlu, svörtu hand- töskunni og saumaði saman verstu skurðina, og gerði að hinum. Loks rétti hann úr sér og strauk helaumt bakið. „Ég jnirf að taka sauminn úr síðar“, sagði hann við þöglu ver- una undir lakinu, sem hafði borið sársaukann með hetjuskap og án þess að kveinka sér. „Ég kem þá næsta miðvikudag". Forester-systurnar yfirgáfu ekki herbergi sín þar lil næst miðviku- dagur Tann npp. Engin þeirra sást á ferli á götunum, og ]:>egar dr. Acheson kom, fylgdi Deborah hon- um enn einu sinni upp í svefnher- bergi ungfrú Eunice. Þarna lá hrúgaldið í rúminu, og þarna var lakið með gatinu á. Acheson tók sauminn úr sárunum. „Það hefur gróið vel“, sagði Acheson. „Ég hehl ég þurfi ekki að líta á þau.oftar“. Veran undir lakinu jiagði, enda bjóst Acheson ekki við öðru. Hann gaf sjúklingnum nokkrar leiðbein- ingar, kvaddi og fór. Hann varð feginn, jiegar hann fékk boðskort áritað með hinni föstu rithönd ung- frú Forester. „Kæri Acheson! „Okkur væri öllum ánægja að því, ef þér kæmuð og spiluðu vist við okkur í þessari viku, eins og venjulega“. Þegar Acheson kom til systr- anna, uppgötvaði hann, að „eins og venjulega“ höfðaði einungis til komu hans sjálfs, því örlitlar en kænskulegar breytingar höfðu ver- ið gerðar á húsgögnum stofunnar. Á hinum klunnalegu, bakháu stólum, þar sem systurnar voru vanar að sitja, var komið fyrir þægilegum svæflum. Það var á einskis færi að gizka á, hver þeirra systra þvrfti á slíkri sessu að halda. E N D I R HEIMILISRITIÐ 35

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.