Heimilisritið - 01.09.1947, Page 38
NÁSKYLD OG ÁSTFANGIN
Sp.: Iíæra Eva Adams. Eg leita til þín
í miklum vandræðum og vona, að þú svar-
ir mér fljótt. Ég er leynilega trúlofuð
strák, sem er mjög skyldur mér, en við
þorum ekki að opinbera af ótta við hreyksli
vegna skyldleiks okkar. Hvað eigum við
að gera? F. L.
Sv.: Ef þið eruð systkinabörn getið þið
gifst; ég tala nú ekki um ef þið eruð fjar-
skyldari. En ég vil samt ráðleggja þér að
ræða málið við móður þína, eða einhvern
annan nákominn, áður en þið takið ákvörð-
un í málinu.
RÁÐ VIÐ KVF.FI
Sp.: Ég er ákaflega kvefsækinn og er svo
að segja alltaf með kvef. Þó að ég fái
hóstamixtúrur í lyfjabúðum og drekki þær
í potlatnli virðist inér það hnfa lítið að
segja. Getur þú ekki gefið mér eitthvert
gott ráð við þessu? Kvcfsœlcinn
Sv.: bað eru til mörg húsráð við kvel'i.
Eilt er til dæmis þannig, að þegar þú verð-
ur vnr við, að þú sérL að byrja að fá
kvef, skallu strax fara út í lireint loft og
anda djúpt, nokkra slund. Annað er á þá
leið, að sá kvefaði á að hafa glas af köldu
vatni, eða öðrum svaladrykk hjá sér og
súpa á með stultu míllibili.
Læknav'sindin standa ennþá alveg ráða-
laus uppi gegn kvefsýklunum. Læknar geta
að vísu gefið lyf, sem losar dálítið um slím,
ef gætt er hófs í nolkun þess, en meira
munu þeir vart geta. énn sem komið er.
Telja verður þó, að holl og einföld fæða
ásamt góðri meltingu sé vörn gegn kvefi.
Gæta skal og þess, að láta sér ekki verða
kalt einkum á fótum og hnakka.
RANGEYGT BARN
. Sp.: Kæra Eva mín. Ég er ung móðir og
langar til að sp.vrja þig um eitt. Ég hef
miklar áhyggjur út af því, að barnið mitt,
sem er á öðru ári, er range.vgt. Mér var
sagt, að þetta myndi lagast á fyrstu mán-
uðunum, en raunin er önnur. Ég hef talað
við lækni, en hann segir að Jietla megi laga
með uppskurði. Ileldurðu nú, að ekki sé
til eitthvað ráð, annað en uppskurður, til
þess að bæta úr þessu? Vng móSir.
Sv.: Reyndu að hylja það augað, sem
heilbrigt er, með svörtum silkilappa sam-
anbrotnum og binda hann ])ar fastan með
bandi aftur fyrir höfuð barnsins. Þá getur
það aðeins séð með því auganu, sem skakkt
vísar. Eftir hálfan mánuð ætti þetta að
hafa lagast.
Ennfremur er hægt að hafa togleðurs-
pjötlu fyrir auganu með gati á stærð við
matbaun á henni miðri, þannig að augað
sér aðeins í beina stefnu fram fyrir sig.
Eftir 10—20 daga ætti barnið að vera orðið
rétteygt.
Ef þú leikur við barnið og sýnir því ein-
hvern hlut, skaltu muna að halda honum
ekki mjög nálægt andliti þess. Slíkt getur
meira að segja orðið til þess að ungbarn
verði rangeygt.
Eva Adams.
36
HEIMILISRITIÐ