Heimilisritið - 01.09.1947, Page 41

Heimilisritið - 01.09.1947, Page 41
aðinn. Sennilega var betra að trúa því, að allir segðu satt, heldur en að vita, að allir segðu manni ósatt. A laugardag ákvað Páll að kom- ast að því, hve alvarlegt samband væri á milli Gínettu og Rognons læknis. Gínetta hafði rétt einu sinni fengið gigtarkast og læknir- inn hafði dvalizt inni í svefnher- berginu hennar eftir frásögn iag- legu stofustúlkunnar. Þegar PáJl steig upp í vagn sinn að loknu starfi ætlaði hann beint heim til Gínettu, en varla hafði hann ekið af stað, þegar hann skipti um áætlun. Ilann nam stað- ar við tóbaksbúð gekk þar inn og fékk lánaðan síma. Hann hringdi heim til sín og kvaðst ekki geta konrið í m.atinn, því að hann þyrfti að fara á fund. Svo h'élt hann í næsta veitingahús. Hann ætlaði að fá sér í staupinu og sækja í sig móð, til að spyrja Gínettu hreint út, hvort hún hefði táldregið hann, meðan hann var í Ameríku. Mót- virkinn myndi síðan leiða hann í allan sannleikann. * Páll sat og drakfc þegar kunn- ingi hans Durand kom út úr síma- klefanum. „Komdu sæll, Páll“, sagði Dur- and og angað'i af absint. „Lolotta . vill ekki trúa því, að ég þurfi á fund, og heimtar, að ég komi stráx heim að borða. Góði komdu með. Þú hefur ekki heilsað upp n Lo- lottu síðan þú komst frá Ameríku. Við tökum Gínettu með“. „Þakka þér fyrir, en ég vil held- ur koma einn, en fyrst skaltu setj- ast hjá mér, ég þarf að gera tilraun á þér“. „Tilraun! Gjarnan, en þú mátt ekki nota vatn án brennivíns við hana“. Durand hló og settist í sófahornið og fékk sér tvöfaldan visky. Páll tók mótvirkann upp. „Ertu orðinn vitlaus, þú ætlar þó ekki að fara að mynda mig?“ „Viltu svara mér spurningu. Hvað borgaðirðu fyrir bílinn þinn?“ „200.000 franka“, svaraði Dur- and án þess að roðna. „Það cr lygi, kunningi. Mótvirk- inn segir mér það, já það er skrít- ið, en þetta er nýjasta ameríska uppfinningin. Þú hefur ekki borg- að meira en 100.000 franka, ef þú hefur yfirleitt borgað hann“. Næsta spurning: „Ert það þú, sem keyptir 500 B. verðbréf í Ame- rican Steel?“ „Hv.ernig getur þér dottið slíkt í hug? Það hefur aldrei hvarflað að. mér“. „Lygi“, sagði Páll og leit á tæk- ið. „Refurinn þinn. Steel hlutabréf- in fara þá að stíga í verði“. Hann stóð á fætur, hringdi á skrifstofu sína og gaf fyrirskipun um að kaupa 1000 B. verðbréf í Steeí. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef beinlínis grætt á mótvirkanum". „Ég er alveg undrandi“, stamaði HEIMILISRITIÐ 39

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.