Heimilisritið - 01.09.1947, Qupperneq 47

Heimilisritið - 01.09.1947, Qupperneq 47
nokkur epli, en við þorðum ekki að borða þau að svo stöddu, því að við vissum ekki hve lengi ferðin stæði yfir. Það varð allt að spara. Þarna var indælt 7 niánaða gamalt barn, er hafði orðið viðskila við foreldra sína. En við höfðum hvorki mjólk né vatn að gefa litla drengnum. Mamma muldi epli og mataði hann með því. Sex önnur foreldralaus börn voru í vagninum, auk litla drengsins. En þau voru svo á legg komin, að þau spjöruðu sig sæmilega. Við vorum látin í vagninn fyrri hluta dags. En klukkan var orðin þrjú um nóttina eftir, er ekið var af stað. Hvert halda skyldi höfð- um við enga hugmynd um. Að tveim sólarhringum liðnum feng- um við ofurlítið vatn. Annars hvorki vott né þurrt þá þrjá daga og fjórar nætur sem ferðin tók. Loksins staðnæmdist lestin kl. 11 fyrir hádegi. Marin og dauð- þreytt stauluðumst við út úr lest- inni. Við sáum stórt auglýsinga- spjald með nafninu ,,Ausch\vitz“. Frænka mín hafði verið í þessum fangabúðum. Höfðum við -feng'ið bréfspjald frá henni. A því stóð: „Mér líður vel o. s. frv.“ Vitanlega voru fangarnir hræddir til þess að ljúga því að þeim liði vel. Við vissum ekki, að Auschwitz var „útrýmingarstöð“, eða fanga- búðir dauðadæmdra. Við bjugg- umst við mildu erfiði. En okkur dreymdi ekki um þær hörmungar sem biðu okkar. „Heraus!“ Þjóðverjarnir ráku okkur áfram með byssuskeftunum. Þeim þótti fólkið of hægfara út úr vögnunum. Karlmenn og konur voru aðgreind. Pabbi gat aðeins kysst mig í flýti. 'Svo var hann horfinn frá mér. „Vertu stillt, stúlkan mín. Stillt“, sagði hann. Við mamma fylgdumst að. Syst- k-ini mín voru ennþá hjá okkur og nokkrar frænkur. Eg sagðist v-era 15 ára, er spurt var um aldur minn. Eg var þó að- eins 14 ára. Eg bjóst við að fá frekar að vera með mömmu ef ég segði mig eldri en ég var. Eg var með hita, og svo máttfarin að ég gat tæplega st'aðið. Og ég fylgdist lítt með því sem fram fór. Við mamma, ásamt nokkrum öðrum konum, gengum lítið eitt frá hmum föngunum. En þá kallaði unverskur SS-maður til mín: „Komdu! Þú getur gert eitthvað .til gagns. „Hún er veik“, sagði móðir mín. „Við skulum sjá um að hún komist til heilsu“. sagði maðurinn. Svo var mér ýtt í annan flokk kvenna. Ég gat ekki faðmað mömrnu né kvatt systkini mín. Ég sá mömmu aldrei framar. Hennar leið lá beint í gasklefana. Og syst- kini mín fóru sömu leið. Ég tárast er ég minnist þessa atburðar. HEIMILISRITIÐ 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.