Heimilisritið - 01.09.1947, Qupperneq 62
Reykjavíkurkabarelfinn skemmtir
Nokkru eftir miðjan ágúst síð-
ast liðinn tóku að hefjast hér
kabarettsýningar á vegum ný-
stofnaðs hlutafélags, er nefnist
Reykjavíkur-kabarettinn. Þar
koma fram bæði erlendir og inn-
lendir listamenn og hafa sýningar
þeirra hlotið mikla aðsókn. Eink-
um eru það þeir erlendu, sem vak-
ið hafa athygli og umtal, enda eru
þeir framarlega í sinni grein í Dan-
mörku, en þeir íslenzku eru hins-
vegar góðkunningjar okkar, sem
okkur finnst minna púður í að sjá,
þótt þeir kunni að vera engu minni
listamenn á sínu sviði.
Dönsku gestirnir, sem sýnt hafa
hér listir sínar að undanförnu, eru
alls fjórir. Fyrst má nefna skop-
leikarann Johan Tiersen, sem vak-
ið hefur óstjórnlegan hlátur með
tilburðum sínum. Hann er 27 ára
gamall Kaupmannahafnarbúi, sem
komið hefur fram í 15 ár, en verið
skopleikari að atvinnu undanfar-
andi 7 ár. Iíann hefur komið fram
í helztu skemmtistöðum Danmerk-
ur, m. a. Lon-y og National Scala,
auk þess, sem hann hefur skemmt
í Þýzkalandi. Hann var formaður
. Dansk Artistforbund í eitt ár.
Annar gestanna er hermikrákan
og söngvarinn Peter Kitter. Ilann
hefur lært söng undanfarin 10 ár
og gerir mikið í því að herma eftir
frægum söngvurum. Hann hefur
einnig komið fram í mörgum fræg-
um skemmtistöðum Danmerkur