Heimilisritið - 01.09.1947, Page 63
Johan Tiersen
og víðar, þau 9—10 ár sem liann
hefur helgað sig list sinni. Þá hef-
ur hann einnig liaft á hendi leik-
stjórn við útvarp. Hann er nýkom-
inn frá Finnlandi og mun fara héð-
an til hernámssvæðis Bandaríkj-
anna í Þýzkalandi.
Síðast en ekki sízt skal svo
minnst á hjónin Miamara og
Walter Shermon, sem sýnt hafa
hér „akropatik“ (ekki listdans, eins
og sumir halda) og vakið furðu
manna og aðdáun, einkum frúin.
Þau hafa sýnt listir sínar frá því
í barnæsku, en saman í tvö og hálft
ár, m. a. í Nissa, París, Monte
Carlo og Kaupmannahöfn, og héð-
an fara þau til Briissel og Ant-
werpen.
Innlendu listamennirnir, sem
kornið hafa fram í kabarettinum,
þegar þetta er ritað, eru m. a. leik-
ararnir Jón Aðils og Aróra Ilall-
dórsdóttir, söngvarinn Kristján
Ivristjánsson og hljómli$tarmenn-
irnir Fritz Weisshappel og Þor-
valdur Steingrímsson — fólk, sem
flestir lesendur munu kannast við.
Starfskraftar og efnisskrá mun
að sjálfsögðu taka breytingum, og
hafa þegar verið gerðar ráðstafan-
ir til að fá fleiri listamenn erlendis
frá, enda geta þeir, sem nú
skemmta, ekki verið hér nema tak-
markaðan tíma. Vonandi verða
þeir, sem á eftir koma, ekki eftir-
bátar þeirra er nú hafa skapað fá-
gæta tilbreytingu í skemmtanalíf-
inu hér.