Heimilisritið - 01.10.1947, Page 37

Heimilisritið - 01.10.1947, Page 37
kenndi hún þeim konum, sem voru giftar kotrosknum og leiðinlegum mönnum. Hún lét duttlunga Michael iekki á sig fá, já, það lá við að hún væri hreykin af honum. — Heyrðu mig, i\íichael, sagði hún glaðkga, þú vildir víst ekki kaupa fyrir mig dálítinn ostbita um leið og þú kemur heim í kvöld? Clarkes-fjölskyldan kemur til kvöldverðar. Michael sendi henni illúðlegt augnaráð. Hún vissi að hann kunni því mjög illa að sendast fyrir hana; en samt. ... — Þú deyrð ekki af því, það þori ég að ábyrgjast, sagði hún. — Ertu nú alveg viss um það? sagði hann. — Michael, hvað gengur eigin- lega að þér — veðrið er dásamlegt! — Mér er fjandans sama um veðrið, sagði Michael. Hún brosti án afláts, en það brá fyrir kvíða í röddinni, þegar hún sagði: Lof mér sjá tunguna! Það var engu h'kara en honum væri skapi næst að reka út úr sér tunguna framan í hana hugsaði hún, alveg eins og óþekkur krakki; en í þess stað spratt hann á fætur og gekk fram að dyrunum. — Veiztu, hvað þú ættir að fá þér, sagði hún rólega. Vænan skammt af laxerolíu! Michael Light stakk við fótum, eins og hann hefði snögglega orðið að steingervingi: — Joan, sagði hann, ég verð oft gripinn ómótstæðilegri löngun til að drepa þig, þegar þú segir svona setningar. Hún horfði á hann vorkunnlát. Ef hún hefði alltaf rokið upp á nef sér, þegar hann var í svona skapi, þá hefðu þau verið skilin að skipt- um fyrir löngu. Hún gekk til hans og kyssti hann. — Vertu sæll, ástin mín, sagði hún. — Vertu sæl, Joan, sa’gði hann mildari. Meðan hún fékk sér nýjan skammt af einrberjamaukinu, var hún að velta því fyrir sér, hvort Michael kynni að meta til fulls hve skilningsgóð hún var, eða hvort hann gerði sér ljóst, að hún var honum góð eiginkona — eins og allir vinir hans sögðu. IJún brosti ósjálfrátt. IJún lét sig það engu skpita, hvort hann mat hana að verðleikum eða ekki. Iíún elsk- aði hann. Ef til vill var linnn ekki það sem maður kallar góðan eigin- mann, en henni stóð alveg á sama. Það' eina, sem hún lét sig nokkru skipta, var Michael Light! ILún reyndi að hrista þessar hugsanir af sér. Klukkan var níu, og það var nóg að starfa. Joan skrifaði nefnilega ennþá auglýsing- ar fyrir Carter, Peabody & Co., þótt hún þyrfti að sjá um húsið, manninn og barnið. Michael var ráðinn hjá þessu fyrirtæki, og hún HEIMILISRITIÐ 35

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.