Heimilisritið - 01.10.1947, Síða 63
Til minnis
fyrir húsmóðurina
Til þess að koma í veg fyrir að stein-
steypt gólf dökkni, skal þvo ])au upp úr
st'erku sápuvatni og strá sandi yfir ]>au á
eftir.
Odúklögð timburgólf má hvítskúra í
beztu merkingu þess orðs, með því að þvo
þau fyrst upp úr kalkvatni og síðan upp
úr sápuvatni.
Ef leðrið í liandtöskunni þinni verður
gljáalaust og sprungið, geturðu gert ]iað
næstum því eins og nýtt með því að
pensla það með óþeyttri eggjahvítu.
Gott ráð gegn því að rennilás bili eða
fari í „baklás" er að smyrja Iiann að inn-
an með vaselíni.
Gætið þess vandlega, að leðurskór lendi
ekki of nálægt ofni eða eldavél. Ef þeir
hitna missir leðrið fituefni, sem nauðsyn-
legt er að sé i því, ef skórnir eiga að halda
réttu lagi og vera fallegir.
Ef hreinsa þarf leðurskó er bezt að
þurka af þeim með blöndu, sem er að
þremur hlutum sykruð mjólk og einum
hluta terpentína.
Til þess að ráða bót á marri i fjaðradýn-
um eða dívanfjöðrum skal borin þykk
smurningsolia á fjaðrirnar eða þá staði,
sem líklegastir eru að valdi marrinu.
Bezta ráðið til að ná óbragði úr munn-
iuum er að borða súkkulaði.
Skóáburður, sem hefur harðnað, verður
eins og nýr. ef nokkrir dropar af terpen-
tinu eru látmr drjúpa á hann.
Þegar þú þværð silkisokkana skaltu láta
svolitið salt saman við þvottavatnið.
Sokkaruir missa þá miklu síður lit.
Þú skalt aldrei skrökva að börnum þín-
um eða svíkja það sem þú hefur lofað þeim.
Lakkskór fá fallegan gljáa ef þeir eru
nuddaðir með mjúkri tusku, vættri í terp-
entínu.
Ef þvottasnúrurnar óhreinkast er bezt
að bursta þær upp úr sápuvatni. A milli
þess, sem þær efu notaðar skal taka þær
niður og vefja khit utan um þær, en ekki
brúnan pappir eða dagblaðapappír.
Silfurborðbúnaðurinn verður gljáandi
fagnr, ef ]>ú hellir dálitlu kartöflusoði yfir
liann og fa'gir hann með þurrum klút, áður
en þú leggur hann á borð.
Þegar kartöflurnar eru soðnar skal lieita
vatninu hellt af þeim og kalt vatn látið á
þær í staðinn, alveg eins og ])egar egg eru
soðin. Hellið vatninu strax af kartöflunum
aftur, áður en þær kólna um of. Við þetta
losnar svo um hýðið, að auðvelt er að
afhýða þær á eftir.
HEIMILISRITIÐ
61