Heimilisritið - 01.01.1948, Page 29

Heimilisritið - 01.01.1948, Page 29
Ég á við, mamma — hún sneri sér imdan og tók af sér hattinn fyrir framan spegilinn. Ég á við — ITugo ætlar að borða hjá okk- ur á morgun. — Hugo? Ég hélt að faðir lians hefði kej'pt handa honum stöðu í grennd við Southamp- tom — Já, það er rétt, en Hugo liefúr verið veikur og kom heim öllum á óvart til að hvíla sig, og foreldrar hans dvelja á hóteli í Folkestone. Hugo fer að líkind- um þangað suður annað kvöld, en þangað tii veit hann ekki ln að hann á af sér að gera, og þess vegna bauð ég honum að bórða með olckur. C)g hann lofaði að koma. — Já, ég skil. Hún skildi meira en hún lét á bera. Hún vissi að Christine liafði verið ástfangin af Hugo undanfarin tvö ár — hann hafði þá verið læknastúdent, og hún hafði verið að læra hattaskreyt- ingu. En foreldrar Hugos voru ríkir, og Ellen hafði aldrei séð hítnn. Hanri hafði haft stefnu- mót með Christine, og fekið henni í litla Taperson-vagninum síri- um. Að líkindum var hún í aug- um ITugos aðeins ein af mörgum fallegum og glaðlvndur stúlkum, sem hann þekkti. — M annna, höfum við ekki efni á að kaupa dálítið af léttu víni og eina flösku af vvhisky og eitthvað af blónnun og því líku? Heima hjá lionum er allt svo fínt. Jamiée hefur komið heim til hans, og hún hfefur iýst því fvrir mér. — Eg skal gera það sem á míriu valdi stendur, Chrissie, en þú veizt, hvernig ástæðurnar eru hjá okkur eiris og er. En ég lofa að gera það sem hægt er. Christine flýtti sér að borða. Hún varð að hraða sér til vinnu sinnar aftur; það var mikið að gera í hattastofunni. Um leið og hún stóð upp frá borðinu ýtti hún hinu létta launaumslagi sínu til móður sinnar, og Ellen tók við því og andvarpaði. — Þú þarft að fá þér nýja skó, Chrissie. — Þeit gfeta beðið eins og kjóllinn og kápan. Mamriia, hann hefur ekki beinlínis sagt neitt, en þó held ég að hann ætli -----nei, segðu ekkcrt, kannske ég ímyridi mér það bara------. —• Nú? spurði Ellen blíðlega. — Eg held hann sé hálfvegis að hugsa um, að hafa mig með sér til Folkestone og bjóða mér að snæða miðdegisverð ásamt föreidrum sínum. Og í hverju á ég þá að vera? — Þú verður bara í gömlu kápunni þinni, og þar með búið! Nema Iássie frænka sendi þér ávísun í nýársgjöf. HEIMILISRITIÐ 27

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.