Heimilisritið - 01.01.1948, Page 31
voru gljáfægð. A miðju borði var
stór blómvöndur og allt í einu
mundi Ellen eftir hvellhettun-
um.
Átti hún, eða átti hún ekki?
Þær voru sjálfsagt fátæklegar.
Hún tók þær upp úr pappaöákj-
unni. skoðaði þær vandlega, og
hikaði. Hugo — hvað myndi
liann hugsa? Og Aliee, sem var
svo fallega klædd — og þó, hvell-
hetturnar myndu koma öllum í
hátíðaskap! Pabbi og Dennis
myndu einnig verða fyrir von-
brigðum, ef þær vantaði--------.
Loks ákvað EHen að fara
hinn gullna meðalveg. Hún lagði
eina hvellhettu við hvern disk,
og faldi þær til hálfs undir marg-
litum servíettum. Fimm urðu af-
gangs. Þrem mínútum síðar gaf
hún þær tveimur smátelpum,
sem gengu milli húsa og seldu
skóreimar.
— Hana — ég hef ekki tíma
til að leita að smápeningum!
sagði Ellen, heit og móð af
vinnuákafanum. Takið þið við
þessu og hafið ykkur svo í
burt!
Fimm hvellhettur úr ham-
ingjuöskjunni hurfu niður stræt-
ið — fyrir fullt og allt.
Svo var hringt við útidyrnar.
Christine kam þjótandi niður
stigann og opnaði fyrir Hugo.
Pabbi kom heim með hundinn,
Dennis kom einnig að utan,
Aliee og Brian kom út úr dag-
stofunni og ekki einn einasti
lokkur í hinu fagurlega skrýfða
hári ungu stúlkunnar hafði ó-
lagast!
ÞAU settust að snæðingi.
Samræðurnar gengu stirðlega
fyrst í stað. Hugo var aðlaðandi
piltur, jafnvel óvenju aðlaðandi,
og Ellen hlýnaði um hjartaræt-
urnar, þegar henni varð litið til
hans. Pabbi hafði af góðsemi
sinni keypt bæði öl og eplamjöð.
Og Alice gat verið afar skemmti-
leg.
Jú, þetta gat orðið skemmti-
legasta samkvæmi, þegar allt
kom til alls.
Þegar Elleri srieri heitum búð-
ingnum frammi í eldhúsinu,
tók hún af sér giftirigarhringinn,
þvoði hánn og stakk honum
brosandi niður í búðinginn. Og
hvernig sem það atvikaðist nú,
þá kom hringurinn í hlút C'hrist-
ine.
— Þú verður að bera hann
eina klukkustund, annars flvtur
hann þér ekki hamingju, sagði
Alice.
Brian þurrkaði af hringnum,
og Alice sagði:
— Lof rriér að sjá. Jesús mlrin,
hann er næátum kominn í sund-
ur — hann er svo eyddur. Ell-
en, þú verður að láta manninn
þinn kaupa riýjan handa þér.
HEIMILISRITIÐ
29