Heimilisritið - 01.06.1955, Blaðsíða 3
HEIMILISRITIÐ
JÚNÍ 13. ÁRGAN GUR 1955
Ævaforn helgisögn, sem geymzt hefur
meðal Sígauna. —
Murdos færði í letur.
ASA BEN MIRIAM, sem heim-
urinn kallaði seinna Jesú, var
fenginn í hendur hermönnum, er
ráða skyldu hann af dögum,
vegna þess að hann talaði gegn
keisaranum í Róm. Tveir þess-
ara hermanna voru sendir af stað
til að útvega fjóra nagla til þess
að krossfesta hann með á kross-
inum.
Fyrir hven mann, sem kross-
festa skyldi, voru hermennirnir
vanir að fá áttatíu „kreitzer" til
þess að kauþa nagla fyrir. Til
þess að fá þessa nagla var ekki
um aðra að ræða en járnsmiði,
sem smíðuðu þá.
Þegar hermönnunum höfðu
verið greiddir þessir áttatíu
kreitzerar til að kaupa naglana
fyrir, lögðu þeir fyrst leið sína
inn í veitingakrá og eyddu þar
helming upphæðarinnar í ljúf-
feng vín, sem Grikkir seldu um
þær mundir í Jerþsalem. Það
var orðið áliðið dags þegar þeir
mundu eftir nöglunum. Fyrir
dagsetur áttu þeir að vera komn-
ir aftur til hermannaskálans,
því að snemma næsta morgun
átti krossfesting Asa ben Mir-
iam að fara fram.
Þeir skunduðu því af stað,
þegar þeir voru farnir að finna
talsvert á sér, til fyrsta járn-
smiðsins og sögðu við hann með
þjósti miklum, í þeim tilgangi
að hræða hann til að vinna verk-
ið, þó að þeir hefðu ekki nóg fé
til að greiða fyrir járnið og vinn-
una:
„Heyrðu, við þurfum að fá
1