Heimilisritið - 01.06.1955, Síða 5
sagði lágum, draugslegum rómi:
„Aria, smíðaðu ekki naglana."
Aria lét hamarinn síga niður
við hliðina á aflinu.
„Ég get ekki smíðað naglana,“
sagði hann.
„Smíðaðu þá,“ skipuðu her-
mennirnir, þó að þeir væru sjálf-
ir skelfdir, af því að þeir höfðu
líka heyrt röddina. Dagur var
að kveldi kominn og þeir höfðu
drukkið upp fjörutíu af þeim
áttatíu kreitzerum, sem þeim
höfðu verið fengnir.
„Ég get ekki smíðað þá,“ svar-
aði Aria.
„Gyðingur, þú sagðist eiga
konu og börn,“ sögðu þeir til að
þvinga hann, og otuðu spjótun-
um nær honum.
„Ég vil ekki smíða nagla til
þess að krossfesta ben Miriam
með,“ svaraði Gyðingurinn og
rétti alveg úr sér.
Hermennirnir ráku hann í
gegn með spjótum sínum.
Stutt var orðið til sólarlags
svo að hermennimir þurftu að
flýta sér sem mest þeir máttu.
Þeir hlupu því eins og fætur
toguðu til þriðja járnsmiðsins,
sem var Sýrlendingur. Þeir
komu til smiðju hans þegar hann
var í þann veginn að fara burt,
að afloknu dagsverki.
Spjót þeirra voru ennþá blóð-
ug þegar þeir kölluðu til hans.
JIJNÍ, 1955
„Khalil, smíðaðu fyrir okkur
fjóra stóra nagla, hér eru fjöru-
tíu kreitzerar fyrir þá. Og vertu
nú fljótur að því.“
Sýrlendingurinn horfði á blóð-
ug spjótin og tók þegar í stað að
blása smiðjubelginn, því að hann
vissi hverju hann mætti búast
við ef hann neitaði.
En hann hafði ekki fyrr byrjað
á að slá fyrsta járbútinn til en
veikar og skjálfandi raddir járn-
smiðanna beggja, sem hermenn-
irnir höfðu drepið, kölluðu til
hans að smíða ekki naglana.
Maðurinn kastaði hamrinum frá
sér. Og þeir ráku hann líka í
gegn með spjótum sínum.
Hermennimir voru í öngum
sínum. Hefðu þeir ekki drukkið
upp fjörutíu kreitzerana hina,
hefðu þeir getað snúið aftur til
hermannaskálans og sagt frá því
hvað komið hefði fyrir. Þegar
svona var komið málum þustu
þeir út um hlið Jerúsalem, og
fannst þeim að þeir hefðu him-
ininn höndum tekið þegar þeir
mættu sígauna nokkrum, sem
var að enda við að setja upp
tjald sitt og koma fyrir steðja
sínum, af því að hann var járn-
smiður. Fóm þeir síðan til hans
og skipuðu honum að smíða
fjóra nagla. Og þeir tóku upp
fjörutíu kreitzerana.
Maðurinn stakk peningunum
3