Heimilisritið - 01.06.1955, Blaðsíða 7
staddur rétt hjá vatnsbrunni.
Stóð hann í vatnsburði það sem
eftir var nætur til þess að reyna
að minnka glóð naglans. Hann
jós á hann sandi og vatni en það
hafði ekki minnstu áhrif; nagl-
inn var jafnglóandi eftir sem áð-
ur. Hann skildi því naglann eft-
ir á jörðinni og hélt ennþá lengra
inn í eyðimörkina. Langt inni í
eyðimörkinni, nálægt Araba-
þorpi nokkru, setti sígauninn
tjaldið sitt upp. Þegar hann
snéri sér við var glóandi naglinn
þar.
En þá hljóp nú heldur á snær-
ið hjá sígaunanum. Arabi nokk-
ur kom til hans og bað hann að
setja saman og bæta járngjörð
á hjóli hjá sér. í snatri tók sí-
gauninn hinn brennandi, gló-
andi nagla og bætti með honum
brotnu járngjörðina. Síðan setti
hann hana á hjól Arabans og
horfði með eigi augum á það
þegar Arabinn setti hjólið aftur
á öxulinn og ók í burt og hélt í
gagnstæða átt við þá, sem sí-
gauninn hafði komið úr.
Jafnskjótt sem Arabinn var
farinn, lagði sígauninn af stað.
Hann ók allan daginn án þess
að þora að líta við. Þegar asn-
inn hans var orðinn svo örmagna
úr þreytu að hann hné niður
keypti hann sér annan asna og
hélt ennþá lengra burt frá þeim
stað þar sem hann hafði fargað
naglanum.
Og eftir marga daga, þorði
hann ekki ennþá að líta við.
Hræddur við að opna augun þeg-
ar dimmt var orðið, komst hann
til borgarinnar Damaskus. Þar
setti hann upp smiðju sína aft-
ur.
Daginn eftir kom maður með
hjöltu úr sverði til hans og bað
hann að gera við þau. Sígauninn
kveikti upp í smiðjunni og lagði
hjöltun niður. Þá byrjuðu hjölt-
un að glóa eins og naglinn hafði
gert. Þarna var naglinn, eins og
hann væri límdur við hjöltun.
Og þá tók sígauninn til fótanna
aftur.
Og naglinn birtist alltaf í
tjöldum niðja mannsins, sem
smíðaði naglana, sem voru not-
aðir til að krossfesta Asa ben
Miriam með. Og þegar naglinn
birtist hlaupa sígaunarnir af
stað. Þess vegna flytja þeir úr
einum stað í annan. Þess vegna
var Asa ben Miriam krossfestur
með aðeins þremur nöglum, báð-
ir fæturnir voru lagðir hvor yf-
i annan og einn nagli rekinn í
gegnum þá báða. Fjórði naglinn
er á endalausu flakki heimsend-
anna á milli. *
Halldór Dungal
þýddi.
JÚNÍ, 1955
5