Heimilisritið - 01.06.1955, Síða 8
Hjónin
John Ireland
og Joanne Dru.
— Ég held að karl-
menn, sem hafa
reynslu í ástamálum,
séu betri elskhugar
en hinir, bæði í
kvikmyndum og
utan þeirra.
Ég vil heldur kyssa kvœntan mann
segir Joanne Dru kvikmyndaleikkona
ÉG HEF leikið í mörgum kvik-
myndum og hef kysst marga
karlmenn. Einu sinni var ég svo
öfundsverð, að ég fékk að kyssa
mann, sem þúsundir stúlkna um
heim allan hefðu ólmar viljað
kyssa. Hann heitir Montgomery
Clift. Á tjaldinu leit kossinn út
fyrir að vera innilegur, en . . .
en . . . mér þykir fyrir því að
segja það — þið misstuð ekki af
miklu, stúlkur mínar.
í fullri hreinskilni sagt, kýs ég
fremur kossa manna, sem hafa
verið kvæntir.
Það er ekki einungis af því að
ég hef sjálf verið tvígift, eða
vegna þess, að ég er leikkona,
sem ég verð að kyssa og láta
kyssa mig aftur og aftur fyrir
framan myndavélina, að ég hef
svona ákveðna skoðun í þessu
máli. Eins og allar konur er ég
ekki óskeikul, en ég held að
reynsla í ástamálum sé ekki að-
eins æskileg heldur einnig þakk-
arverð.
En svo. ég snúi mér aftur að
Monty Clift. Það kann vel að
vera, að hann kyssi ekki eins í
kvikmyndum og utan þeirra.
Hann kann að vera ein af þess-
um reyndu leikurum, sem geta
gætt hlutverkið lífi — og gleymt
sálinni. Það er einnig hugsan-
legt, að þegar hann finnur
6
HEIMILISRITIÐ