Heimilisritið - 01.06.1955, Side 21
sér hagkvæm skilyrði fyrir öld-
ur nýrra lífvera, sem á eftir
komu frá norðvestri og suðri og
tóku sér þar bólfestu, en með
þeim birtist maðurinn, senni-
lega frá suðri. Hinn frægi Pek-
ingmaður, Sinantrophus (úr la-
tinu sinensis — kínverskur og
grísku antrophus — maður) er
árangur þessa innflutnings.
Frummaðurinn á Englandi
AF ÞESSUM og öðrum að-
stæðum kynni að virðast svo
sem sennileiki Asíu reynist
þyngri á metunum, og þá sér-
staklega í suður-hluta mið-Asíu
hafi úrslitaáfanga í þróun
mannsins verið náð. Ýmsir vís-
indamenn vilja tengja þann at-
burð við breytingu þá á um-
hverfinu, sem átti sér stað við
upphækkun fjallshryggjarins,
sem gengur frá austri til vesturs
eftir miðri jarðkringlunni, en
Alpafjöll, Hindu Kust og Hima-
laja eru hlutar hans. Mjög lík-
legt er að slíkir feikna viðburðir
hafi neytt fyrirrennara manns-
ins, til þess að breyta lifnaðar-
háttum sínum þannig, að þeir
hyrfu úr trjánum og niður á
jörðina. Apinn steig niður úr
tréinu og varð að manni.
Það skilur ekki algjörlega
milli manns og apa þótt gert sé
Pithecanthropus.
Höfuð af Pithecanthropus mótað
afpróf. J. H. McGregor eftir hinni
endursköpuðu höfuðkúpu. Leif-
amar fundust milli 1891 og 1894.
ráð fyrir hinni uppréttu still-
ingu, jafnvel sem stöðugum
vana. Maðurinn hefur verið skil-
greindur þannig, að hann sé dýr
sem noti verkfæri, en apinn á
það líka til að nota hentugar
spýtur, steina eða aðra hluti í
nægilega skynsömum tilgangi
til að réttlæta það, að apinn sé
ásamt manninum talinn til dýra,
sem noti verkfæri a. m. k. öðru
hverju. En samt sem áður er
maðurinn ekki aðeins fær um
að notfæra sér efnislega hluti til
að ná tilgangi sínum, en einn
allra lifandi vera umbreytir
JÚNÍ, 1955
19