Heimilisritið - 01.06.1955, Qupperneq 22
jafnvel lögun slíkra hluta eftir
þörfum sínum. Maðurinn er m.
ö. o. ekki aðeins dýr, sem notar
verkfæri, hann er jafnframt dýr,
sem smíðar verkfæri.
Ef gengið er að því sem vísu
að slík iðkun framtaks um smíði
verkfæra, skeri úr um eðli
mannsins, þá markar það breyt-
ingar stig hans frá apa til manns,
til aðgreiningar frá óæðra
manni. Það er því ástæða til að
ætla, að maðurinn hafi verið
skapaður og dreifður víðs vegar
um heim löngu fyrir þann tíma
sem elztu þekktar leifar af
beinagrind mannsins eru frá.
En þær hafa eins og fyrr grein-
ir ekki fundizt eldri en frá
fyrstu tímum pleistósen aldar.
Þó hafa fundizt verkfæri úr
steini, sniðin af ásettu ráði í á-
kveðið form og ætluð til sér-
stakra þarfa, í niðurburðum frá
síðari plíósen öld. T. d. vilja
sumir sérfræðingar m. a. halda
því fram um verkfæri þau, sem
fundizt hafa í austur-Angliu í
niðurburðum frá ofanverðri plíó-
senöld, að þau stafi jafnvel aft-
ur úr enn grárri forneskju, en
niðurburðimir, sem þau fundust
í; síðari flóð hafi skolað þeim
burt úr upprunalegum lögum
sínum. Enda þótt verkfæri þessi
gefi til kynna tilvist mannsins
mjög snemma á öldum, á tertíer-
tímabilinu, þá hafa hamfarir
náttúrunnar á þessum tímum
haft svo ofsaleg áhrif á land-
fræði- og loftslagsskilyrði, vegna
sí-endurtekinna siga og upp-
hækkana jarðar, og aftur orsak-
að afstöðubreytingu láðs og lag-
ar, að ólíklegt er að svo við-
kvæmar leifar sem mannabein
gætu lifað það af.
Samt sem áður er því haldið
fram að ein tegund leifa frum-
mannsins sé frá tertíertímabil-
inu. Nokkur af malarlögum
þeim, sem brotin af hauskúpu
Piltdownsmannsins, Eoantrop-
hus (úr grísku: eos — dögun),
fundust í Sussex (Engl.) eins og
tilkynnt var 1912, voru frá plíó-
senöld. En leifar þessar komu í
ljós eftir að malarlögin höfðu
verið grafin upp og flutt úr legu
sinni svo að ókleift var orðið að
segja með vissu, hver hefði ver-
ið hinn upprunalegi staður haus-
kúpunnar. Það var því ekki unnt
að ákveða aldur hennar svo ó-
yggjandi væri, en nú er hún al-
mennt talin vera frá öndverðri
pleistosenöld. Ef þetta er rétt,
þá er Piltdown-hauskúpan við-
líka gömul ein og þær tvennar
fomleifar frá austurlöndum,
sem áður voru nefndar, Pithe-
cantrophus, sem fannst í malar-
lögum frá pleistósenöld snemma
á quartiertímabilinu, í Triml á
20
HEIMILISRITIÐ